Bæjarráð Norðurþings

Bæjarráð Norðurþings 12. fundur bæjarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 13. apríl 2011 og hófst hann kl.

Bæjarráð Norðurþings

12. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 13. apríl 2011 og hófst hann kl. 19:00


Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Olga Gísladóttir, Gunnlaugur Stefánsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra

 

Dagskrá:

1.  201104064 - Eff ehf-Varðar: Rekstur EFF og samninga um endurskipulagningu
 Fyrir bæjarráði liggur bréf frá Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. og varðar rekstur og samninga um endurskipulagningu.  Í bréfi frá félaginu kemur fram að tveir sérfræðingar frá Capacent ráðgjöf hafi aðstoðað við undirbúning að samningaviðræðum við lánadrottna.  Einnig lá fyrir ákvörðun hluthafa, frá hluthafafundi í desember 2010, að heimila stjórn að ráða sérstakan sérfræðing til að leiða samningaviðræður.  Nú liggja fyrir niðurstöður og er stefnt að því að halda kynningarfund í seinnihluta maí mánaðar.  Bæjarráði mun berast fundarboð fljótlega. 
   
2.  201104063 - Veiðifélag Litlárvatna-Aðalfundarboð
 Fyrir bæjarráði liggur aðalfundarboð og dagskrá Veiðifélags Litlárvatna sem fram fer í Keldunesi, laugardaginn 23. apríl n.k. og hefst fundurinn kl. 10:00.  Bæjarráð felur Guðbjarti Ellert Jónssyni að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundinum og Þráinn Gunnarsson til vara.
   
3.  201104057 - Norðursigling, ósk um langtímaleigu eða kaup á Flókahúsi, Húsavík
 Fyrir bæjarráði liggur erindi Þorsteins Jóhannessonar, rekstrarstjóra, f.h. Norðursiglingar þar sem óskað er eftir langtímaleigu eða kaupum á Flókahúsi sunnan Raggaskúrs. Í erindinu kemur fram að Norðursigling er reiðubúin að gera húsið upp í samræmi við ríkjandi deiliskipulag. Hugmyndin er að nota húsið sem bátageymslu, starfsmannaaðstöðu, kaffiaðstöðu, geymslu og þvottahús fyrir hlífðarfatnað og búnað farþega. Um er að ræða um 500 yfirhafnir og á þriðja tug báta ( björgunarbátar, léttbátar og aðrir minni bátar). Þessari aðstöðu er nú mjög ábótavant hjá félaginu enda er starfseminni dreift á 7 staði í bænum og því fylgir mikið óhagræði. Flókahúsið stendur svo gott sem beint upp af bryggju þeirri sem Norðursigling hefur haft til afnota undanfarin ár og hentar því starfseminni afar vel.
Norðursigling er með starfsemi á Húsavík allt árið um kring þar sem um 15 manns vinna yfir vetrartímann en allt að 100 manns yfir sumartímann í 75 stöðugildum. Ársstörf eru 34,6.

Bæjarráð fagnar aukinni eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði á Hafnarstéttinni. Þar sem bæjarráð hefur nú þegar til meðferðar erindi frá öðrum aðili, sem tekið var fyrir á 10. fundi bæjarráðs þann 31. mars s.l., um sömu eign liggur fyrir að kanna hvort samningar náist við þann aðila um umrætt húsnæði. Bæjarráð frestar því afgreiðslu erindisins. Bæjarráð bendir þó bréfritara á að umsóknaraðili á og hefur byggingarétt á eign sinni við Svartabakka.
   
4.  201104056 - Bréf Framsýnar stéttarfélags til innanríkisráðherra varðandi breytingar á reglugerð um dómþinghár og þingstaði
 Fyrir bæjarráði liggur bréf sem Framsýn - stéttarfélag Þingeyinga sendi innanríkisráðuneytinu þar sem fram koma athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á reglugerð um dómþinghár og þingstaði, nr. 395 frá 29. júní 1998, sbr. reglurgerð nr. 1109/2010.  Með breytingunni mun reglulegt dómþing leggjst af á Húsavík og flytjast alfarið til Akureyrar sem felur í sér verulegt óhagræði og kostnaðarauka fyrir íbúa og stofnanir svæðisins.
Bæjarráð tekur heilshugar undir athugasemdir og ábendingar stéttarfélagsins Framsýnar.
   
5.  201104077 - Impra, vöruþróunarverkefni á norðausturlandi
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Impru um vöruþróunarverkefni á Norðausturlandi. Matís er að undirbúa vöruþróunarverkefni á Norðausturlandi þar sem áhersla verður lögð á gæði og hollustu. Lagt er upp með að verkefnið verið unnið í samvinnu við matarklasann Þingeyska matarbúrið. Búið er að ná samkomulagi við Viðbót um að nýta stóreldhúsið hjá þeim undir "matarsmiðju" og aðilar frá Úti á Túni munu verða innan handa varðandi hönnun umbúða og kynningarefnis. Hluti af verkefninu felst í uppsetningu "heimamarkaðsverslunar" á Húsavík og er því verið að kanna hvort áhugi sé hjá sveitarfélaginu að koma að þessu verkefni og styðja það með því að ljá húsnæði undir slíka verslun.

Vonast er til að hægt verði að setja verslunina á fót fyrir sumarið.

Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um erindið.
   
6.  201104074 - Breytingar á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Lífeyrissjóði starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar.  Óskað er eftir samþykki sveitarfélagsins á breytingum á samþykktum lífeyrissjóðsins. 
 
Samkvæmt 25. grein samþykkta Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar eru allar breytingar á þeim háðar samþykki bæjarstjórnar Norðurþings og starfsmannafélags Húsavíkurkaupstaðar.  Breyttar samþykktir taka þá fyrst gildi þegar fjármálaráðuneytið hefur staðfest þær.
Á fundi stjórnar sjóðsins Þann 22. fyrra mánaðar voru  samþykktar meðfylgjandi tillögur framkvæmdastjóra, dags. 21. mars 2010, um breytingar á samþykktum hans.  Ennfremur fylgir hjálögð greinargerð framkvæmdastjóra, dags. 7. apríl sl. til frekari skýringar á tillögu um breytingu á grein 22.2.
 
Ársfundur lífeyrissjóðsins hefur verið ákveðinn 24. maí n.k. og er mikilvægt að svar liggi fyrir vel fyrir þann tíma.
 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi breytingatillaga að samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar verði samþykktar.
   
7.  201104070 - Afrit af bréfi Gestahus cottages.is ehf til OH varðandi Kaldbakstjarnir
 Fyrir bæjarráði liggur afrit af bréfi sem Snædís Gunnlaugsdóttir, f.h. Gestahus cottages.is ehf, sendi stjórn Orkuveitu Húsavíkur.  Erindið er lagt fram til kynningar.
   
8.  201104068 - Úthlutun menningarstyrkja Eyþings 2011 og samstarfssamningur sveitarfélaga um menningarmál
 Fyrir bæjarráði liggur boðsbréf Menningarráðs Eyþings vegna úthlutunar á verkefnastyrkjum sem fram fer í sjöunda sinn.  Úthlutað verður í Hótel Reynihlíð í Mývantssveit mánudaginn 18. apríl n.k. kl. 15:00.   Erindið lagt fram til kynningar.
   
9.  201101071 - Fundargerðir Orkuveitu Húsavíkur ehf 2011
 Fyrir bæjarráði liggja fundargerðir Orkuveitu Húsavíkur til kynningar.
   
10.  201104067 - Ósk um styrk vegna útvarpssendinga úr Túni, Húsavík
 Fyrir bæjarráði liggur beiðni Guðna Bragasonar og Sigríðar Hauksdóttur um styrk til að hefja útvarpsútsendingar í Túni.  Fyrirhugað er að senda út einu sinni í viku og endurtaka þá dagskrá eftir hádegi á laugardegi.  Hugsanlega er mögulegt að útvarpa frá bæjarstjórnarfundum eða öðrum viðburðum í sveitarfélaginu.  Fyrirhugað er að bjóða upp á námskeið fyrir unglingastigið í Borgarhólsskóla og nemendur FSH í útvarpsfræðum.
Þar sem útvarp var rekið á sínum tíma á Húsavík liggur fyrir að eitthvað af búnaði er til en töluvert þarf að endurbæta og laga til að hægt verði að hefja útvarpsrekstur að nýju.  Það er von bréfritara að sveitarfélagið getir komið að þessu verkefni með styrk.
 
Bæjárráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að leggja verkefninu til 100.000.- króna fjárstyrk.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:05




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya