
11. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 7. apríl 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert
Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201104020 - Kynning gesta í bæjarráði, Vegagerð ríkisins
Á fund bæjarráðs mættu fulltrúar Vegagerðarinnar, Birgir Guðmundsson, svæðisstjóri og Pálmi Þorsteinsson,
þjónustustjóri, til að fara yfir verkefni og framkvæmdir í Norðurþingi á árinu 2011. Birgir fór yfir vegaáætlun eins
og hún liggur fyrir. Dregist hefur að klára áætlunina og má búast við að hún verði endanlega tilbúin í haust.
Áætlanir yfir nýframkvæmdir liggja ekki fyrir.
Viðhaldsverkefni sem unnið verður að í sumar eru:
1. Húsavík - yfirlagning á 450 metra kafla við Héðinsbraut.
2. Kópasker - viðhald malarvegar utan Kópaskers.
3. Raufarhöfn - vegaöryggi í þéttbýli.
Gert er ráð fyrir að fé til ráðstöfunar í umdæmi Vegagerðarinnar verði um 800 milljónir króna á árinu 2011. Um
50 milljónir króna fara til ráðstöfunar í Norðurþingi.
Farið var yfir málefni sem komu fram á íbúafundunum og þau rædd. M.a. var rætt um heimreiðar. Birgir gerði grein fyrir kostnaðarskiptingu
sem felst í því að leggja bundið slitlag á heimreiðar. Almennar lagfæringar á heimreiðum eru í höndum Vegagerðarinnar í
samvinnu við íbúa lögbýla.
Rætt var um Dettifossveg. Bæjarráð ítrekaði kröfu sína að Dettifossvegur verði kláraður frá Dettifossi og niður í
Kelduhverfi.
Tekin var umræða um merkingar á vegum. Fulltrúar Vegagerðarinnar ætla að taka upp þessi mál og fara yfir þau og sérstaklega hvað
varðar nýja veginn um Hófaskarð.
Birgir kynnti skýrslu um umferðaröryggi á Húsavík og Raufarhöfn. Einnig kynnti hann tillögur að breytingum á gatnakerfi á
Húsavík.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Vegagerðarinnar fyrir góðar umræður.
2. 201104017 - Kynning gesta í byggðarráði, Sýslumaðurinn á Húsavík
Á fund bæjarráðs mættu fulltrúar Sýslumannsins á Húsavík, Svavar Pálsson, sýslumaður og Sigðurður
Brynjúlfsson, yfirlögregluþjónn til að fara yfir málefni embættisins í Norðurþingi.
Svavar fór yfir starfsemi og rekstur sýslumannsembættisins og löggæsluþjónustunnar í Norðurþingi. Fram kom í máli
Svavars að þjónustusvæðið er stórt en starfsmenn fáir. Bæjarráð þakkar þeim Svavari og Sigurði fyrir
góðar umræður.
3. 201104016 - Útsvarskeppni RÚV 2010/2011
Bæjarráð þakkar keppendum Norðurþings þeim Þorgeiri Tryggvasyni, Stefáni Þórssyni og Kristveigu Sigurðardóttur fyrir
frábæra skemmtun og glæsilegan árangur í vetur. Keppendur Norðurþings hafa vakið mikla athygli og eftirtekt fyrir framgang sinn í keppninni.
Úrslitakeppnin í Hofi á Akureyri föstudaginn s.l., þar sem um 500 áhorfendur fylgdust með þegar lið Norðurþings og Akureyrar
áttust við, var hreint ótrúleg.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að undirbúin verði móttaka þeim til heiðurs við hentugt tækifæri.
4. 201104027 - Menningarmiðstöð Þingeyinga, aðalfundarboð
Fyrir bæjarráði liggur aðalfundarboð Menningarmiðstöðvar Þingeyinga sem fram fer þann 13. apríl n.k. Bæjarráð hvetur
sem flesta bæjarfullrúa að mæta til fundarins.
