Fara í efni

Styrkir til lista- og menningarmála

Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs  ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is/is/mannlif/menning-og-listir/lista-og-menningarsjodur. 

Umsóknum vegna úthlutunar í október 2016 skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eða með tölvupósti á snabbi@nordurthing.is eigi síðar en 10. október n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.

F.h. Æskulýðs- og menningarnefndar Norðurþings.
Snæbjörn Sigurðarson
Menningarfulltrúi
s. 669-8425,
snabbi@nordurthing.is