Æskulýðsnefnd

Æskulýðsnefnd 10. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 7. október 2008 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn

Æskulýðsnefnd

10. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 7. október 2008 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Erna Björnsdóttir, Birna Björnsdóttir, Ingólfur Freysson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Róbert Ragnar Skarphéðinsson, Jóhann Rúnar Pálsson,

Fundargerð ritaði:  Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi

Dagskrá:

1.

200810009 - Aðilar á vegum Mannvits mæta á fundinn!

Æskulýðsnefnd þakkar fulltrúum Mannvits fyrir nýjar og gagnlegar upplýsingar varðandi fyrirhugaðrar íþróttamannvirkjagerðar á Húsavík.

 

2.

200809142 - Umboðsmaður barna, upplýsingar um ungmennaráð

Lagt fram til kynningar og æskulýðsfulltrúa falið að svara erindinu.

 

3.

200809082 - Vegna þjálfunar Völsungs austan Húsavíkur

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja verkefnið til áramóta og mun taka ákvörðun vegna áframhaldandi styrkveitingar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009

 

4.

200808052 - Árni Björnsson, umsókn um styrk vegna íþróttaæfinga

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja Árna um 30 þús. krónur úr Afreks- og viðurkenningarsjóði Norðurþings.

 

5.

200808047 - Golfklúbbur Húsavíkur, umsókn um styrk f.h. Arnþórs Hermannssonar

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja Arnþór um 30 þús. krónur úr Afreks- og viðurkenningarsjóði Norðurþings .

 

6.

200809079 - Ósk um styrk vegna Öxarfjarðarskóla

Æskulýðsnefnd bendir á samþykkt 3.liðar í dagskránni og telur að þar sé komið til móts við þessa ósk. Æskulýðsfulltrúa er falin nánari útfærsla á erindinu.

 

7.

0810016 - Stefán Jón Sigurgeirsson. Umsókn um styrk

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja Stefán Jón um 120 þús. krónur úr Afreks- og viðurkenningarsjóði Norðurþings.

 

8.

200809089 - Heiðrún Sigurðardóttir-beiðni um styrk

Æskulýðsnefnd hafnar erindinu.

 

9.

200810010 - Launamál starfsmanna félagsmiðstöðva!

Lagt fram til kynningar.

 

10.

200810011 - Tækjakaup v.íþrótta-og golfvalla.

Lagt fram til kynningar.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya