Bæjarráð Norðurþings

Bæjarráð Norðurþings 10. fundur bæjarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 31. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn

Bæjarráð Norðurþings

10. fundur bæjarráðs Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
fimmtudaginn 31. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra

 

Dagskrá:

1.  201103110 - Hannes Rúnarsson f.h. Húsvískrar fjölmiðlunar óskar eftir leigu á tjaldsvæði Húsavíkur
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Hannesi Rúnarssyni f.h. Húsvískrar fjölmiðlunar ehf., þar sem óskað er eftir því að taka á leigu tjaldsvæði Húsavíkur.  Á fundi Bæjarráðs þann 10. mars s.l. er eftirfarandi afgreiðla "Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Húsavíkurstofu um rekstur tjaldsvæðisins fyrir árið 2011 og leggja drög að samkomulagi fyrir bæjarráð til staðfestingar".  Þar sem þegar er búið að afgreiða útleigu á tjaldsvæðinu á Húsavík sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindi bréfritara.
   
2.  201103109 - Garðvík ehf. ósk um viðræður um leigu á tjaldsvæði Húsavíkur
 Fyrir bæjarráði liggur ósk frá Garðvík ehf., um viðræður um leigu á tjaldsvæði Húsavíkur og fylgihlutum.  Á fundi Bæjarráðs þann 10. mars s.l. er eftirfarandi afgreiðla "Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Húsavíkurstofu um rekstur tjaldsvæðisins fyrir árið 2011 og leggja drög að samkomulagi fyrir bæjarráð til staðfestingar".  Þar sem þegar er búið að afgreiða útleigu á tjaldsvæðinu á Húsavík sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindi bréfritara.
   
3.  201103108 - Frá LSS varðandi endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda
 Fyrir bæjarráði liggur bréf tryggingarstærðfræðings lífeyrissjóðs LSS, Bjarna Guðmundssyni, um endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum lífeyri. Í bréfi sjóðsins er lagt til, að tillögu tryggingarstærðfræðingsins, að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum lífeyri verði 72% en það hefur verið 70% undanfarin 2 ár.  Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki fyrirlilggjandi tillögur frá LSS um endurgreiðsluhlutfall á greiddum lífeyri.
   
4.  201101071 - Fundargerðir Orkuveitu Húsavíkur ehf 2011
 Fyrir bæjarráði liggja fundargerðir Orkuveitur Húsavíkur.  Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
   
5.  201007039 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Garðarsbraut 81, íbúð 203
 Fyrir bæjarráði liggur beiðni um söluheimild eignarinnar að Garðarsbraut 81, íbúð 203.  Bæjarráð samþykkir söluheimild eignarinnar, enda í samræmi við vinnureglur sveitarfélagsins sem fela í sér að eignir sem losna úr leigu fari í söluferli áður en til endurútleigu kemur.
   
6.  201103105 - Ósk um söluheimild fyrir íbúðina að Gbr 83 nr. 303
 Fyrir bæjarráði liggur beiðni um söluheimild eignarinnar að Garðarsbraut 83, íbúð 303.  Bæjarráð samþykkir söluheimild eignarinnar, enda í samræmi við vinnureglur sveitarfélagsins sem fela í sér að eignir sem losna úr leigu fari í söluferli áður en til endurútleigu kemur.
   
7.  201103088 - Norðurlax, aðalfundarboð
 Fyrir bæjarráði liggur fundarboð á aðalfund Norðurlax hf., sem haldinn verður fimmtudaginn 7. apríl n.k. í kaffistofu Norðurlax hf. á Laxamýri.  Bæjarráð felur Bergi Elíasi Ágústssyni, að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundinum. Til vara er Jóni Helga Björnssyni falið að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundinum.
   
8.  201103085 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn um frumvarp til laga um ferðamálaáætlun 2011-2020, 467. mál
 Fyrir bæjarráði liggur umsögn um frumvarp til laga um ferðamálaáætlun 2011 - 2020, mál 467, frá iðnaðarnefnd Alþingis.  Lagt fram til kynningar.
   
9.  201007040 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Grundargarði 6, nr. 101
 Fyrir bæjarráði liggur kauptilboð um eignina að Grundargarði 6, íbúð 101.  Bæjarráð samþykkir kauptilboðið og felur fjármálastjóra sveitarfélagsins að ganga frá kaupsamningi eins og hann liggur fyrir.
   
10.  201103074 - Guðmundur A. Hólmgeirsson og Helga J. Stefánsdóttir f.h. Knarrareyrar ehf. óska eftir langtímaleigu á Flókahúsi
 Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Guðmundi A. Hólmgeirssyni og Helgu J. Stefánsdóttur, f.h. Knarrareyrar ehf., þar sem óskað er eftir langtímaleigu á Flókahúsi.  Í umsókn bréfritara kemur fram að eigendur Knarrareyrar ehf., hyggjast endurgera Flókhúsið að utan sem innan.  Breytingar eru þá hugsaðar á þann hátt að þær falli sem best að því skipulagi sem í gildi er og í samráði við leigusala.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um erindið og kynna niðurstöður umræðanna í bæjarráði.
   
11.  201103073 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn um frumvarp til laga um breytingar á vatnalögum 561. mál
 Fyrir bæjarráði liggur umsögn um frumvarp til laga um breytingar á vatnalögum, mál 561, frá iðnaðarnefnd Alþingis.  Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
   
12.  201102016 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2012-2014
 Fyrir bæjarráði liggur 3ja ára fjárhagsáætlun áranna 2012 - 2014.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áætlunina áfram í samræmi við umræður á fundinum. 
   
13.  201102034 - Salan á Aðalbraut 37, Raufarhöfn
 Fyrir bæjarráði liggja tvö tilboð í Aðalbraut 37 á Raufarhöfn.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðenda með eftirfarandi skilmálum. 
1.  Lokið skal við endurbætur á húsnæðinu að utan og frágangi á lóð innan 24 mánaða frá dagsetningu kaupsamnings.
2.  Að 24 mánuðum liðnum skal gerð úttekt á framkvæmdum, í samvinnu við kaupanda, og standist allar framkvæmdir og verklok, skal endanlegt kaupverð taka mið af framkvæmdakostnaði eins og nánar verður kveðið á um í kaupsamningi. 
Kaupverð eignarinnar er 1.000.000.-
 
   
14.  201009105 - Samráðshópur um friðun Gjástykkis, fundarboð og fundargerðir
 Fyrir bæjarráði liggja fundargerðir samráðshóps um friðun Gjástykkis.
Fulltrúar Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps telja ekki ástæðu að halda áfram frekari viðræðum um friðlýsingu Gjástykkis. Fulltrúarnir eru samstíga í þessu máli og vilja halda sig við staðfest svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum. Að þeirra mati er það miður að ekki sé grundvöllur fyrir blandaðri leið í samstarfi við ríkisvaldið þ.e. að 2% af Gjástykki verði skilgreint sem orkuvinnslusvæði og annar hluti svæðisins verði að hluta eða öllu leyti skilgreindur sem hverfisverndarsvæði.

Bæjarráð Norðurþings tekur undir afstöðu fulltrúa sveitarfélaganna og telur þar af leiðandi ekki ástæðu til frekari viðræðna um friðlýsingu svæðisins.

   
15.  201103111 - íbúafundir í sveitarfélaginu
 Bæjarstjórn Norðurþings hélt dagana 16. til 22. mars síðastliðin íbúafundi á Raufarhöfn, Kópaskeri, Kelduhverfi, Reykjahverfi og Húsavík undir yfirskriftinni "Mitt hjartans mál".  Bæjarráð mun flokka og vinna efni úr þeim liðum sem fram komu á fundinum og birta.  Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með fundina og þær samræðu sem fóru fram á milli íbúa og bæjarfulltrúa. 
   
16.  200908026 - Gráni ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir reiðhús í Saltvíkurlandi
 Fyrir bæjarráði liggur samningur milli Grána ehf. og sveitarfélagsins um fjármögnun reiðskemmunnar í Saltvíkurlandi. Bæjarráð  vísar samningnum til staðfestingar í bæjarstjórn.
   

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya