34. fundur
bæjarráðs Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 5. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Bergur Elías
Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201201013 - Húsavíkurstofa - gestir bæjarráðs
Á fund bæjarráðs mættu Einar
Gíslason, Hörður Sigurbjarnarson, Bjarni Páll Vilhjálmsson og Þorgrímur Sigurðsson f.h. Húsavíkurstofu til að fara yfir starfsemi og
rekstur félagsins.
Bæjarráð þakkar þeim fyrir góða kynningu.
2. 201201011 - Tillögur til þingsályktunar um fjögurra- og tólf ára samgönguáætlun, 392. mál og 393.
mál
Fyrir bæjarráði liggur tillaga til þingsályktunar um fjögurra- og tólf ára samgönguáætlun. (392. og
393. mál ).
Bæjarráð vísar tillögunum til umfjöllunar í bæjarstjórn.
3. 201201010 - Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur segja upp samningi um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa
Fyrir
bæjarráði liggur erindi frá sveitarstjórnum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Erindið felur í sér uppsögn á
samstarfsamningi sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa.
Eins og fram kemur í erindinu þá var undirritaður samstarfssamningur í júni 2005 en þar er kveðið á um að
Húsavíkurbær (nú Norðurþing) annist rekstur embættis skipulags- og byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélögin á
samstarfssvæðinu. Með bréfi 22. ágúst s.l. var óskað eftir launs frá skipulagshluta samningsins. Skv. 9. gr. nefnds samnings
þarf að segja honum upp skriflega með 12 mánaða fyrirvara og tekur uppsögn gildi um áramót.
Sveitarstjórnir Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps segja hér með upp samningi sveitarfélaganna við Norðurþing um þjónustu
byggingarfulltrúa frá og með 01.01.12., svo svigrúm gefist til að ákveða fyrir árslok 2012 hvort væntanlegur skipulagsfulltrúi
Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps gegni jafnframt starfi byggingarfulltrúa þegar til kemur.
Erindið lagt fram.
4. 201112066 - 792. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fyrir bæjarráði liggur fundargerð 792. fundar
stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5. 201009108 - Sjávarútvegsráðuneyti, úthlutun byggðakvóta
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá
sjávarútvegsráðuneytinu þar sem fram kemur úthlutun úr byggðakvóta til Norðurþings. Samkvæt erindinu liggur fyrir að
skipting byggðakvóta til Norðurþings felur í sér eftirfarandi:
Húsavík - 197 þorskígildistonn.
Raufarhöfn - 94 þorskígildistonn.
Kópasker - 66 þorskígildistonn.
Í 10. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og reglugerð frá 21. desember 2011 um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og reglugerðar
frá 21. desember 2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 er kveðið á um það í fyrsta lagi
hvaða skilyrði fiskiskip og útgerðir þeirra þurfa að uppfylla til að fá úthlutun sbr. 1. gr. og í öðru lagi hvernig að
úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa skuli staðið sbr. 4. og 6. gr. reglugerðarinnar.
Fram kemur í bréfinu að ráðuneytið beinir þeim tilmælum til bæjar- og sveitarstjórna að horfa til þeirrar mögulegu
verðmætaaukningar og atvinnusköpunar sem hafa má af byggðakvóta, þegar reglur um ráðstöfun byggðakvótans verða mótaðar
og minnir á að megintilgangur byggðakvótans er að stuðla að aukinni atvinnusköpun í viðkomandi byggðarlagi og hafa í huga kosti
dagróðrabáta í því skyni.
Vilji bæjar- eða sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta
sveitarfélagsins eða einstakra byggðarlaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 20. janúar
2012. Tillögur sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina."
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða hagsmunaðila til fundar til að ræða mögulegar leiðir á úthlutun
byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012.
6. 201112064 - Tilboð í síldarvinnsluhús á Raufarhöfn
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Sigvalda
Ómari Aðalsteinssyni, Aðalbraut 46 á Raufarhöfn. Í erindinu kemur fram vilji bréfritara til að kaupa Mjölskemmuna og gera það
húsnæði upp ásamt því að rífa og fjarlægja aðrar eignir á lóðinni. Bréfritari óskar eftir fundi með
forsvarmönnum sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið. Nýverið var gengið frá samningi við ríkið, ásamt styrk frá SVN
hf., sem nýtast skuli til lagfæringar á lóðum SR á Raufarhöfn. Áður en nokkuð er ákveðið um afdrif eigna mun
sveitarfélagið boða til fundar með íbúum Raufarhafnar til að fara yfir málin. Sá fundur hefur ekki verið ákveðinn en
bæjarstjóra er falið að undirbúa, skipuleggja og tímasetja slíkan íbúafund.
7. 201201001 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2013 - 2015
Fyrir bæjarráði liggur að hefja undirbúning að
gerð 3ja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2013 til 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra, ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins, að hefja vinnu við gerð 3ja ára fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins. Bæjarráð mun fjalla um áætlunina á næstu fundum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45



