Ferðamenn

  Húsavíkurstofa - upplýsingamiðstöð Forstöðumaður: Einar Gíslason Staðsetning: Hafnarstétt 1, 640 Húsavík Sími: 464 4300, 840 0025 Netfang:

Ferðamenn

Norðausturland.is


 

Húsavíkurstofa - upplýsingamiðstöð

Forstöðumaður: Einar Gíslason
Staðsetning: Hafnarstétt 1, 640 Húsavík
Sími: 464 4300, 840 0025
Netfang: info@visithusavik.is
Web: http://www.visithusavik.is/
Veffang: http://www.nordausturland.is/

Upplýsingamiðstöðin er opin frá 8:30 til 19:00 á kvöldin frá 1. júní til 15. september.

Húsavíkurstofa er miðstöð fyrir hagsmunaraðila í verslun og þjónustu á svæðinu. Þar er veitt þjónusta á sviði markaðs- og kynningarmála fyrir Húsavík ásamt verkefna- og viðburðarstjórnun. Markmið Húsavíkurstofu er að verða samnefnari fyrirtækja á svæðinu og stuðla að eflingu atvinnulífs með aukinni samvinnu hagsmunaaðila og auknum tækifærum. Einnig að gera Húsavík að eftirsóttum áfangastað með fjölbreyttri afþreyingu og þjónustu allan ársins hring, lengja dvalartíma ferðamanna og stuðla að hámarks virðisauka hagsmunaaðila af ferðaþjónustu.

Yfir sumartímann starfrækir Húsavíkurstofa upplýsingamiðstöð ferðamanna á Húsavík ásamt því að hafa umsjón með tjaldsvæði bæjarinns.


Gljúfrastofa í Ásbyrgi

Gestastofa þjóðgarðsins á norðursvæði er í Ásbyrgi. Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um þjóðgarðinn og nágrenni hans; gönguleiðir, náttúrufar, sögu, þjónustu og afþreyingu. Gljúfrastofa er opin frá 1. maí til 30. september. Utan þess tíma er þar opið eftir samkomulagi. Starfsmenn þjóðgarðsins bjóða skipulagðar gönguferðir og sérstök dagskrá er fyrir börn.

Sumardagskrá Vatnajökulsþjóðgarðs í Jökulsárgljúfrum og Ódáðahrauni 2011

Þjóðgarðurinn er opinn gestum allt árið um kring. Í Ásbyrgi er stórt tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla. Í Vesturdal er fallegt tjaldsvæði en þjónusta minni. Tjaldsvæðið í Ásbyrgi er opið frá 15. maí til 15. september og í Vesturdal frá 10. júní til 15. september, með þjónustu og gæslu. Hafa þarf samband við þjóðgarðsvörð ef gestir hyggjast dveljast í þjóðgarðinum utan þjónustutíma tjaldsvæða eða nýta sér Gljúfrastofu.

Nánari upplýsingar hér


Raufarhöfn

Gallerý Ljósfang - handverksala
Staðsetning:  Aðalbraut 26
Sími: 465 1115

Upplýsingamiðstöðin er opin alla daga frá 11:30 til 22:00 á kvöldin.

Boðið er upp á kaffi og léttar veitingar.

Póstlisti

headerheaderheaderheader