Æskulýðsnefnd Norðurþings

Æskulýðsnefnd Norðurþings 25. fundur æskulýðsnefndar norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 15. desember 2010 og hófst hann

Æskulýðsnefnd Norðurþings


25. fundur æskulýðsnefndar norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 15. desember 2010 og hófst hann kl. 15:30


Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Birna Björnsdóttir, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Jóhann Rúnar Pálsson,

Fundargerð ritaði:  Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi

Dagskrá:

1.  201009063 - Hugmyndir að byggingu gervigrasvallar á Húsavík.
 Æskulýðsnefnd þakkar fyrir góða greinargerð frá knattspyrnuráði og þjálfurum Völsungs. Nefndin tekur undir áhyggjur þær er fram koma í greinargerðinni. Gervigrasvöllur á Húsavík er eitt af forgangsverkefnum sveitarfélagsins í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
   
2.  201012046 - Björgunarsveitin Núpar, umsókn um styrk
 Æskulýðsnefnd samþykkir styrk að upphæð 50.000 krónur.
   
3.  201012037 - Skákfélagið Goðinn, umsókn um styrk
 Æskulýðsnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2011. Æskulýðsnefnd lýsir áhuga sínum fyrir eflingu skákkennslu í sveitarfélaginu.
   
4.  201012024 - Vinnumálastofnun, ósk um gjaldfrjáls afnot af íþróttamannvirkjum fyrir atvinnuleitendur
 Æskulýðsnefnd hafnar erindinu. Þar sem Vinnumálastofnun er opinber stofnun bendir Æskulýðsnefnd á þann möguleika að stofnunin geti samið um afsláttarkjör fyrir atvinnuleitendur.
   
5.  201012023 - Unnar Þór Garðarsson, umsókn um styrk vegna námskeiðs
 Æskulýðsnefnd samþykkir að styrkja Unnar Þór Garðarsson um 50.000 krónur.
   
6.  201012014 - Boð á Álaborgarleikana 2011
 Æskulýðsnefnd tekur jákvætt í erindið. Nefndin vísar erindinu beint til sveitarstjórnar til ákvörðunar.
   
7.  201011083 - Samanhópurinn, ályktun vegna skemmtana fyrir unglinga undir lögaldri
 Lagt fram til kynningar. Málið rætt og fjallað um ábyrgð foreldra og mikilvægi samveru þeirra með börnum sínum.
   
8.  201011049 - Snorraverkefnið, umsókn um styrk
 Æskulýðsnefnd synjar erindinu að þessu sinni.
   
9.  201011018 - Umhverfisstofnun vekur athygli á nýrri reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
 Æskulýðsfulltrúa falið að endurskoða verklagsreglur með tilliti til nýrrar reglugerðar um sundstaði. Æskulýðsnefnd felur æskulýðsfulltrúa að kynna nýja reglugerð fyrir fræðslu- og menningarnefnd.
   
10.  201010096 - Ungmennaráð Norðurþings - erindisbréf
 Æskulýðsnefnd leggur erindisbréf ungmennaráðs óbreytt fyrir sveitarstjórn og vísar í kostnaðaráætlun æskulýðsfulltrúa. Rétt er að benda á að fulltrúar koma úr grunnskólum sveitarfélagsins, Framhaldsskólanum á Húsavík og einn utan skóla.
   
11.  201010030 - Arnhildur Pálmadóttir og Sigríður Hauksdóttir - umsókn um styrk í lista og -menningarsjóð. Hugmyndasmiðja veturinn 2010-2011
 Æskulýðsnefnd fagnar þessu framtaki og frumkvæði aðstandenda Hugmyndasmiðjunar. Nefndin hvetur Hugmyndasmiðjuna til að útfæra hugmyndina víðar í sveitarfélaginu.  Æskulýðsnefnd samþykkir styrk upp á 100.000 krónur.
   
12.  200909078 - Kynning Æskulýðsfulltrúa
 Æskulýðsfulltrúi fór yfir starfssvið sitt og helstu verkefni ársins.
 
Æskulýðsnefnd óskar bókað: Æskulýðsnefnd kann æskulýðsfulltrúa bestu þakkir fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins.
   
13.  201012049 - Frístundakort
 Æskulýðsfulltrúa falið að útfæra hugmyndina og gera kostnaðaráætlun vegna frístundakorts barna og unglinga.
   
14.  201012066 - Skotfélag Húsavíkur, ósk um styrk vegna tækja kaupa
 Æskulýðsnefnd tekur jákvætt í erindið. Vegna styrks á árinu 2010 er erindinu vísað til Byggðarráðs en styrkveitingu 2011 vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2011.
   
15.  201010097 - Fjárhagsáætlun Æskulýðsnefndar
 Æskulýðsnefnd fór yfir fjárhagsáætlun 2011 og óskar eftir því við Byggðarráð að fjárhagsrammi málaflokks íþrótta- og æskulýðsmála verði hækkaður úr 125 milljónum í 138 milljónir. Vísað er í greinargerð æskulýðsfulltrúa vegna þessa.
   

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya