Fara í efni

Rannsóknastöðin Rif auglýsir eftir verkefnum

Rannsóknastöðin Rif vill vekja athygli á því að stöðin auglýsir nú eftir verkefnum fyrir árið 2017. 

Hvetjum við alla sem áhuga hafa á rannsóknum og vöktun og þeim áhrifum sem loftslagsbreytingar og aukin umsvif mannsins hafa á viðkvæmt lífríki norðurslóða, til að kynna sér málið nánar hér í auglýsingunni eða á vefnum okkar, www.rifresearch.is. Þar er hægt að sækja um afnot af aðstöðu okkar og rannsóknarsvæði, sem býður upp á afar fjölbreytta möguleika fyrir rannsakendur og nema á sviði náttúruvísinda og víðar.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna eða hugmyndir vakna. Hlökkum til að heyra frá ykkur sem flestum.