Fara í efni

Fréttir

Sumarlokun á Húsavík og Kópaskeri

Bókasafnið á Húsavík er lokað frá 4.júlí - 29. júlí 2016. Opnum aftur þriðjudaginn 2. ágúst kl 10:00 Vekjum athygli á að skilakassi er staðsettur í anddyri og því hægt að skila bókum á opnunartíma Safnahúss. Bókasafnið á Kópaskeri er lokað frá 18.júlí -12. ágúst 2016.
20.06.2016
Tilkynningar
Eitthvað fyrir alla á bókasafninu

Eitthvað fyrir alla á bókasafninu

Mikið af nýjum bókum og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hjá okkur er líka hægt að lesa nýjasta Morgunblaðið og Skarp ásamt nýjum tímaritum og ávallt kaffi á könnunni :)
27.04.2016
Tilkynningar

Lokað í dymbilviku

14.03.2016
Tilkynningar
Allir lesa - lestrarátak

Allir lesa - lestrarátak

Það verður blásið til leiks í landsleiknum Allir lesa á bóndadaginn, 22. janúar næstkomandi. Leikurinn stendur í mánuð (lýkur á konudaginn 21. febrúar) og er fyrir lesendur á öllum aldri.  Það var opnað fyrir skráningu liða núna föstudaginn 15. janúar.
19.01.2016
Tilkynningar
Lestu meira á nýju ári!

Lestu meira á nýju ári!

Gleðilegt nýtt lestrarár! Hvetjum unga sem aldna til að lesa enn meira á nýju ári, enda fátt betra í vetrarkuldanum en slappa af með góða bók. Hjá okkur má finna bækur við allra hæfi, verið velkomin.
06.01.2016
Tilkynningar

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

23.12.2015
Tilkynningar

Óttast þú að fá enga bók í jólagjöf?

Þá er sniðugt að koma tímanlega á bókasafnið og ná sér í góða bók fyrir jólin. Eitthvað fyrir alla :)
15.12.2015
Tilkynningar

Jólabókaupplestri í kvöld er aflýst vegna slæmrar veðurspár

Þar sem spáð er aftakaveðri á öllu landinu og fólk varað við að vera á ferli síðdegis og í kvöld, höfum við ákveðið að aflýsa upplestrarkvöldinu okkar sem átti að vera í kvöld. Reynum vonandi aftur síðar.
07.12.2015
Tilkynningar

Jólabókaupplestur 7. desember kl 20:00

Mánudaginn 7. desember 2015 kl. 20:00 verður okkar árlegi jólabókaupplestur þar sem  lesið er upp úr nokkrum nýútkomnum bókum hér á bókasafninu. Allir velkomnir.
03.12.2015
Tilkynningar

Nýjar bækur streyma inn á aðventunni

Það er upplagt að koma reglulega á bókasafnið í desember - alltaf eitthvað nýtt.
01.12.2015
Tilkynningar

Ljóðasýning 2015

12.11.2015
Tilkynningar

Eitthvað fyrir alla á bókasafninu

06.10.2015
Tilkynningar