Bæjarráð

Bæjarráð 29. fundur bæjarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 10. nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn sátu: Jón

Bæjarráð

29. fundur
bæjarráðs Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 10. nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra

Dagskrá:

1.  201105060 - Sorpsamlag Þingeyinga, fundagerðir ársins 2011
 Fyrir bæjarráði liggur fundargerð Sorpsamlags Þingeyinga.  Fundargerðin lögð fram til kynningar.
   
2.  201111018 - Grænuvellir - ósk um aukið stöðuhlutfall vegna stuðnings við nemendur.
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem vísað var til bæjarráðs frá 9. fundi fræðslu- og menningarnefndar.  Erindið er ósk skólastjóra leikskólans á Grænuvöllum um aukið stöðuhlutfall vegna stuðnings við nemendur.
 
Eftrifarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
Skólastjóri óskar eftir auknu stöðuhlutfalli vegna frekari stuðnings við nemendur á Grænuvelli.
Fræðslu- og menningarnefnd óskar eftir við bæjarráð að úthluta viðbótarfjárframlagi að upphæð kr. 495.000.- vegna ársins 2011.
 
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
   
3.  201111030 - Hagstofa Íslands undirbýr töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Hagstofu Íslands en þar kemur fram að stofnunin er að undirbúa töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011.  Manntalið mun fylgja evrópskum reglum, sbr. reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 763/2008, sem hefur verið tekið upp í EES samninginn með samþykkt sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 54/2009 frá 24. apríl 2009.
Manntalið mun gefa upplýsingar um íbúafjöldamenntun, atvinnuþátttöku og stöðu mannfjöldans á vinnumarkaði, sem og um fjölskyldur og heimili.  Auk þess verða birtar í fyrsta skipti í 50 ár áreiðanlegar og yfirgripsmiklar tölur um húsnæði landsmanna, fjölda íbúða, sumarhúsa, íbúðarhúsnæði sem stendur autt og annað um húsnæðisaðstæður landsmanna miðað við 31. desember næst komandi.  Nær allar þessar upplýsingar verða birtar fyrir hvert og eitt sveitarfélag en ekki aðeins stærri landsvæði.
Til þess að tölur um búsetu á Íslandi verði sem sambærilegastar erlendum tölum mun Hagstofan telja fólk til heimilis þar sem það býr að staðaldri, fremur en þar sem það er skráð til lögheimilis.  "Að staðaldri" þýðir meðal annars búseta þar sem viðkomandi hefur búið í a.m.k. 12 mánuði á manntalsdegi (31. desember 2011) eða gert ráð fyri að hann eða hún búi þar í a.m.k. 12 mánuði.
Þar sem nokkuð vantar upp á að hægt sé að ákvarða búsetu alla eintaklinga allra eintaklinga með hjálp íbúaskrár Þjóðskrár íslands mun Hagstofan fara þess á leit við sveitarfélögin að þau veiti henni nokkrar upplýsingar til viðbótar.  Listi verður sendur út til athugunar og leiðréttingar í lok nóvember n.k.
Þar sem Hagstofan gerir ráð fyrir að töluverð vinna geti legið að baki því að senda leiðréttan lista til baka mun hún koma til móts við þann kostnað með föstu framlagi eftir umfangi.
Hagstofan fær uplýsingar um leigjendur úr Þinglýsingarskrá en þar sem ekki þarf að þinglýsa vegna húsaleigubóta í félagslega húsnæðiskerfinu vantar upplýsingar um þann hluta leigumarkaðarins.  Sömuleiðis eru ekki til gögn um heimilislaust fólk sem sveitarfélögin hafa auga með.  Sérstök beiðni til félagsmálastjóra sveitarfélagsins verður send vegna þessa í lok nóvember.
Það er von Hagstofunnar að Norðurþing muni taka vel í þessa beiðni.  Vel heppnað manntal mun ekki aðeins verða að töflum í hagtölum, heldur verður það ómetanlegt gagn í allri starfsemi sveitarfélaganna og grunnur að áætlanagerð og ákvarðanatöku fyrir þau, ríkisvaldið, fyrirtæki og íbúana sjálfa.
 
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina og felur fjármálastjóra framgang málsins.
   
4.  201111026 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Gamla Bauk á Húsavík
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Sýslumanninum á Húsavík þar sem óskað er umsagnar vegna leyfisveitingar til handa Gamla Bauk á Húsavík.  Gamli Baukur ehf, á Húsavík sækir um endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga á Gamla Bauk og Raggabar sem rennur út 30. nóvember n.k.  Rekstrarleyfi, veitingastaður:  flokkur III.
Samkvæmt 10.gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 85/2007 og 23. gr. reglugerðar nr. 585/2007 er óskað umsagnar bæjarstjórnar um umsókn þessa.
 
Bæjarráð veitar jákvæða umsögn hvað varðar leyfi fyrir Gamla Bauk að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri hið sama.  Bæjarráð leggst gegn veitingu rekstrarleyfis fyrir Raggabar þar sem húsnæði er á stöðuleyfi og uppfyllir ekki nauðsynleg skilyrði að mati bæjarráðs.  Einnig skal þess getið að í drögum að nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir að húsið verði fjarlægt.
   
5.  201111016 - 790. fundur stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga ásamt fundargerðum samráðsfunda
 Fyrir bæjarráði liggur fundargerð 790. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.  Fundargerðin lögð fram til kynningar.
   
6.  201111046 - Álagning gjalda Norðurþings árið 2012
 Bæjarráð tók til umræðu fyrirliggjandi álagningu gjalda.  Um er að ræða eftirfarandi gjaldaliði:
Útsvar, fasteignaskatt ( A, B og C flokk ), lóðaleigu 1 og 2, vatnsgjald ( A, B og C flokk ), holræsagjald ( A, B og C flokk ), seyru- og sorpgjöld ársins 2012.
 
Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund.
   
7.  201109023 - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012
 Bæjarráð tók til umræðu fjárhagsáætlun ársins 2012.  Fyrir liggur greinagerðir allra málaflokka A - hluta en þar er gerð grein fyrir útgönguspá ársins 2011 ásamt fjárhagstillögum fyrir árið 2012.  Áfram verður unnið í fjárhagsáætluninni á þeim tekjuforsendum sem þegar hafa verið gefnar út. 
 
Fjárhagsáætlun ársins 2012 verður lögð fram á næsta fundi bæjarráðs til afgreiðslu.
   
8.  201107033 - Smábátahöfn Raufarhöfn
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem vísað var til bæjarráðs frá 12. fundi framkvæmda- og hafnanefndar.  Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar.
 
Lögð fram kostnaðar- og verkáætlun vegna viðgerðar á flotbryggju á Raufarhöfn frá Erlendi Bogasyni, kafara. 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að ráðast í verkið, sem er mjög brýnt, og sækir um aukafjárveitingu til bæjarráðs vegna framkvæmdarinnar.
 
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu allt að 1.500.000.- til verkefnisins.
   
9.  201110054 - Sigursveinn Hreinsson f.h. Múra ehf. óskar erftir kaupum á húsinu að Höfða 1
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem áður var tekið fyrir og vísað til umsagnar í framkvæmda- og hafnanefnd.  Nú liggur fyrir afgreiðsla nefndarinnar sem tekin var fyrir á 12. fundi hennar. 
 
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
Sigursveinn sendi erindi f.h. Múra ehf. þar sem fram kom ósk um viðræður um kaup á húseigninni Höfða 1 á Húsavík.  Bæjarráð beindi því til framkvæmda- og hafnanefndar að gera úttekt á húseigninni og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um sölu eignarinnar.  Umsjónarmaður fasteigna gerði grein fyrir úttekt sem hann gerði á eigninni.
Framkvæmda- og hafnanefnd felur umjónarmanni að láta gera eignaskiptasamning og leggur til við bæjarráð að eignin verði auglýst til sölu.
 
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya