Bæjarráð Norðurþings

Bæjarráð Norðurþings 33. fundur bæjarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 15. desember 2011 og hófst hann kl.

Bæjarráð Norðurþings

33. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 15. desember 2011 og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra

 

Dagskrá:

1.  201112021 - Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf- framlag ársins 2012
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á síðasta fundi nefndarinnar.  Atvinnuþróunarfélag Þingeynga hf. lagði fram beiðni um framlag vegna vaxtarsamnings ásamt viðbótarframlagi vegna sértækrar hækkunar samkvæmt stefnumótun félagsins.  Bæjarráð óskaði eftir því að fá framkvæmdastjóra og stjórnarformann Atvinnuþróunarfélagsins á fund til að fara yfir stöðu félagsins.
Á fund bæjarráðs eru mættir f.h. Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga þeir Reinhard Reynisson og Sigurgeir Höskuldsson.  Reinhard og Sigurgeir gerður grein fyrir verkefnum og stöðu félagsins.
 
Bæjarráð þakkar fulltrúum Atvinnuþróunarfélagsins fyrir kynninguna.  
   
2.  201109023 - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012
 Fyrir bæjarráði liggur fjárhagsáætlun ársins 2012 ásamt útgönguspá ársins 2011.
 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn, við síðari umræðu, að fyrirliggjandi fjárhagstillaga ársins 2012 verði samþykkt.
   
3.  201112052 - Reglur um afslátt á fasteignaskatti
 Fyrir bæjarráði liggur tillaga að reglum um afslátt á fasteignaskatti en samkvæmt lögum ber sveitarfélaginu að viðhafa sérstakar relgur um afsláttarkjör til handa íbúðareigendum með lágar tekjur.
 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu um afslátt á fasteignaskatti.
   
4.  201112024 - Unglingadansleikur
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á 9. fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar sem fram fór þriðjdaginn s.l. 
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
 
Tómstunda- og æskulýðsnefnd sækir um styrkveitingu til Bæjarráðs að upphæð 400.000 krónur til að halda unglingadansleik 29.12.´11 á Húsavík fyrir ungmenni sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir fjárveitingu til verkefnisins að upphæð 200.000.-
   
5.  201112003 - Réttindagæslumaður fyrir fólk með fötlun á Norðurlandi, erindi varðandi aðgengi að Sundlaug Húsavíkur
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á 9. fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar sem fram fór þriðjdaginn s.l.
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
 
Tómstunda- og æskulýðsnefnd hefur ítrekað borist erindi vegna aðgengis fyrir fatlaða í Sundlaug Húsavíkur en aðgengi og aðstaða fyrir fatlaða er verulega ábótavant. Nefndin leggur það til að gerðar verði úrbætur vegna þessa í Sundlaug Húsavíkur. Tómstunda- og æskulýðsnefnd vísar málinu til afgreiðslu í Bæjarráði Norðurþings. Nefndin felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að svara erindinu.
 
Bæjarráð vísar erindinu til Eignasjóðs til frekari skoðunar.
 
 
6.  201106026 - Fjárhagsáætlun tómstunda- og æskulýðsnefndar 2012
 Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á 9. fundi tómstunda- og æskulýðsnefndar sem fram fór þriðjudaginn s.l.
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
 
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur eftirfarandi til við Bæjarráð Norðurþings.
1. Tekin verði upp gjaldtaka fyrir 17 ára og yngri í sundlaugar Norðurþings. Aðgangseyrir 250 krónur stakur miði á veturna og 300 krónur á sumrin (júní – ágúst).
2. Útbúin verði frístundakort fyrir ungmenni sveitarfélagsins, 17 ára og yngri sem veitir aðgang að sundlaugum og skíðasvæði sveitarfélagsins. Almennt verð á árskorti yrði 4000 krónur, árskort fyrir annað barn 3000 krónur, árskort fyrir þriðja barn 2000 krónur og ekki yrði greitt fyrir fjórða barn.
3. Breyting og hækkun á gjaldskrá fyrir sundlaugar Norðurþings. Tekið yrði upp sumar- og vetrargjald. Lagt er til að vetrargjald verði 500 krónur á stökum fullorðins miðum og sumargjald (júní – ágúst) 650 krónur á stökum fullorðins miðum. 10 miða afsláttarkort verði krónur 4000.
4. Lagt er til að helgaropnun Sundlaugarinnar á Húsavík verði frá kl. 10 til kl. 15 yfir vetrartímann.  
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til að tillögurnar taki gildi 1. janúar 2012.
 
