Bæjarráð Norðurþings

Bæjarráð Norðurþings 21. fundur bæjarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 18. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn

Bæjarráð Norðurþings

21. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 18. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Bergur Elías Ágústsson, Sigríður Valdimarsdóttir,

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson, Bæjarstjóri

 

Dagskrá:

1.  201012092 - Mál varðandi stóriðju á Bakka
 Fundargerð NAUST verkefnishóps um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Lagt fram til kynningar.
   
2.  201108027 - Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, evrópska lýðræðisvikan
 Lagt fram til kynningar.
   
3.  201009105 - Samráðshópur um friðun Gjástykkis, fundarboð og fundargerðir
 Samráðshópur um friðun Gjástykkis hefur lokið störfum. Frá upphafi hefur verið ljóst að öll sveitarfélögin þrjú, sem og landeigendur, eru mótfallin friðun alls þess svæðis sem gert er ráð fyrir í tillögu ríkisstjórnar Íslands um Gjástykki og Umhverfisstofnun hafði umboð til að semja um. Nú hafa þessir aðilar allir með formlegum hætti hafnað áframhaldandi viðræðum um boðaða friðlýsingu Gjástykkis.
   
4.  201105094 - Sjálfbærniverkefnið á Norðurlandi
 Lagt fram til kynningar.
   
5.  201108022 - Jafnréttisstofa óskar eftir að fá afhenta jafnréttisáætlun ásamt framkvæmdaáætlun
 Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálastjóra.
   
6.  201101006 - Dvalarheimili aldraðra, fundargerðir 2011
 Lagt fram til kynningar.
   
7.  201107031 - EYÞING-Forgangsverkefni á fjögurra ára samgönguáætlun
 Fyrir bæjarráð liggur erindi frá Eyþing - samtökum sveitarfélaga í Eyjarfirði og Þingeyjarsýslu og varðar forgangsröðun á fjárfestingarverkefnum í tengslum við 20/20 áætlun ríkisstjórnar Íslands. Um er að ræða nýframkvæmdir sem áhrif hafa á innviði í samfélaginu. Helstu áherslur Norðurþings eru; Dettifossvegur frá Dettifossi niður í Kelduhverfi, Iðnaðarvegur á milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarlóðar á Bakka, ný brú yfir Skjálfandafljót í Köldukinn, klára að leggja bundið slitlag á Kíslilveg auk annarra minni verkefna.
 
Bæjarráð felur bæjastjóra að koma áherslum Norðurþings til skila.
   
8.  201108028 - Bjarni Aðalgeirsson f.h. landeigenda-Ósk um endurbætur á þjóðvegi 864
 Bæjarráð þakkar Bjarna Aðalgeirssyni fyrir erindið er varðar endurbætur á þjóðvegi 864, austan Jökulsár. Um er að ræða ca. 4 km vegkafla. Með endurbótum er átt við að komið verði bundnu slitlagi á þennan vegarkafla.
 
Bæjarráð tekur heilshugar undir nauðsynlega úrbætur á veginum og mun taka málið upp við þingmenn kjördæmisins og Vegagerðina.
   

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya