Fara í efni

Sundlaugar Norðurþings

Sumartími fer að komast á sundlaugar sveitarfélagsins. 

Sundlaugin í Lundi opnaði mánudaginn 8.júní. Á Húsavík stendur meðal annars til að mála sundlaugina og verður hún því miður lokuð vikuna 12. júní - 18. júní.  

Að viðhaldinu loknu mun sumaropnun taka við þann 20. júní. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Sundþyrstum Húsvíkingum er bent á sundlaug suðurbæinga (Heiðarbær) sem er opin 11:00-22:00 alla daga. Einnig má benda á sundlaugina í austurbænum (Lundur) og á Raufarhöfn.

Nánar má lesa um opnunartíma sundlauga Norðurþings hér.