5. 201103074 - Guðmundur A. Hólmgeirsson og Helga J. Stefánsdóttir f.h. Knarrareyrar ehf. óska eftir langtímaleigu á
Flókahúsi
Á síðasta fundi bæjarráðs lá fyrir erindi frá Guðmundi A. Hólmgeirssyni og Helgu J. Stefánsdóttur f.h. Knarrareyrar ehf. þar sem óskað er eftir langtímaleigusamningi á Flókahúsi. Afgreiðsla bæjarráðs frá síðasta fundi þann 31. mars s.l. kemur fram að bæjarstjóra er falið að ræða við bréfritara um erindið.
Bæjarstjóri fór yfir og kynnti bæjarráði hugmyndir bréfritara um uppbyggingu á húsnæðinu og þær hugmyndir sem liggja til grundvallar. Í megin dráttum er verið að ræða um enduruppbyggingu á Flókahúsi með tilliti til skipulags á svæðinu. Húsinu verði breytt til samræmis við aðrar byggingar á hafnarsvæðinu, eins og skipulag kveður á um. Fyrir framkvæmdakostnaði komi langtímaleigusamningur á móti.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar erindindu til kynningar og umsagnar í framkvæmda- og hafnanefnd.
6. 201102016 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2012-2014
Fyrir bæjarráði liggja forsendur 3ja ára fjárhagsáætlunar Norðurþings. Eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn þar sem tvær sviðsmyndir komu til umræðu hefur bæjarráð lagt til eftirfarandi breytingar milli umræðna.
1. Árið 2012 hækka tekjur um 6% og gjöld um 4%
2. Árið 2013 hækka tekjur um 10% og gjöld um 5%
3. Árið 2014 hækka tekjur um 15% og gjöld um 5%
Þar sem töluverð óvissa hefur ríkt undanfarin ár um framgang orkunýtingu og uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslu
hefur það torveldað áætlunargerð til lengri tíma. Það er mat bæjarráðs að samningar muni takast innan tíðar og
framkvæmdir hefjast á umræddu tímabili.
Bæjarstjóra er falið að gera viðeigandi breytingar á 3ja ára fjárhagsáætluninni og undirbúa hana undir síðari
umræðu í bæjarstjórn sem fer fram í maí.
7. 201103111 - íbúafundir í sveitarfélaginu
Fyrir bæjarráði liggur samantekt og efnisatriði eftir íbúafundi sem haldnir voru í mars undir yfirskriftinni " Mitt hjartans mál". Margt
gagnlegt kom fram á þessum fundum. Bæjarráð þakkar íbúum fyrir ánægjulega fundi og gagnlega ábendingar. Búið er
að lista upp þau umræðuefni og ábendingar sem komu fram. Búið er að skipta þeim niður eftir málaflokkum nefnda.
Bæjarráð vísar samantektinni til viðeigandi nefnda og ráða til umræðu.
8. 201102034 - Salan á Aðalbraut 37, Raufarhöfn
Fyrir bæjarráði liggur kauptilboð í Aðalbraut 37 á Raufarhöfn. Kaupverðið er 1.000.000.- ásamt kvöðum um
úrbætur á húseigninni að utan ásamt lagfæringu á lóð. Bæjarráð samþykkir kauptilboðið og felur
bæjarstjóra að ganga frá samningnum.
9. 201104026 - Umhverfisráðuneyti óskar eftir tilnefningu fulltrúa í svæðisráð
Vatnajökulsþjóðgarðs
Fyrir bæjarrjáði liggur ósk umhverfisráðuneytisins um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í svæðisráð
Vatnajökulsþjóðgarðs. Bæjarráð tilnefnir Soffíu Helgadóttur sem fulltrúa sveitarfélagsins í
svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarráð telur eðlilegt að Vatnajökulsþjóðgarður greiði stjórnarlaun fulltrúa svæðisráðanna sem og annan
kostnað við rekstur þjóðgarðsins.
10. 201104024 - Bygging fyrir geðfatlaða við Pálsgarð
Fyrir bæjarráði liggur tillaga starfshóps að byggingu og skipulagi á byggingareit við Pálsgarð vegna nýbyggingar fyrir geðfatlaða. Í starfshópnum sátu, Tryggvi Jóhannsson, Erla Alfreðsdóttir og Guðbjartur Ellert Jónsson. Starfshópurinn leggur til að byggt verði við Pálsgarð 3ja íbúða hús á einni hæð með möguleika á síðari stigum um stækkum um a.m.k. 3 íbúðir. Einnig leggur starfshópurinn til að byggingin verði staðsett eins austarlega á byggingarreitnum eins og kostur er. Starfshópurinn leggur til að gengið verði til samninga, við eiganda frumteikninga og hönnunar, um uppkaup á fyrirliggjandi gögnum. Jafnframt er lagt til að samið verði við AVH arkitektur hf - verkfræði / hönnun um endanlegan lokafrágang á teikningum ásamt því að gera útboðslýsingu fyrir framkvæmdina.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Gunnlaugur Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
11. 201104018 - Garðarshólmur SES, ósk um að Norðurþing hafi umsjón með styrkfé frá ESB
Fyrir bæjarráði liggur ósk Garðarshólms SES um að sveitarfélagið hafi umsjón með styrkfé frá ESB. Verkefni um Garðarshólm hefur verið valið úr hópi verkefna sem sóttu um styrk úr IPA sjóði ESB og mun það fara í aðra umræðu í umsóknarferlinu. Gert er ráð fyrir í styrkveitingum ESB að opinberir aðilar hafi umsjón með fjársýslu styrkfés sem veitt er. Miklar kröfur eru gerðar til verkefna sem hljóta styrki úr sjóðum ESB og þegar um háar upphæðir er að ræða er gert ráð fyrir að einn sérfræðingur á vegum styrkþega hafi það með höndum að standa skil á skýrslum og gögnum til ESB sem eiga að tryggja að styrkfé sé varið í samræmi við áætlanir.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindi.
12. 201104012 - Kristján Halldórsson eigandi Gbr. 62, ósk um lækkun á gjöldum
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Kristjáni Halldórssyni, eiganda Garðarsbrautar 62, um lækkun á gjöldum. Bréfritari hefur
nýlega fest kaup á húsnæði Mílu að Garðarsbraut 62 en í eignarhluta hans eru öll inntök og lagnir, fyrir heitt vatn, kalt vatn, rafmagn
og síma, fyrir alla eigendur húsnæðisins. Í húseigninni að Garðarsbraut 62 er íbúð, Samkaup, Frímúrarar, Töff,
Skokki, Sparisjóður Suður Þingeyinga og Olís.
Bréfritari óskar eftir því að fá lækkun á fasteignagjöldum, rafmangi eða hita vegna þeirra óþæginda sem
hlýst af ofangreindu fyrirkomulagi.
Bæjarráð synjar erindinu.
13. 201104011 - Vatnajökulsþjóðgarður, fundur til að kynna áætlun um samráð vegna samgöngumála
Fyrir bæjarráði liggur fundarboð frá Vatnajökulsþjóðgarði um kynningu á áætlun um samráð vegna
samgöngumála. Fundurinn fer fram þann 13. apríl n.k. og hefst hann kl. 17:00 í Ármúla 32, Reykjavík. Fram kemur í
fundarboðinu að sérstök síða á vef þjóðgarðsins hefur verið opnuð sem gögn og framvinda samráðsins verða kynnt (
http://www.vjp.is/ ).
Lagt fram til kynningar.
14. 201103113 - 785. fundur stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fyrir bæjarráði liggur 785. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
15. 201103112 - Verkefnið "Vatnaveröld, lífríki og landslag"
Fyrir bæjarráði liggur erindi um verkefnið "Vatnaveröld, lífríki og landslag". Bréfritarar óska eftir 100.000.- króna styrk gegn
notkun úr myndabanka sem hafa að geyma einstakar myndir úr lífríkinu og náttúru landsins.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40



