
2. fundur bæjarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 22. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Stefánsson, Hólmfríður Soffía Helgadóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Helgi Björnsson, Olga Gísladóttir,
Trausti Aðalsteinsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Benedikt Kristjánsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Bergur Elías Ágústsson,
Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201102078 - Erindi frá fulltrúum V- og Þ lista í bæjarstjórn varðandi áheyranarfulltrúa í nefndum
og ráðum
Við undirritaðir fulltrúar V og Þ lista í bæjarstjórn Norðurþings leggjum fram eftirfarandi tillögu:
"Að þau framboð sem ekki hafi aðalfulltrúa inn í nefndum sveitarfélagsins fái í þeim nefndum áheyrnarfulltrúa með
málfrelsi og tillögurétt. Með þessu móti er tryggt aðgengi fulltrúa allra íbúa að nefndarstörfum í
sveitarfélaginu og með þessu móti er það mat okkar að lýðræðið sé í hávegum haft í sveitarfélaginu
Norðurþingi.
Að okkar mati er nauðsynlegt fyrir íbúa sveitarfélagsins að öll sjónarmið komist að í allri stjórnsýslu
sveitarfélagsins.
Trausti Aðalsteinsson - sign
Friðrik Sigurðsson - sign
Til máls tóku: Trausti, Jón Helgi og Gunnlaugur.
Eftirfarandi er bókun meirihluta bæjarstjórnar:
"Við afgreiðslu á nýjum samþykktum um stjórn Norðurþings og fundarsköp bæjarstjórnar frá 27. desember s.l. sem öll
framboð Norðurþings komu að var ákveðið, eins og verið hefur, að 5 aðal- og 5 varafulltrúar skyldu kosnir til 4 ára setu í
fastanefndir sveitarfélagsins eins og B liður 55. gr. ber með sér.
Í öllum þessum nefndum á meirihlutinn og minnihlutinn kjörna fulltrúa. Það er því ekki ástæða til að breyta
samþykktum sveitarfélagsins á þeirri forsendu að lýðræðið sé sniðgengið. Fulltrúar í minnihlutanum verða
að tryggja sín á milli, eins og önnur framboð sem mynda meirihlutann, að upplýsingar, sjónarmið, skoðanir, og afgreiðslur skili sér til
hinna pólitíkst kjörnu fulltrúa sem sameiginlega mynda minnihluta bæjarstjórnar Norðurþings".
Tillagan felld með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Soffíu, Þráins og Benedikts.
Trausti og Sigríður greiddu tillögunni atkvæði en Hjálmar Bogi sat hjá.
2. 201102065 - Friðrik Sigurðsson óskar eftir námsleyfi frá störfum í sveitarstjórn
Friðrik Sigurðsson, bæjarfulltrúi óskar eftir lausn frá stöfum sem bæjarfulltrúi til 30.06.2012.
Samþykkt samhljóða.
Við ofangreinda breytingu tekur Sigríður Valdimarsdóttir sæti Friðriks Sigurðssonar sem aðalmaður í bæjarstjórn. Í
stað Sigríðar Valdimarsdóttur sem varamaður tekur sæti Áki Hauksson. Einnig tekur Sigríður Valdimarsdóttir sæti Friðriks
Sigurðssonar sem varamanns í bæjarráði.
3. 201102048 - Ný samþykkt um gatnagerðar og þjónustugjöld í Norðurþingi
Skipulags- og byggingarfulltrúi
kynnti tillögu að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald holræsa, byggingarleyfisgjald, gjöld vegna skipulagsvinnu auk afgreiðslu- og
þjónustugjalda. Tillagan innifelur óverulegar breytingar á eldri gjaldskrá frá desember 2007, nema hvað skilgreind er í galdskránni
gjaldtaka vegna skipulagsvinnu skv. heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar henni til umfjöllunar í framkvæmda- og hafnanefnd og síðan til
bæjarstjórnar.
Tillagan samþykkt samhljóða án umræðu.
4. 201102056 - Árni Hilmarsson óskar eftir endurskoðun á skráningu fasteigna að Ástjörn
Óskað er eftir samþykki fyrir breyttri skráningu fasteigna að Ástjörn þannig að hús verði skráð sem frístundahús
í stað atvinnuhúsnæðis.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt, enda samræmast bæði byggingar og notkun þeirra
frístundahúsanotkun.
