Fara í efni

Framkvæmdir á Raufarhöfn - staða mála

Viðhald á miðstöðvarkatli íþróttamiðstöðvarinnar/skólans á Raufarhöfn er nú í gangi. Á meðan á viðgerðum stendur er ekki hægt að hafa sundlaugina opna þar sem að ekkert heitt vatn er á húsinu. Líkamsræktin og íþrótta salurinn er opinn á meðan á þessu stendur og er vetraropnarnartími á meðan. Það þýðir að opið verður: mánudag, miðvikudag, föstudag og laugardag frá 17-19.30. Áætlað er að viðgerðin taki um 10 daga og verður tilkynnt hér á síðunni hvenær opnað verður að nýju.

--Uppfært--  10.08.16
Því miður er ekki mögulegt að opna sundlaugina miðvikudaginn 10.ágúst. stefnt er að opnun laugardaginn 13. ágúst.