
24. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 15. september 2011 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Trausti Aðalsteinsson, Olga Gísladóttir, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert
Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201108050 - Erindi frá hljómsveitinni Skálmöld
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá
Snæbirni Ragnarssyni f.h. hljómsveitarinnar Skálmöld.
Hljómsveitin réðst í það verkefni að gefa út "almennilega" plötu, en slíkt verkefni er ekki ódýrt og
því ekki undarlegt að lítt þekktar sveitir kjósi að fara aðrar leiðir, oft sættir fólk sig við eitthvað minna en það
besta. Eðlilega já, en þetta verður oft banabiti, útkoman verður ekki alveg sú sem ætlast var til og það eyðileggur bæði
ánægju þeirra sem hlusta og slekkur eldmóð listamannanna.
Með þessa vitneskju (og nokkur kíló af biturri reynslu fyrri verkefna kannski ) í bakbokanum réðs hljómsveitin í þetta allt of
stóra verkefni. Hljómsveitin þurfti peninga, allgóða summu, og það strax. Á stuttum fundi hljómsveitarmeðlima var lagt á
ráðin og stefnan varð strax mjög skýr, sem Þingeyingar hlaut fyrsta val að leita á heimaslóðir. Hljómsveitarmeðlimir leituðu til
fyrirtækja og stofnana sem tók erindi þeirra vel og var gatan greið. Eldmóður hljómsveitarmanna jókst enn frekar og því var hægt
að halda áfram og gefa út plötu. Þetta setti tóninn fyrir hljómsveitina Skálmöld því síðan hefur hún hvergi
slegið af. Platan "Baldur" er sennilega söluhæsta plata Íslandssögunnar í sínum geira, hún hefur nú þegar verið gefin út um
allan heim og að baki eru þrjár tónleikaferðir til útlanda, auk fjölmargra tónleika hér heima. Framundan er mánaðarlangur
Evróputúr, "Heidenfest" með erlendum böndum sem sum hver eru með stærri nöfnun innan sömu tónlistarstefnu og Skálmaldar.
Nú kann það að hljóma svo að hljómsveitin sé farin að græða stórfé á uppátækinu. Staðreyndin er hins vegar sú að það hallar mjög í hina áttina. Þegar hljómsveit hyggst skapa sér nafn á erlendri grundu er það þolinmæðisverk og lítið í spilunum fjárhagslega. Staðsetning hljómsveitarinnar hér uppi á Íslandi hjálpar heldur ekki til, ferðalögin eru stór biti. Þó stutt sé við bakið á hljómsveitinni er ljóst að endar ná ekki saman. Ekki er það ætlun hljómsveitarinnar að gefast upp - Ó nei, ekki frekar en áður.
Þó svo að það sé aldrei gaman að biðja um fjárframlög ætlum við að láta á það reyna og snúa okkur á ný þangað sem hjartað slær. Því er þetta erindi eitt af þó nokkrum sem við höfum sent stjórnendum fyrirtækja í Norðurþingi með von um fjárhagslegan stuðning. Í skiptum fyrir fjárstuðning ætlum við ekki að lofa neinu öðru en að reyna að vera okkar heimaslóð til sóma eftirleiðis sem hingað til.
Bæjarráð þakkar fyrir greinagott erindi og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
2. 201109032 - Grænuvellir - umsókn um aukningu á stöðuhlutfalli vegna stuðnings
Fyrir bæjarráði liggur erindi sem
var vísað til afgreiðslu frá fræðslu- og menningarnefnd. Í erindinu, sem kemur frá leikskólastjóra Grænuvalla, er farið
fram á aukafjárveitingu að upphæð 990.000.- krónur vegna aukins stuðnings við nemanda. Fræðslu- og menningarnefnd leggur til við
bæjarráð að veita aukafjárveitinguna sem er fyrir árið 2011.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi beiðni.
3. 201109038 - 137. fundur Heilbrigðisnefndar norðurlands eystra
Fyrir bæjarráð liggur fundargerð 137. fundar Heilbrigðisnefndar
norðurlands eystra. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4. 201106039 - PCC - Iðnaðarstarfsemi á Bakka
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, fór yfir og kynnti
lokadrög að viljayfirlýsingu milli PCC og sveitarfélagsins Norðurþings vegna orkufreks iðnaðar á Bakka. Um er að ræða
kísilverksmiðju með allt að 66 þúsund tonna ársframleiðslu. Í viljayfirlýsingunni kemur fram hvernig framkvæmd skuli
áræðanleikakönnun á hinum ýmsu þáttum er varðar fyrirhugaða starfsemi. Þeir þættir sem verða skoðaðir eru,
lóð, vegur milli iðnaðarsvæðis og hafnarsvæðis, vatnsveita, hitaveita, fráveita, nauðsynleg hafnaraðstaða, athafnasvæði við
höfn og samfélagsgreining á áhrifum starfseminnar á samfélagið. Viljayfirlýsing þessi gildir til 1. maí 2012 þá á
greiningu á þessum þáttum að vera lokið.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi viljayfirlýsingu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi drögum að lóðaleigusamning til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
5. 201109023 - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012
Fyrir bæjarráði liggur vinnutilhögun að
fjárhagsáæltunargerð ársins 2012 ásamt tekjugreiningu ársins 2011. Bæjarstjóri fór yfir og kynnti vinnutilhögun vegna
fjárhagsáætlunargerðar ársins 2012. Bæjarráð samþykkir vinnutilhögunina og felur bæjarstjóra að koma henni
áfram til ráða og nefnda ásamt því að kynna hana stjórnendum stofnana sveitarfélagsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50