Tillagan samþykkt samhljóða án umræðu.
5. 201102070 - 132. fundur Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra og endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir
2011
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að endurskoðuð fjárhagsáætlun Heilbrigðisnefndar Norðurlands
fyrir árið 2011 verði samþykkt.
Til máls tók: Bergur
Tillagan samþykkt samhljóða.
6. 201102001F - Bæjarráð Norðurþings -
4
Fundargerð 4. fundar bæjarráðs frá 3. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 2. Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
Til máls tóku undir lið 2: Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Soffía, Trausti, Gunnlaugur, Bergur, Benedikt, Sigríður, Olga og Þráinn.
Hjálmar Bogi lagði til að bæjarstjórn gerði bókun bæjarráðs að sinni. Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn lýsir yfir mikilli óánægju með þá ákvörðun mennta- og menningarmálaráðuneytis að skerða
fjárveitingar til Framhaldsskólans á Húsavík um 30 milljónir króna á árinu 2011.
Skólanum hefur verið gert að greiða til baka 17,7 milljónir af fjárveitingu ársins 2010. Fyrir hafði skólinn fengið 13 milljónir
króna niðurskurð á fjárlögum 2011. Samanlagt er hér um að ræða niðurskurð sem nemur 23%. Samkvæmt ákvörðun
fjármálaráðherra máttu stofnanir einungis halda eftir 10% af rekstrarafgangi sínum. Fjárheimildir til skólans hafa því í raun
verið skertar um 40 milljónir króna frá áramótum 2009/2010 og er þá ekki tekið tillit til hækkunar á föstum
rekstrarkostnaði m.a. vegna hækkunar á húsaleigu og verðlagsþróunar. Í ljósi þessa mun skólinn að óbreyttu ekki geta
sinnt þeim verkefnum sem samið hefur verið um í þeim skólasamningi sem undirritaður var í júní s.l.
Bæjarstjórn telur að með þessu sé verulega vegið að rekstrarforsendum skólans og óskar eftir því við ráðherra
að nú þegar verði mótuð stefna í málefnum skólans þar sem hlutverk hans og rekstrarforsendur verði tryggðar til
framtíðar".
7. 201102002F - Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings -
2
Fundargerð 2. fundar fræðslu- og menningarnefndar frá 7. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 3. Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
Til máls tóku undir lið 3: Hjálmar Bogi, Soffía og Gunnlaugur.
8. 201102003F - Bæjarráð Norðurþings -
5
Fundargerð 5. fundar bæjarráðs frá 10. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 1. Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
Til máls tóku undir lið 1: Jón Helgi, Sigríður, Bergur, Gunnlaugur, Hjálmar Bogi og Benedikt.
9. 201102005F - Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings -
2
Fundargerð 2. fundar tómstunda- og æskulýðsnefndar frá 14. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 13. Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
Til máls tóku undir lið 13: Hjálmar Bogi og Soffía.
10. 201102004F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings -
73
Fundargerð 73. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 15. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 5. Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
Til máls tók undir lið 5: Hjálmar Bogi.
11. 201102007F - Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings -
2
Fundargerð 2. fundar framkvæmda- og hafnanefndar frá 15. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
12. 201102008F - Bæjarráð Norðurþings -
6
Fundargerð 6. fundar bæjarráðs frá 17. febrúar 2011 lögð fram til staðfestingar.
Við upphaf bæjarstjórnarfundar mætti Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri OH, og fór yfir kynningu á afrakstri
stefnumótunarvinnu OH. Málefnið er 8. dagskrárliður fundargerðarinnar.
Forseti bæjarstjórnar þakkaði Guðrúnu Erlu fyrir góða kynningu á stefnu- og framtíðarsýn OH.
Fundaragerðin staðfest með umræðu um liði 3, 8 og 9. Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
Til máls tóku undir lið 8: Hjálmar Bogi og Bergur.
Til máls tóku undir lið 9: Jón Helgi, Hjálmar Bogi, Gunnlaugur og Soffía.
Til máls tóku undir lið 3: Benedikt og Hjálmar Bogi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45