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
   
7.  201111025 - Fjárhagsáætlun á fræðslu- og menningarsviði 2012
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá 10. fundi fræðslu- og menningarnefndar sem fram fór á þriðjudaginn s.l.
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
 
Á síðasta fundi fræðslu- og menningarnefndar var lagt til við bæjarráð að fjárhagsrammi ársins 2012 taki breytingum til hækkunar sem nemur 40 mkr. Fyrir liggur samþykki bæjarráðs að hækkun sem nemur 35 mkr.

Fræðslu- og menningarnefnd mun fara yfir og leggja fram tillögur að hagræðingum til að ná settu markmiði eins og fjárhagsrammi málaflokksins verður fyrir árið 2012.
Fræðslu- og menningarnefnd leggur til að bæjarráð samþykki tillögu nefndarinnar um 14% hækkun á gjaldskrá Tónlistarskóla Húsavíkur fyrir árið 2012 og fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Bókasafns Húsavíkur fyrir árið 2012.
 
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
 
   
8.  201112034 - Hafralækjarskóli - Fjárhagsáætlun 2012 og fundargerð rekstrarstjórnar.
 Fyrir bæjarráði liggur fjárhagsáætlun Hafralækjarskóla fyrir árið 2012 ásamt fundargerð rekstrarstjórnar.
 
Lagt fram til kynningar.
   
9.  201012092 - Mál varðandi stóriðju á Bakka
 Fyrir bæjarráði liggja drög að sviðsmyndum vegna iðnarðaruppbyggingu á Bakka.  Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir einstökum framkvæmdaþáttum.  Frekar verður unnið að málinu og það lagt fram á síðari stigum.  Erindið lagt fram til kynningar.
Undir þessum lið sátu Reinhard Reynissson, Sigurgeir Höskuldsson og Snæbjörn Sigurðarson.
   
10.  201112050 - Breytingar á Starfsmenntasjóði STH
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Starfsmenntasjóði STH þar sem fram kemur breyting á reglum sjóðsins.  Fyrirliggjandi reglugerð hefur hlotið samþykki sjóðsins en er háð samþykki bæjarstjórnar til að öðlast gildi.
 
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglugerðin verði samþykkt.
   
11.  201112039 - Björgunarsveitin Garðar, ósk um stuðning við kaup á nýjum björgunarbát
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Eysteini Heiðari Kristjánssyni, f.h. Björgunarsveitar Garðars á Húsavík þar sem leitað er eftir stuðningi sveitarfélagsins vegna kaupa á nýjum björgunarbát fyrir sveitina.  Fram kemur í bréfi að fyrirliggur ákvörðun sveitarinnar að ráðast í það metnaðarfulla verkefni að endurnýja björgunarbát félagsins.  Þessi ákvörðun hefur átt langan aðdraganda og er tekin á grundvelli þess að fjöldi útkalla á sjó hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Björgunarsveitin Garðar er búin að gera samning við RNLI, sem er breskt sjóbörgunarfélag, um kaup á opnum harðbotna slöngubát af gerðinni Atlantic 75.  Þetta er sérhannaður björgunarbátur þar sem áreiðanleiki, sjóhæfni og öryggi áhafnarmeðlima er haft að leiðarljósi og eru kostir hans umfram núverandi báts umtalsverðir.
Þetta er stórt verkefni fyrir ekki stærri sveit en Garðar.  Kiwanisklúbburinn Skjálfandi hafði frumkvæðið að því að bjóða aðkomu klúbbsins að verkefninu.  Sveitina vantar töluvert upp á svo ljúka megi fjármögnuninni og því er leitað til sveitarfélagsins um aðkomu að þessu verkefni.
 
