Fara í efni

Tillaga að breytingu aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 og breytingu deiliskipulags Höfðavegar á Húsavík

 

Tillaga að breytingu aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 og breytingu deiliskipulags Höfðavegar á Húsavík

 

Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar eftirfarandi skipulagstillögur og tilheyrandi umhverfisskýrslur.

 

  1. Breyting aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 vegna breytingar landnotkunar við Héðinsbraut á Húsavík.  Meginmarkmið tillögu að breytingu aðalskipulags er geta boðið upp á stærri lóð fyrir gistiheimili við Héðinsbraut. Skipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu er sett fram á einu blaði í stærð A2.
  2. Breyting deiliskipulags Höfðavegar.  Meginlínur skipulagsbreytingarinnar felast í sameiningu þriggja lóða við Héðinsbraut í eina, Héðinsbraut 13.  Skilgreindir eru byggingarskilmálar fyrir þá lóð þar sem horft er til byggingar gistiheimilis á tveimur hæðum.  Skipulagstillagan gerir einnig ráð fyrir stækkun lóða við Höfðaveg 6 og Héðinsbraut 3.  Skilgreindur er byggingaréttur við Héðinsbraut m.v. hugmyndir lóðarhafa að uppbyggingu safnahúss.  Skipulagstillagan felur í sér að Höfðavegur verði tengdur inn á Laugarbrekku austan Laugarbrekku 1. Skipulagstillagan ásamt greinargerð er sett fram á einu blaði í stærð A1.

 

Hér má nálgast uppdrátt af aðalskipulagsbreytingunni 

Hér má nálgast deiliskipulagstillöguna

 

 

Skipulagstillögurnar verða til sýnis á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 1. mars 2017 til og með 12. apríl 2017.  Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillögurnar á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is).  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með miðvikudeginum 12. apríl 2017.  Skila skal skriflegum athugasemdum til sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.