
22. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 25. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Olga Gísladóttir, Áki Hauksson, Bergur Elías Ágústsson,
Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201108041 - 6 mánaða rekstur Norðurþings
Fyrir bæjarráði liggur kynning bæjarstjóra á
6 mánaða rekstri Norðurþings og er grunnrekstur sveitarfélagsins í takt við fjárhagsáætlun ársins 2011.
2. 201108040 - Viljayfirlýsing milli Zhongkun Group og Norðurþings
Fyrir bæjarráði liggur viljayfirlýsing milli Zhongkun
Group og Norðurþings. Bæjarstjóri fór yfir og kynnti viljayfirlýsinguna sem felur í sér samvinnu er varðar skipulagsmál og
uppbyggingu ferðaþjónustu í héraði. Fyrirtækið stefnir að verulegum fjárfestingum í sveitarfélaginu Norðurþingi
gangi þær áætlanir sem kynntar hafa verið eftir.
3. 201108033 - Iðnaðarráðuneyti, tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu
landsvæða
Fyrir bæjarráði liggur tillaga iðnaðarráðuneytisins til þingslályktunar um áætlun um vernd og
orkunýtingu landsvæða. Bæjarráð frestar afgreiðlsu málsins og felur bæjarstjóra að vinna áfram að undirbúningi
að umsögn og athugasemdum sveitarfélagsins vegna fyrirliggjandi tillögu ráðuneytisins. Skilafrestur á athugasemdum er til 11. nóvember 2011.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15



