Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Lilja Skarphéðinsdóttir, Jóhann Rúnar Pálsson,
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson, Æskulýðsfulltrúi
Dagskrá:
|
201009057 - Sundlaug Húsavíkur, Árni Bergmann með kynningu á ósoneringu. |
||
|
Árni Bergmann og Rögnvaldur Guðmundsson frá fyrirtækinu Raf á Akureyri komu á fundinn og kynntu tæki og tækni til ósoneringar. Sveinn Rúnar Arason frá Sundlaug Húsavíkur kom einnig á fundinn. Æskulýðsnefnd þakkar fyrir greinagóða kynningu. |
||
|
|
||
|
2. |
201009067 - Sundstaðir í Norðurþingi. |
|
|
Æskulýðsfulltrúa falið að tryggja að reglugerðum varðandi mælingar og skráningar, sem og öðrum reglugerðum er um sundstaði gilda, sé fylgt eftir í hvívetna. |
||
|
|
||
|
3. |
201009061 - Leikvellir í Norðurþingi-útekt |
|
|
Æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðu mála vegna úttektar á leikvöllum. Gögn verða send nefndarmönnum er úttekt lýkur. |
||
|
|
||
|
4. |
201009064 - Stofnun ungmennaráðs Norðurþings - markmið og leiðir |
|
|
Æskulýðsfulltrúa falið að semja drög að erindisbréfi fyrir Ungmennaráð Norðurþings. |
||
|
|
||
|
5. |
201009066 - Ungmennahúsið Tún. Kynning á framkvæmdum. |
|
|
Æskulýðsfulltrúi kynnti fyrirhugaða starfssemi í Túni. Æskulýðsnefnd fagnar því að Ungmennahúsið Tún sé komið í notkun og lýsir yfir ánægju með störf þeirra sem að málinu koma. |
||
|
|
||
|
6. |
201009065 - Kynning á forvarnarmálum. |
|
|
Æskulýðsfulltrúi fór yfir skipan mála í forvarnarmálum innan sveitarfélagsins. Ingólfur Freysson sagði frá forvarnarsamning Íþróttafélagsins Völsungs og Framhaldsskólans á Húsavík. Æskulýðsnefnd telur brýnt að forvarnarmálum sé sinnt af einurð og alúð. |
||
|
|
||
|
7. |
201009063 - Hugmyndir að byggingu gervigrasvallar á Húsavík. |
|
|
Æskulýðsnefnd leggur það til við Byggðaráð að ástand efri vallar verði kannað og kostnaðaráætlun gerð með uppbyggingu gervigrasvallar í huga. |
||
|
|
||
|
8. |
201009062 - Undirbúningur vegna byggingar sparkvalla á Raufarhöfn og á Kópaskeri. |
|
|
Æskulýðsnefnd leggur það til við Byggðaráð að gerð verði kostnaðaráætlun vegna byggingar sparkvalla á Kópaskeri og á Raufarhöfn. Æskulýðsfulltrúa falið að fá ungmennafélögin Snört og Austra til samstarfs. |
||
|
|
||
|
9. |
201009014 - Mfl. Völsungs í knattspyrnu, framtíðarsýn |
|
|
Æskulýðsnefnd leggur til við Byggðaráð að Íþróttafélaginu Völsungi verði veittur fjárstyrkur að upphæð 1.500.000 krónur. Styrkurinn verði skilyrtur við rekstur meistaraflokka félagsins á yfirstandandi rekstrarári. |
||
|
|
||
|
10. |
201007035 - Icefitness ehf. ósk um styrk vegna skólahreysti |
|
|
Æskulýðsnefnd hafnar erindinu. |
||
|
|
||
|
11. |
201009082 - Styrkumsókn. Sigurður Unnar Hauksson |
|
|
Æskulýðsnefnd óskar Sigurði Unnari til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í skeet-leirdúfuskotfimi. Æskulýðsnefndin styrkir Sigurð Unnar um 30.000 krónur. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00



