18.apr.12 | 11:28Hala niður pdf af fundargerð 

91. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
18. apríl 2012 og hófst hann kl. 8:30.
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Anna Ragnarsdóttir, Gaukur
Hjartarson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. 201203096 - Egill Olgeirsson hjá Mannvit sækir um byggingarleyfi fyrir hús við
íþróttavöll
Með bréfi dags. 27. mars 2012 kynnti Egill Olgeirsson, f.h. Mannvits, hugmynd að staðsetningu nýs
vallarhúss við fótboltavelli. Nú hafa fleiri hugmyndir að staðsetningu bæst við og mætti Per Langsöe Christensen til fundarins að kynna
þær.
Í aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 er gert ráð fyrir að byggja megi á íþróttasvæðinu mannvirki sem henta
svæðinu. Skipulags- og byggingarnefnd telur heppilegustu staðsetningu fyrir mannvirkið vera skv. tillögu C og leggur til að við það verði
miðað við frekari hönnun mannvirkisins.
2. 201203018 - Erindi frá Búseta varðandi frágang bílastæða norðan við
Garðarsbraut 73, Húsavík
Búseti skorar á yfirvöld skipulags- og byggingarmála í Norðurþingi að hlutast
til um að gengið verði frá bílastæðum að Garðarsbraut 73 á Húsavík. Ennfremur er hvatt til þess að hliðrað
verði til lóðarmörkum þannig að komið verði til móts við eigendur Garðarsbrautar 71.
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur ekki tilefni til að hlutast til um tilfærslu lóðarmarka milli Garðarsbrautar 71 og 73, enda þau skilgreind
í þinglýstum lóðarleigusamningum. Nefndin er heldur ekki tilbúin í að hafa afskipti af frágangi einstakra bílastæða
á þessu stigi.
3. 201203005 - Byggingarskýrsla 2011
Byggingarskýrsla Norðurþings 2011 var lögð fram til kynningar.
4. 201204020 - Norðursigling óskar eftir stöðuleyfi fyrir miðasöluhús að
Hafnarstétt 11
Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir 45 m² miðasöluhúsi að Hafnarstétt 11 skv.
meðfylgjandi teikningum. Til vara er sótt um bráðabirgðaleyfi fyrir húsinu á verbúðarþaki í stað núverandi
miðasöluhúss.
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til við bæjarstjórn að ekki verði veitt bráðabirgðaleyfi fyrir nýjum húsum á
svæðinu fyrr en fyrir liggur samþykkt deiliskipulag. Guðlaug og Anna leggja til við bæjarstjórn að veitt verði stöðuleyfi til eins
árs fyrir 45 m² húsi á þaki verbúða.
5. 201204021 - Norðursigling óskar eftir leyfi fyrir skiltum
Óskað er eftir tímabundnu leyfi til að merkja miðasöluhús á þaki
verbúðarhúss á sama hátt og gert var sumarið 2011. Merkingar yrðu á þrjá vegu ofan á skyggni eins og fram kemur á mynd
fylgjandi erindi.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimilaðar verði umbeðnar merkingar til loka október 2012.
6. 201008076 - Eigendur Stóragarðs 4 og 6 óska eftir að skipulagðar verði lóðir
undir bílskúra gegnt lóðum þeirra
Með tölvupósti dags. 20. febrúar 2012 óskar Sigurgrímur Skúlason eftir
endurupptöku fyrri óskar um byggingarrétt fyrir bílgeymslur við Stóragarð 4 og 6.
Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að kalla eftir byggingaráformum lóðarhafa Stóragarðs 4 og 6 sem og ræða við
lóðarhafa Túns. Afgreiðslu erindis frestað.
7. 201202023 - Landsnet hf. óskar eftir breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna lagningar
jarðstrengs
Bæjarstjórn Norðurþings samþykkti 28. febrúar 2012 tillögu að óverulegri
breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að heimilt verði að leggja
jarðstreng (66 kV) í vegöxl Reykjaheiðarvegar. Jarðstrengurinn mun liggja eftir vegi frá Þeistareykjum í Þingeyjarsveit að
Kópaskerslínu í Norðurþingi. Sá hluti sem fellur innan Norðurþings er um 1 km að lengd.
Breytingin fellur undir lög um umhverfimat áætlana nr. 105/2006 og var því unnin umhverfisskýrsla sem var auglýst með breytingunni í
samræmi við 7. gr. þeirra laga. Kynningartími var frá 5. mars til mánudagsins 16. apríl 2012 og var athugasemdafrestur til sama tíma.
Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu er nú tekin fyrir að nýju í samræmi við 9. gr. laga um umhverfismat áætlana.
Umhverfismat leiddi í ljós að umhverfisáhrif breytingarinnar yrðu lítil sem engin þar sem jarðstrengurinn yrði lagður í vegöxl
á núverandi vegi sem þegar hefur verið ákveðið í skipulagi að byggja upp. Umhverfismatið kallaði því ekki á
breytingu á tillögunni. Skipulagsstofnun yfirfór umhverisskýrsluna í samræmi við 3. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana og gerði
ekki athugasemdir sbr. bréf dags. 13. apríl 2012. Ekki bárust athugasemdir frá öðrum aðilum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn Norðurþings að auglýst breytingartillaga verði samþykkt að nýju sem óveruleg breyting
í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, sbr. rökstuðning sem fram kemur í skipulagsgögnum, og send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
8. 201204051 - Skútustaðahreppur óskar eftir umsögn Norðurþings um tillögu að
aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011 - 2023
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings gerir engar athugasemdir við tillögu að nýju
aðalskipulagi Skútustaðahrepps.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00.