Fara í efni

Ráðið hefur verið í stöðu bókara hjá Norðurþingi

Birna BjörnsdóttirRáðið hefur verið í starf bókara hjá Norðurþingi sem auglýst var á heimasíðu Norðurþings þann 13. maí s.l. og var Birna Björnsdóttir ráðin.

Birna er menntaður kennari frá Kennaraháskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað við kennslu og skólastjórn hjá Norðurþingi. Á árunum 1992-2006 var Birna skrifstofustjóri hjá Síldarvinnslunni (áður SR-mjöl og þar áður Síldarverksmiður ríkisins) og sá þar um launavinnslu, fjárhags- og verkbókhald, Birna hefur því langa og mikla reynslu af bókhalds- og skrifstofustörfum. Starfsstöð Birnu verður á Raufarhöfn en hún mun einnig sinna starfinu að hluta á Húsavík. Við bjóðum Birnu velkomna til starfa hjá Norðurþingi á ný.