Bæjarráð þakkar bréfritara erindið og fagnar áræðni sveitarinnar að tryggja enn frekar öryggi sjófarenda við Skjálfanda.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn björgunarsveitarinnar um verkefnið, þ.e. heildarkostnað, fjármögnun og aðkomu sveitarfélagsins að því og leggja fyrir bæjarráð síðar.
   
12.  201112038 - Björgunarsveitin Garðar, ósk um rekstrarstyrk fyrir árið 2012
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Björgunarsveitinni Garðari þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2012. 
 
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar ársins 2012 og felur fjármálastjóra að svara erindinu þegar fjárhagsáætlun ársins 2012 er lokið.
   
13.  201112037 - 140. fundur Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra
 Fyrir bæjarráði liggur fundargerð 140. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.  Fundargerðin lögð fram til kynningar.
   
14.  201112027 - Frá Þingeyjarsveit varðandi samstarfssamning um rekstur Hafralækjarskóla
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Þingeyjarsveit og varðar samstarfssamning um rekstur Hafralækjaskóla.  Um er að ræða samstarfssamning um rekstur Hafralækjaskóla og samning um rekstur og ábyrgð á fasteignum Hafralækjaskóla.  Fram kemur í erindinu að á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar frá 20.10.2011 hafi verið samþykkt að Hafralækjaskóli og Litlulaugaskóli verði sameinaðir í eina stofnun með tveimur starfsstöðvum.  Breyting þessi taki gildi 1. ágúst 2012. 
Ákvörðun sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var tekin fyrir á fundi rekstrarstjórnar Hafralækjarskóla þann 1.desember s.l.
 
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar óskar eftir viðræðum við Norðurþing um rekstur Hafralækjaskóla og að gerðar verði breytingar á samstarfssamningi sveitarfélaganna um rekstur Hafralækjaskóla.
 
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Þingeyjarsveit.
   
15.  201112046 - Fundarboð og fundagerðir Orkuveitu Húsavíkur 2012
 Fyrir bæjarráði liggur fundarboð hluthafafundar Orkuveitu Húsavíkur ehf. sem fram fer mánudaginn 2. janúar 2012 kl. 13:00 í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík að Ketilsbraut 7 - 9.
 
Bæjarráð felur Gunnlaugi Stefánssyni að fara með umboð sveitarfélagsins á hluthafafundinum og Trausta Aðalsteinsson til vara.
   
16.  201105060 - Sorpsamlag Þingeyinga, fundagerðir ársins 2011
 Fyrir bæjarráði liggur fjárhagsáætlun Sorpsamlags Þingeyinga fyrir árið 2012 ásamt fundargerð stjórnar.  Lagt fram til kynningar.
 
   
17.  201101006 - Dvalarheimili aldraðra, fundargerðir 2011
 Fyrir bæjarráði liggur fundargerð Dvalarheimilis aldraðra.  Fundargerðin lögð fram til kynningar.
   
18.  201112054 - Eignarhaldsfélagið Fasteign hf-Boðun á hluthafafund
 Fyrir bæjarráði liggur fundarboð á hluthafafund Eignarhaldsfélagisns Fasteingar hf. sem fram fer þann 16. desember n.k. að Bíldshöfða 9 (6. hæð ) og hefst fundurinn kl. 14:00
 
Bæjarráð felur Bergi Elíasi Ágústssyni, bæjarstjóra að fara með umboð sveitarfélagsins á hluthafafundinum og Gunnlaugur Stefánsson til vara.
   
19.  201009063 - Hugmyndir að byggingu gervigrasvallar á Húsavík.
 Fyrir bæjarráði liggur niðurstaða verkfræðistofunnar Mannvits um heildarkostnað við gerð gervigrasvallar á Húsavík.  Forsvarsmenn Mannvits óska eftir því að fá að kynna og fara yfir öll gögn verkefnisins.
 
Bæjarráð þakkar verkefnisstjóra Mannvits fyrir samantektina og felur bæjarstjóra að skipuleggja fund með forsvarsmönnum verkfræðistofunnar til að fara yfir helstu gögn málsins.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya