Styrkir til lista- og menningarmála
15.09.2014
Tilkynningar
Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála.
Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is.
Umsóknum vegna úthlutunar í október 2014 skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 30. september n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð.
F.h. Fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings.
Erla Sigurðardóttir
Fræðslu- og menningarfulltrúi
s. 464 6123,