Æskulýðsnefnd 02.12.2008

Æskulýðsnefnd 02.12.2008   11. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 2. desember 2008 og hófst hann kl.

Æskulýðsnefnd 02.12.2008

 

11. fundur

æskulýðsnefndar norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

þriðjudaginn 2. desember 2008 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Erna Björnsdóttir, Ingólfur Freysson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Róbert Ragnar Skarphéðinsson, Jóhann Rúnar Pálsson, Hjálmar Bogi Hafliðason,

 

Fundargerð ritaði:  Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi

 

 

Dagskrá:

 

1.

200811083 - Áfangaskýrsla vegna aðalskipulags Norðurþings, ósk um athugasemdir.

 

Tryggt verði að nóg landrými sé í kringum íþróttasvæðin á Húsavík. Einnig að tjaldstæði bæjarins verði fundinn annar staður. Bent er á fyrirhugað framtíðarsvæði skíða og útivistarsvæðis verði við Reyðarárhnjúk.

 

 

 

2.

200811041 - Erindi vegna samstarfs sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

3.

200811084 - Ástandið í þjóðfélaginu, aðkoma æskulýðsnefndar vegna hugsanlegra úrræða innan sveitarfélagsins.

 

Almenn umræða um ástandið í samfélaginu.

 

 

 

4.

200811059 - Kvenfélag Húsavíkur-umsókn um styrk vegna þorrablóts

 

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkveitingu skv. fyrirliggjandi erindi.

 

 

 

5.

200811080 - Katrín Eymundsdóttir-Umsókn um styrk vegna Jökulsárhlaups 2009

 

Erindinu vísað til afgreiðslu styrkja árið 2009.

 

 

 

6.

200811086 - Skíðadeild Völsungs sækir um afnot af snjótroðara.

 

Nefndin leggur til að skíðadeildin fái afnot af gamla snjótroðaranum samkvæmt fyrirliggjandi erindi.

 

 

 

7.

200811058 - Opnunartími Sundlaugar Húsavíkur

 

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2009.

 

 

 

8.

200811087 - Erindi vegna gjaldtöku á nemendum FSH í sundlaug Húsavíkur.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar 2009.

 

 

 

9.

200811085 - Kynning á störfum æskulýðsfulltrúa.

 

Æskulýðsfulltrúi fór yfir helstu verkefni á æskulýðssviðinu.

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:25

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya