Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Menningar- og fræðslunefnd

Fundargerðir Menningar- og fræðslunefndar - mánudagur 15.feb.10 10:47 - Lestrar 965
31. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings  haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 15. febrúar 2010 og hófst hann kl. 15:00

Fundinn sátu:

Gunnlaugur Stefánsson, Olga Gísladóttir, Sigtryggur Sigtryggsson, Ingólfur Freysson, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður Aðalgeirsson,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Menningar- og fræðslufulltrúi

Dagskrá:

1.

200912042 - Fundargerð rekstrarstjórnar 200912042

Lagt fram til kynningar.

 

2.

200907030 - Safnahúsið á Húsavík-Tilfærsla Bókasafns Húsavíkur af fyrstu hæð Safnahússins niður á jarðhæð þess

Nefndin skoðaði Bókasafn Húsavíkur eftir flutningana og lýsir nefndin ánægju með hvernig til hefur tekist. Nefndin vill sérstaklega þakka starfsfólki safnsins og öðrum sem að flutningnum komu fyrir vel unnin störf.

 

3.

201002018 - Heiltónn, hollvinasamtök Tónlistarskóla Húsavíkur, ósk um að senda áheyrnarfulltrúa á fundi menningar- og fræðslunefndar

Menningar- og fræðslunefnd heimilar Heiltóni að eiga áheyrnarfulltrúa á fundum nefndarinnar þegar fjallað er um málefni Tónlistarskóla Húsavíkur á meðan ekki er starfandi foreldrafélag við skólann.

 

4.

200811031 - Mæru- og sænskir dagar 2009

Skýrsla frá Röðli R. Kárasyni verkefnastjóra Mæru- og sænsku daganna 2009 lögð fram til kynningar.

 

5.

201002049 - Mærudagar / sænskir dagar 2010

Menningar- og fræðslunefnd felur Menningar- og fræðslufulltrúa að ganga frá samningi við Markþing um framkvæmd Mærudaga 2010 og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

 

6.

200912043 - Hafralækjarskóli - Fjárhagsáætlun 2010

Fjárhagsáætlun Hafralækjarskóla lögð fram til kynningar.

 

7.

200908088 - Menntamálaráðuneytið-Tilkynnt um úttektir á sjálfsmatsaðferðum í grunnskólum haustið 2009

Lagt fram til kynningar.

 

8.

201001016 - Tilkynnt um dags. samræmdra prófa í 4.7. og 10. bekk haust 2010

Lagt fram til kynningar.

 

9.

201002050 - Ósk um mötuneytisþjónustu fyrir leikskólabörn Öxarfjarðarskóla, Krílakoti á Kópaskeri.

Menningar- og fræðslufulltrúi upplýsti að nú þegar væri hafin mötuneytisþjónusta fyrir leikskólabörn á Kópaskeri. Menningar- og fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með að þessari þjónustu hafi verið komið á fyrir leikskólabörn á Kópaskeri.

 

10.

200905139 - Samstarfssamningur um félags- og skólaþjónustu

Menningar- og fræðslufulltrúi kynnti skipulagsbreytingar innan Félagsþjónustu Norðurþings.

 

11.

200909017 - Bókasafn Öxarfjarðar - Flutningur bókasafnsins úr Safnahúsinu við Snartastaði

Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri kynnti stöðu mála og þá kosti sem ræddir hafa verið. Áfram verður unnið að málinu.

 

12.

201002048 - Dagvistun leikskólabarna á Húsavík - horfur vor 2010

Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir þörf á dagvistunarplássum á Húsavík á komandi ári. Menningar- og fræðslufulltrúa falið að vinna málið áfram.

 

13.

201002051 - Mál til umræðu: Tónlistakennsla í Norðurþingi - fyrirkomulag til framtíðar

Menningar- og fræðslunefnd felur Menningar- og fræðslufulltrúa að kalla saman vinnuhóp skólastjórnenda grunn- og tónlistarskóla Norðurþings. Verkefni vinnuhópsins er að leggja fram tillögur að mögulegu skipulagi tónlistarnáms í sveitarfélaginu.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning