28.ágú.06 | 08:15
FUNDARGERÐ HAFNARSTJÓRNAR
28. ÁGÚST 2006
Árið 2006, mánudaginn 28. ágúst, kom Hafnarstjórn Norðurþings saman til fyrsta fundar á bæjarskrifstofunni og
hófst fundur kl. 1400.
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, formaður
Hannes Höskuldsson
Þráinn Gunnarsson
Gaukur Hjartarson framkvæmdastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð er rituð í tölvu blaðsíður 1-2.
Jón Helgi setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Verkefni Hafnarstjórnar
Framkvæmdastjóri kynnti verksvið hafnarstjórnar.
2. Yfirlit yfir hafnir í umsjón sveitarfélagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir hafnir í umsjón sveitarfélagsins.
a) Húsavíkurhöfn: Kynnt var staðan við framkvæmdir sumarsins og fyrirhugaðar framkvæmdir við endurbætur
hafnarinnar.
b) Kópaskershöfn: Kynnt var staða mála í höfninni. Þar kom fram að umtalsverður sandburður er inn í
höfnina. Þokkalegt ástand er á mannvirkjum hafnarinnar. Vinnuaðstaða hafnarvarðar er í litlum og lélegum skúr og þyrfti
að bæta þá aðstöðu. Löndunarkrani er 20 ára gamall vinkilkrani.
c) Raufarhafnarhöfn: Kynnt var staða mála. Unnið hefur verið að uppbyggingu/lagfæringu bryggju fyrir björgunarbát
í sumar. Vinnuaðstaða í húsi fyrir hafnarvörð er ófullnægjandi.
d) Flateyjarhöfn: Framkvæmdastjóri kynnti stöðu hafnarinnar í Flatey.
3. Stóriðjuhöfn
Framkvæmdastjóri kynnt hugmyndir Alcoa um flutninga að fyrirhuguðu álveri við Bakka.
Framkvæmdastjóra falið að hefja viðræður við Siglingastofnun um frumhönnun hafnarmannvirkja sem þjóna þörfum
Alcoa.
4. Endurbætur smábátahafnar
Kynnt var hugmynd Siglingastofnunar að endurbótum smábátahafnar. Umhverfis- og framkvæmdaráð Húsavíkurbæjar
fjallaði um aðra tillögu Siglingastofnunar á fundi þann 19. apríl s.l. og lagði þá til á henni tilteknar breytingar. Siglingastofnun
hefur nú lagt fram aðra hugmynd þar sem tekið er tillit til hugmynda Umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Hafnarstjórn fer fram á að verkinu verði hraðað eins og unnt er skv. framlögðum teikningum.
5. Hafnasambandsþing 2006
35. hafnasambandsþing Hafnasambands sveitarfélaga verður haldið á Hótel Höfn, Hornafirði dagana 12.-13. október
n.k. Samkvæmt 4. gr. laga hafnasambandsins kjósa hlutaðeigandi hafnarstjórnir eða sveitarstjórnir fulltrúa á hafnasambandsþing og skal
fulltrúafjöldi miðast við árstekjur skv. ársreikningi hafnasjóðs. M.v. tekjur hafna Norðurþings skal hafnarstjórn tilnefna tvo
fulltrúa á þingið.
Stefnt er að því að senda tvo fulltrúa á þingið og verða þeir tilnefndir síðar.
6. Tölvupóstur frá Stefáni Guðmundssyni
Framkvæmdastjóri kynnti tölvupóst sem borist hefur frá Stefáni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Gentle Giants Whale
Watching. Ásamt sögulegu yfirliti yfir framkomu hafnaryfirvalda við Stefán koma þar fram fjórar fyrirspurnir.
Framkvæmdastjóra falið að svara fyrirspurnum Stefáns til samræmis við umræður á fundinum.
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 1630.
Jón Helgi Björnsson
Hannes
Höskuldsson
Þráinn Gunnarsson
Gaukur
Hjartarson



