06.júl.12 | 11:00
48. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
6. júlí 2012 og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Guðbjartur Ellert Jónsson, Hilmar Dúi
Björgvinsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra.
Dagskrá:
1. 201206067 - Fjárlaganefnd Alþingis óskar eftir viðbrögðum
við breyttum áherslum við fjárlagagerð
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá fjárlaganefnd Alþingis
vegna fyrirhugaðra breytinga á vinnutilhögun við gerð fjárlagagerðar. Breytingin felur m.a. í sér auknar áherslur á
fjármálaleg samskipti aðila. Hafi sveitarfélagið athugasemdir við þær áherslur sem lagðar eru til eða óski eftir frekari
áherslum þá vinsamlega komi það þeim á framfæri.
Bæjarráð telur ekki rétt að fjárlaganefnd setji skorður á þau málefni sem fulltrúar
sveitarfélaganna vilja koma á framfæri.
2. 201206088 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um
umsögn vegna leyfisveitingar til handa Sigríði K. Hjálmarsdóttur f.h. Heiðarbær, veitingar sf.
Fyrir bæjarráði liggur ósk Sýlumannsins á
Húsavíkur um umsögn vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi til handa Sigríði K. Hjálmarsdóttir, f.h. Heiðarbæjar.
Endurnýjun nær til rekstrarleyfis til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því gefnu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri
slíkt hið sama.
3. 201206052 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um
umsögn vegna leyfisveitingar til handa Sigrúnu Ingvarsdóttur f.h. Blómsins ehf.
Fyrir bæjarráði liggur ósk Sýslumannsins á
Húsavík um umsögn vegna veitingu tækifærisleyfis til handa Sigrúnu Ingvarsdóttir, f.h. Blómsins ehf. Um er að ræða
sölutjald staðsett á Hafnarstétt yfir Mærudaga 2012.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins þar til verkefnastjórn Mærudaga hefur lagt fram endanlega tillögu um
söluaðila með skammtíma vínveitingaleyfi.
4. 201206059 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um
umsögn vegna leyfisveitingar til handa Þóru Sigurðardóttur f.h. Food Corporation ehf

Húsavík um umsögn vegna veitingu tækifærisleyfis til handa Þóru Sigurðardóttir, f.h. Food Corporation ehf. Um er að ræða

5. 201204031 - Umhverfisráðuneyti-Ósk um umsögn vegna reglugerðar
um verndun Mývatns og Laxár.
Fyrir bæjarráði liggur umsögn vegna reglugerðar um verndun
Mývatns og Laxár.
Tekin eru fyrir að nýju drög að reglugerð um verndun Mývatns og Laxár dagsett 22. júní s.l.
Í breyttum drögum hefur að hluta til verið tekið tillit til athugasemda sem komið hafa fram frá
sveitarstjórnarmönnum í Þingeyjarsýslu. Bæjarráð gerir þó eftirfarandi athugasemdi, sem er í samræmi við
athugasemd sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar, við 11. gr. reglugerðarinnar,
Veiðar á tegundum sem hafa skaðleg áhrif, þar sem segir:
”Umhverfisstofnun skal vinna í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög sérstaka aðgerðaráætlun um
veiðar á tegundum sem geta haft skaðleg áhrif á verndarstöðu fuglalífs á verndarsvæðinu. Áætlunin skal unnin í
samráði við Náttúrurannsóknarstöðina við Mývatn, Náttúrufræðistofnun Íslands og umráðamenn
landareigna sem ekki eru í ríkiseigu, og með hliðsjón af niðurstöðum viðeigandi rannsókna á svæðinu.
Aðgerðaráætlunin skal vera tímabundin og skal endurskoða hana a.m.k. samhliða verndaráætlun og ætíð ef forsendur
aðgerðaráætlunarinnar breytast. Aðgerðaráætlunarinnar skal ætíð getið í verndaráætlun“.
Bæjarráð Norðurþings setur sem skilyrði að nefnd aðgerðaráætlun liggi fyrir áður en
reglugerðin verði staðfest. Einnig telur bæjarráð nauðsynlegt að skýrar sé kveðið á um vargeyðingu í 9. gr.
reglugerðarinnar.
Takmörkun á veiðum á verndarsvæðinu, þar sem segir:
”Óheimilt er að skjóta endur á verndarsvæðinu og gildir bannið jafnt um allar tegundir. Ekki er um að ræða
aðrar sérstakar takmarkanir á veiðum á grundvelli verndunar svæðisins, sbr. 10. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum
og villtum spendýrum, og fer um veiðar að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga nr. 64/1994 og reglugerða settra á grundvelli
laganna“.
Bæjarráð Norðurþings telur mikilvægt að fyrir liggi hver er fjárhagslega ábyrgur fyrir framkvæmd
verndaráætlunarinnar og aðgerðaráætlunarinnar.
Að öðru leyti vísar bæjarráð Norðurþings til fyrri athugasemda sem ekki hefur verið tekið tillit til í
breyttum drögum.
6. 201205059 - Golfklúbburinn Gljúfri, umsókn um styrk
Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á fundi
tómstunda- og æskulýðsnefndar og vísað til afgreiðslu að hluta í bæjarráði. Erindið er styrkbeiðni
Golfklúbbsins Gljúfra.
Eftirfarandi er afgreiðsla æskulýðs- og tómstundanefndar:
"Golfklúbburinn Gljúfri sækir um styrk að upphæð 1.000.000 króna. Tómstunda- og æskulýðsnefnd
samþykkir að veita styrk að upphæð 350.000 krónur og felur jafnframt tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að senda styrkbeiðnina
áfram til bæjarráðs með greinargerð".
Bæjarráð hafnar erindinu en bendir aðilum á að koma styrkbeiðninni á framfæri við gerð
fjárhagsáætlunar ársins 2013 hjá tómstunda- og æskulýðsnefnd.
7. 201004060 - Slökkvilið Húsavíkur
Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir í framkvæmda-
og hafnanefnd og vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
Eftirfarandi er afgreiðls framkvæmda- og hafnanefndar:
"Farið yfir málefni slökkviliðanna í Norðurþingi.
F&H nefnd samþykkir eftirfarandi tillögu í
fjórum liðum:
1) Farið verði í stefnumótunarvinnu fyrir slökkviliðin í Norðurþingi með það að markmiði að
einn slökkviliðsstjóri verði starfandi í sveitarfélaginu með þrjá útkallsstaði.
2) Gerð verður fimm ára áætlun um endurnýjun búnaðar.
3) Við gerð fjárhagsáætlunar verði sérstaklega veitt fé til málaflokksins.
4) Nefndin óskar eftir aukafjárveitingu að upphæð 4 milljónir til bæjarráðs nú þegar.
Nefndin felur Þránni Gunnarssyni,
Jóni Grímssyni og Áka Haukssyni ásamt slökkviliðsstjóra og varaslökkviliðsstjóra á
Húsavík að vinna drög að stefnumótun er varðar brunamál í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi beiðni um fjárframlag til Slökkviliðs Norðurþings að upphæð 4
milljónir króna.
8. 201201035 - Mötuneyti Borgarhólsskóla 2012
Fyrir bæjarráði liggur erindi vegna mötuneytis við
Borgarhólsskóla sem tekið hefur verið fyrir á fundi framkvæmda- og hafnanefndar.
Eftirfarandi eru afgreiðsla framkvæmda og hafnanefndar:
"Fyrir fundinum lá tilboð frá "basalt arkitektar" í hönnun nýs eldhúss við Borgarhólsskóla.
Framkvæmda- og hafnanefnd áréttar að ekki hafi verið samþykkt að ráðast í verkið og ekki veitt fé
til þess.
Nefndin óskar eftir að bæjarráð veiti fé til hönnunar nýbyggingarinnar og breytinga á eldra húsi."
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi beiðni um fjárframlega til hönnunar á nýbyggingu undir mötuneyti við
Borgarhólsskóla að upphæð 1.800.000.- fyrir utan vsk.
9. 201206085 - 144. fundur Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra,
ásamt ársreikningi
Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð Heilbrigðisnefndar
Norðurlandssvæðis eystra.
Meðfylgjandi fundargerðinni er ársreikngur ársins 2011 ásamt kostnaðarskiptingu ársins 2012.
Fram kemur í meðfylgjandi gögnum að rekstur eftirlitsins reyndist u.þ.b. 5% undir áætlun og koma þeir fjármunir
til frádráttar á greiðsluáætlun yfirstandandi árs.
Lagt fram til kynningar.
10. 201207013 - 798. fundur stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga
Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð 798. fundar stjórnar
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
11. 201201020 - Eyþing fundargerðir 2012
Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerðir 230 og 231 fundar
Eyþings.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
12. 201112046 - Fundarboð og fundagerðir Orkuveitu Húsavíkur
2012
Fyrir bæjarráði liggur fundargerð Orkuveitu Húsavíkur ohf,
frá 19. júní sl.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13. 201202042 - Sorpsamlag Þingeyinga, fundargerðir ársins 2012
Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð Sorpsamlags Þingeyinga
áamt fundargerð aðalfundar. Meðfylgjandi er ársreikningur félagsins fyrir árið 2011.
Lagt fram til kynningar.
14. 201206018 - Félag heyrnarlausra, umsókn um styrk
Fyrir bæjarráði liggur styrkumsókn frá Félagi heyrnarlausa.
Félagið fer fram á styrk til birtingar heilsíðuauglýsingu í helstu fjölmiðlum landsins. Tilagangur auglýsinganna er að
þrýsta á íslenskar sjónvarpsstöðvar að texta allt forunnið íslensk sjónvarpsefni.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir umsóknina en getur ekki orðið við erindinu.
15. 201207002 - Hólmfríður Halldórsdóttir og Stefanía
Gísladóttir óska eftir viðræðum við bæjarstjórn vegna stofnunar jarðvangs
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Hólmfríði
Halldórsdóttir og Stefaníu Gísladóttir, fyrir hönd samstarfshóps um stofnun jarðvangs ( geopark ) á Norðausturlandi. Forsenda
þess að slíkt verkefni geti gengið er að öflugur stuðningur allra aðila og náið samstarf sveitarstjórnar, fyrirtækja, stofnana og annara
hagsmunaaðila á svæðinu. Sveitarfélögin hafa staðfest áhuga sinn á málefninu en áherslur í aðalskipulagi
Norðurþings og Tjörneshrepps styðja þá hugmyndafræði sem jarðvangur byggir á.
Jarðvangar hafa sannað gildi sitt í vestrænum samfélögum, ímynd þeirra er jákvæð og er litið til
þeirra sem áhugaverðra svæða til búsetu og starfa. Aðkoma sveitarfélaga að jarðvöngum er skilyrði fyrir þeim.
Óskað er eftir viðræðum við bæjarstjórn Norðurþings og sveitarstjórn Tjörneshrepps um stofnun
jarðvangs, fulltrúar hópsins eru tilbúnir að mæta á fund sveitarstjórna til að fylgja málinu eftir.
Bæjarráð þakkar bréfriturum fyrir erindið og felur bæjarstjóra að boða til fulltrúa hópsins
á bæjarráðsfund til að fara yfir verkefnið.
16. 201206078 - M.S.-félag Íslands, Styrkumsókn vegna
íbúðar fyrir MS-sjúklinga utan af landi
Fyrir bæjarráði liggur styrkumsókn frá M.S. félagi
Íslands vegna styrks til rekstur leiguíbúða, sérútbúin fyrir fatlaða og er ætluð til skammtíma afnota fyrir MS sjúklinga sem
leita sér lækninga í Reykjavík. Félagið fer fram á að sveitarfélagið styrki reksturinn um 50.000.- krónur.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi styrkbeiðni til félagsins.
17. 201206079 - Mærudagar 2012
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá verkefnastjóra Mærudaga
2012 en búið er að skipuleggja hátíðarsvæði og aðra aðstöðu eins og undanfarin ár. Fram kemur í tillögunni
breyting frá fyrri árum sem felur m.a. eftirfarandi í sér:
1. Skammtíma vínveitingaleyfi á Hafnastétt verði takmarkað við þá rekstraraðila sem nú þegar
eru á svæðinu en auk þeirra fái Völsungur eitt slíkt leyfi.
2. Óskað er eftir yfirlýsingu eða stefnu sveitarfélagsins varðandi aðkomu félagasamtaka að
hátíðinni. Það er að félagasamtök í sveitarfélaginu hafi forgang að aðstöðu til sölu veitinga og varnings til
fjáröflunar yfir Mærudaga 2012.
3. Óskað er eftir samþykki sveitarfélagsins fyrir ábyrgðartryggingu vegna löggælsukostnaðar við
hátíðina. Til að halda kostnaði í lágmarki við gæslu hefur verið leitað til félagasamtaka á Húsavík sem
munu taka að sér öryggisgælsuna yfir hátíðisdagana.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur og samþykkir jafnframt að opnunartími veitinga- og skemmtistaða verði
ekki opnir lengur en til kl. 03:00 aðfaranótt laugardags og sunnudags Mærudagshelgina.
18. 201207014 - Umboð bæjarstjóra til veitingu umsagna skammtíma
veitingaleyfa
Í ljósi fjölda umsókna tækifærisleyfa yfir Mærudaga
sem fram fara í lok júlí heimilar bæjarráð, bæjarstjóra að svara umsóknum í samræmi við samþykkta stefnu
sveitarfélagsins um veitingu slíkra leyfa.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra leyfi til að svara umsóknum í samræmi við stefnu og skilyrði sem sett hafa
verið.
19. 201010074 - Þjóðskrá Íslands, innsend bréf
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Þjóðskrá
Íslands sem innahalda gögn vegna fasteignamats fyrir árið 2013. Þjóðskrá Íslands hefur í samræmi við 32. gr. a, laga nr.
6/2001, um skráningu og mat fasteigna lokið árlegu endurmati allra fasteigna á Íslandi. Niðurstöður endurmats voru kynntar á
fjölmiðlafundi fimmtudaginn 14. júni sl. Þá er hverjum fasteignaeiganda birtur tilkynningarseðill um niðurstöður endurmats fasteigna hans og
upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is Eigendum er veittur frestur til 1. ágúst n.k. til að gera athugasemdir við niðurstöðu
endurmatsins.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.