Tómstunda- og æskulýðsnefnd

Tómstunda- og æskulýðsnefnd 2. fundur tómstunda- og æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 14. febrúar 2011 og

Tómstunda- og æskulýðsnefnd

2. fundur tómstunda- og æskulýðsnefndar norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 14. febrúar 2011 og hófst hann kl. 13:00

Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Sigurgrímur Skúlason, Jóhann Rúnar Pálsson,

Fundargerð ritaði:  Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi

Dagskrá:

1.  201102058 - Búningsaðstaða íþróttavalla á Húsavík í kjallara Sundlaugar Húsavíkur
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd telur brýnt að farið verði í lágmarksframkvæmdir vegna búningsaðstöðu íþróttavallarins í Sundlaug Húsavíkur. Vísað er í greinargerð tómstunda- og æskulýðsfulltrúa frá 12. janúar 2011.
   
2.  201009063 - Gervigrasvöllur/sparkvellir
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd fór yfir stöðu mála. Einhugur er innan nefndarinnar um að farið verði í framkvæmdirnar.
   
3.  201012014 - Boð á Álaborgarleikana 2011
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til að ungum golfiðkendum bjóðist að fara á leikana. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að vera í samstarfi við Golfklúbb Húsavíkur vegna þessa.
   
4.  201011003 - Ósonering í Sundlaug Húsavíkur
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd er einhuga um að farið verði í ósoneringu í Sundlaug Húsavíkur. Nefndin leggur til við Bæjarráð að farið verði í framkvæmdina. Vísað er í greinargerð frá 10.nóv. 2010 og kostnaðaráætlun tómstunda- og æskulýðsfulltrúa.
   
5.  201006081 - Leikvellir í sveitarfélaginu Norðurþingi.
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd fór yfir skipulag leikvalla á Húsavík. Nefndin leggur til að leiksvæði verði endurskilgreint og fækkað úr 16 í 10.
Jafnframt leggur nefndin til að einn leikvöllur verði endurnýjaður ár hvert. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að vera í samstarfi við fullltrúa "Úti á Túni" vegna hugmynda að merkingu og kynningu á leikvöllum í sveitarfélaginu.
   
6.  201102059 - Heimöx, umsókn um styrk
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd samþykkir vinnuframlag af hálfu Vinnuskólans og felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa útfærslu málsins.
   
7.  201102057 - Styrkbeiðni 6. bekkjar Borgarhólsskóla vegna öskudags
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd samþykkir að fella niður leigugjald af íþróttahöllinni vegna öskudagsballs 6.bekkjar Borgarhólsskóla.
   
8.  201010096 - Ungmennaráð Norðurþings - erindisbréf
 Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðu mála. Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til að ungmennaráðið verði kynnt nú á vorönn og að kosið verði í ráðið í byrjun haustannar. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að fá skólana og hlutaðeigandi aðila til samstarfs og ákveða kjördag að haustinu.
   
9.  201102055 - Forvarnir í sveitarfélaginu
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd telur nauðsynlegt að mótuð verði forvarnarstefna með það í huga að samræma forvarnir og útvíkka hugtakið forvarnir þannig að það taki til fleiri þátta en vímuvarna, s.s. samskipti og netnotkun. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við hlutaðeigandi aðila.
   
10.  201102054 - Golfklúbbur Húsavíkur
 Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti málið.
   
11.  201102053 - Samningar vegna styrkveitinga íþrótta- og félagasamtaka.
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd setur sér að gera samninga við félagasamtök til lengri tíma með skýr markmið og samvinnu um verkefni.
   
12.  201102051 - Reglur um klæðaburð ungmenna, Samfés
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd tekur undir áhyggjur forsvarsmanna Samfés vegna klæðaburðar barna og unglinga á skemmtunum.
   
13.  201102050 - Málefni nýbúa og aðgengi að tómstundum, íþróttum og afþreyingu
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að fara í samstarf við Rauða kross Íslands, íþróttafélög og stéttarfélög með það í huga að upplýsa nýbúa um tómstundir, íþróttir og afþreyingu innan sveitarfélagsins.
   
14.  201102052 - Reglur um sundstaði/skíðasvæði
 Tómstunda- og æskulýðsnefnd fór yfir nýjar reglur er varða sundstaði.
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að skerpa reglur er varða skíðasvæði.
   
15.  200909078 - Kynning tómstunda- og æskulýðsfulltrúa
 Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðu mála innan málaflokksins.
   
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00

Póstlisti

headerheaderheaderheader