Æskulýðsnefnd 28.01.09

Æskulýðsnefnd 28.01.09   13. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 28. janúar 2009 og hófst hann kl.

Æskulýðsnefnd 28.01.09

 

13. fundur

æskulýðsnefndar norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

miðvikudaginn 28. janúar 2009 og hófst hann kl. 16:00

 

 

Fundinn sátu:

Erna Björnsdóttir, Ingólfur Freysson, Róbert Ragnar Skarphéðinsson, Jóhann Rúnar Pálsson, Helena Eydís Ingólfsdóttir,

 

Fundargerð ritaði:  Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi

 

 

Dagskrá:

 

1.

200812088 - Menntamálaráðuneytið, Íþróttavakning framhaldsskólanna

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

2.

200901085 - Ósk um niðurfellingu sundlaugargjalds nemenda í nemendafélagi Framhaldsskólans á Húsavík.

 

Æskulýðsfulltrúa falið að ganga til samninga við nemendafélag FSH um niðurfellingu sundlaugargjalds í Sundlaug Húsavíkur á vorönn 2009. Samningur verður endurskoðaður fyrir næsta skólaár með tilliti til þátttöku nemenda.

 

 

 

3.

200901016 - Framtal sf.- Gjaldskrá vegna Stef-og Sfh.gjalda fyrir árið 2009

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

4.

200812045 - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, skýrsla v/fjármálastefnu

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

5.

200901051 - Alþýðusamband Íslands, Atvinnulausir og sundstaðir

 

Æskulýðsnefnd leggur til að atvinnulausir fái frían aðgang að sundstöðum sveitarfélagsins. Æskulýðsfulltrúa falin nánari útfærsla.

 

 

 

6.

200812073 - Kvenfélagið Stjarnan, Umsókn um styrk vegna þorrablóts á Kópaskeri 2009

 

Æskulýðsnefnd tekur jákvætt í erindið. Samþykkir styrk til Kvenfélagsins Stjörnunnar í formi niðurfellingar á húsaleigu í Pakkhúsinu á Kópaskeri.

 

 

 

7.

200901078 - Jóhann Kr. Gunnarsson-Umsókn um styrk til að sitja KSÍ VI námskeið í Englandi dagana 16-23 jan 2009

 

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja Jóhann Kristinn um 50 þús. krónur.

 

 

 

8.

200901084 - Knattspyrnuæfingar Völsungs Raufarhöfn/Lundur

 

Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 150 þús. krónur.

 

 

 

9.

200901083 - Fjárhagsáætlun æskulýðsnefndar.

 

Æskulýðsnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Æskulýðsnefnd leggur til að hækkun verði á gjaldskrá sundlauga þannig að stakur miði fari í 380 krónur, aðrir liðir gjaldskrár haldist óbreyttir. Æskulýðsnefnd samþykkir einnig að gjaldskrár sundstaða í sveitarfélaginu verði samræmdar.

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya