
22. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn í grunnskólanum Raufarhöfn,miðvikudaginn 30. júní 2010 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Birna Björnsdóttir, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Jóhann Rúnar Pálsson,
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi
Dagskrá:
|
201006082 - Starfsemi Æskulýðsnefndar. |
||
|
Æskulýðsfulltrúi fór yfir starfsemi Æskulýðsnefndar. |
||
|
|
||
|
2. 201006078 - Sundlaug Húsavíkur 50 ára |
||
|
Nefndin fagnar þessum tímamótum. Forstöðumanni sundlaugarinnar falið að koma með tillögur að viðburði vegna þessa og bera undir æskulýðsfulltrúa. |
||
|
|
||
|
3. 201006080 - Sparkvellir á Kópaskeri og á Raufarhöfn! |
||
|
Æskulýðsnefnd er einhuga um að byggðir verðir sparkvellir á Kópaskeri og á Raufarhöfn. Nefndin felur æskulýðsfulltrúa að kanna kostnað við framkvæmdirnar og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar Norðurþings fyrir árið 2011. |
||
|
|
||
|
4. 201006079 - Íþróttamannvirkjagerð á Húsavík |
||
|
Ástand æfingarvallar á íþróttasvæði sveitarfélagsins á Húsavík er mjög slæmt eða jafnvel ónýtt fyrir knattspyrnu. Þörf er á úrbótum. Æskulýðsnefnd felur æskulýðsfulltrúa að kanna kostnað við endurnýjun. Nefndin er sammála um að framtíðaruppbygging skíðasvæðis sveitarfélagsins verði upp við Reyðarárbotna og leggur það til við sveitastjórn. |
||
|
|
||
|
5. 201006081 - Leikvellir í sveitarfélaginu Norðurþingi. |
||
|
Æskulýðsnefnd telur að opin leiksvæði séu mjög mikilvæg sem samkomustaður fyrir þá sem þeirra vilja njóta. Nefndin felur æskulýðsfulltrúa að taka út stöðu mála og koma með stutta greinargerð þar um. |
||
|
|
||
Æskulýðsnefnd fór og skoðaði íþróttamannvirki og félagsmiðstöð á Raufarhöfn eftir fund.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00



