Norðurþing? Hvað er það?
Sveitarfélagið Norðurþing varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga á s.l. ári. Þéttbýliskjarnarnir í
nýja sveitarfélaginu eru Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn.
Margar af helstu náttúruperlum landsins eru innan nýja sveitarfélagins má þar nefna, Dettifoss og Ásbyrgi ásamt Melrakkasléttu sem
er ævintýri líkast að koma á.
Þar er fjöldi fuglaskoðunarstaða og áhugavert fyrir fólk að heimsækja.
Frítt í sund!
Sveitarstjórn Norðurþings hefur ákveðið að frá og með 1. maí verði frítt í sund í sundlaugarnar á
Húsavík og Raufarhöfn fyrir alla gesti 16. ára og yngri.
Það er því tilvalið í sumar að mæta með fjölskylduna í sund og kíkja svo á það sem þessir staðir
hafa upp á að bjóða. Á Húsavík er tilvalið að skella sér í hvalaskoðun, kíkja á söfnin í
bænum. Fá sér bita á einhverjum af veitingastöðum bæjarins og enda á því að gista á staðnum. Á
Raufarhöfn er Hótel Norðurljós sem er tilvalið að sækja heim í mat og gistingu eftir skemmtilega ferð um Melrakkasléttu.
Frítt á
tjaldsvæðið!Fjölmörg tjaldsvæði eru í sveitarfélaginu og á nokkrum þeirra er ókeypis að gista t.d. á Kópaskeri og
Raufarhöfn. Á Húsavík er sá háttur á að aðeins er greitt fyrir fyrstu nóttina og svo geta gestir gist frítt eftir
það í allt að 10 daga án frekari greiðslu.
Húsavíkurhátíð 22. júlí til 29. júlí!
Á komandi sumri verður hin árlega Húsavíkurhátíð haldinn sem sameinar það besta sem heimamenn hafa upp á að
bjóða og á á hátíðinni er einnig ræktað sambandið við Svíþjóð.
Undir hátíðina falla því bæði Mærudagar sem haldnir hafa verið um árabil á Húsavík og Sænskir dagar sem
haldnir hafa verið s.l. tvö ár.
Hátíðin verður haldin vikuna 22. júlí til 29. júlí.
Fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína til Húsavíkur ár hvert á meðan á hátíðinni stendur. Einnig eru
útskriftarárgangar farnir að stilla samverustundir inn á þessa viku.
Verkefnisstjóri Húsavíkurhátíðar í ár er Margrét Kröyer og hægt er að hafa samband við hana í síma
867-5677.
Þingeyjarsýslur fyrir göngufólk!
Útbúin hafa verið sjö göngukort af Þingeyjarsýslum. Kort þessi er hægt að fá keypt gegn vægu gjaldi í verslunum og
eru þau tilvalin valkostur fyrir þá sem vilja njóta frábærrar náttúru í Þingeyjarsýslum.
Gljúfrastofa
Í Ásbyrgi er búið að opna Gljúfrastofu sem er aðal gestamóttaka þjóðgarðsins, upplýsingamiðstöð og
sýning um náttúru og sögu svæðisins. Gljúfrastofa er því tilvalinn viðkomustaður fyrir þá sem vilja fræðast
betur um land og þjóð.
Bestu kveðjur
Markaðsráð Þingeyinga
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga




