
11. fundur bæjarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 24. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Stefánsson, Jón Grímsson, Hólmfríður Soffía Helgadóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Helgi Björnsson, Olga
Gísladóttir, Trausti Aðalsteinsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur
Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201201011 - Tillögur til þingsályktunar um fjögurra- og tólf ára samgönguáætlun, 392. mál og 393.
mál
Fyrir bæjarstjórn liggja til afgreiðslu tillögur til þingsályktunar um fjögurra- og tólf ára
samgönguáætlun, 392. mál og 393. mál sem tekið var fyrir á 34. fundi bæjarráðs.
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Bergur, Sigríður og Gunnlaugur
Bæjarstjórn leggur fram eftifarandi bókun:
Fyrir bæjarstjórn Norðurþings liggja drög að samgönguáætlun til fjögurra ára (2012 – 2014)
Á undanförnum misserum hefur verið boðað til nýrra vinnubragða við gerð samgönguáætlunar og fjárfestingaráætlunar
fyrir ríkissjóð. Hefur þess verið óskað að landshlutasamtök forgangsraði verkefnum sem þau telja að efli samkeppnisstöðu
síns svæðis. Bæjarstjórn Norðurþings telur að þau vinnubrögð séu til mikilla framfara við gerð
samgönguáætlunar og fjárfestingaráætlunar þjóðarinnar.
Eyþing, samtök sveitarfélaga við Eyjarfjörð og í Þingeyjarsýslu sem saman standa af 13 sveitarfélögum, hafa sent ráðneyti
innanríkismála sínar áherslur og forgangsröðun. Í þessu máli tala sveitarfélögin einum rómi. Eyþing lagði m.a.
áherslu á að ríkisvaldið kæmi að framkvæmdum við uppbyggingu Húsavíkurhafnar og vegtengingar milli hafnar og
iðnaðarsvæðis, sem er forsenda fyrir uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka. Að auki var lögð rík áhersla á, af hálfu
Eyþings að Dettifossvegur yrði kláraður niður í Kelduhverfi, en gert er ráð fyrir að sú framkvæmd hefjist ekki fyrr en árið
2015. Bæjarstjórnin lýsir hinsvegar yfir vonbrigðum með að í nýrri fjögurra ára samgönguáætlun
ríkissjóðs, sé ekki tekið tillit til áherslna Eyþings hvað þessi mikilvægu mál varðar.
Fyrirliggjandi bókun samþykkt samhljóða.
2. 201110042 - Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna miðhafnarsvæðis
Fyrir bæjarstjórn liggur
til afgreiðslu erindi sem tekið var fyrir á 87. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 19. janúar s.l. Erindið er tillaga að breytingu á
aðalskipulagi Norðurþings vegna miðhafnarsvæðis.
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
"Per Langsöe Christensen skipulagsráðgjafi mætti til umræðu um þennan lið fundarins. Tillaga að breytingu aðalskipulags var auglýst til
almennrar kynningar í nóvember 2011 með athugasemdafresti til 12. janúar 2012. Eftirfarandi athugasemdir bárust við skipulagstillöguna:
1. Bragi Sigurðsson, bréf dags. 12. janúar 2012: Bragi mótmælir því harðlega að blandað svæði fyrir hafnarstarfsemi og
svæði fyrir verslun og þjónustu (H4/V1) verði stækkað til suðurs á kostnað hreins hafnarsvæðis (H5). Þegar hefur verið
þrengt mikið að útgerð og fiskvinnslu með ferðaþjónustu. Nú sé svo komið að útgerðarfyrirtæki geta ekki
athafnað sig á eðlilegan hátt á hafnarsvæðinu með tæki og flutninga vegna slysahættu fylgjandi aukinni umferð ferðamanna.
2. Arnhildur Pálmadóttir, Helena Ingólfsdóttir og Röðull Kárason, tölvupóstur dags. 12. janúar 2012: Mótmælt er
þeirri breytingu aðalskipulags að blandað svæði hafnarstarfsemi og þjónustu (H4/V1) verði stækkað á kostnað hreins
hafnarsvæðis (H5). Mögulega geti gengið að ferðaþjónusta og sjávarútvegur fari saman á svæðinu, en til þess að
það geti gengið þurfi breytingin að vera markvissari og taka á öllum þáttum svæðisins. Æskilegt væri að
ferðaþjónustan verði áfram á miðsvæði hafnarinnar eða upp að Safnahúsi.
3. Guðrún Halla Gunnarsdóttir, f.h. Skipulagsstofnunar, tölvupóstur dags. 9. desember 2011: Skipulagsstofnun telur að málsmeðferð
aðalskipulagstillögunnar uppfylli ekki að fullu ákvæði skipulagslaga og að að hefja þurfi málsmeðferð að nýju.
Skipulags- og byggingarnefnd þakkar þeim sem athugasemdir gerðu. Meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarstjórn að fallið verði frá breytingu
aðalskipulagsins. Jafnframt verði felld út úr deiliskipulagstillögu umfjöllun um starfsemi Garðarshólms í gamla
Síldarverksmiðjuhúsinu.
Dóra Fjóla og Hannes telja að fram komnar athugasemdir við aðalskipulagstillöguna gefi ekki tilefni til efnislegra breytinga á henni. Verulega hefur dregið
úr starfsemi og húsnæðisþörf fiskvinnslu á hafnarsvæði Húsavíkur. Því eru nokkur mannvirki innan þess
svæðis sem lagt er til að breytist í blandaða landnotkun, nú þegar í annarri notkun en eðlilegt getur talist innan skilgreinds hafnarsvæðis
H5. Engar verulegar vísbendingar eru í þá átt að fiskvinnsla og útgerð þurfi meira athafnarými á hafnarsvæði en
nú er á næstu árum. Eðlilegt verður því að teljast að heimila breytta notkun húsa- og lóða á svæðinu og um
það snýst sú aðalskipulagsbreyting sem nú er lögð til. Ljóst er jafnframt að útgerð og fiskvinnsla geta fengið svæði
á óráðstöfuðum uppfyllingum á suðurhafnarsvæði ef þörf vaknar. Hvað varðar athugasemd Skipulagsstofnunar um
málsmeðferð þá fallast Dóra Fjóla og Hannes á að farið verði með breytingu aðalskipulagsins skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Dóra Fjóla og Hannes leggja því til við bæjarstjórn að haldinn verði almennur kynningarfundur um breytingu aðalskipulagsins
samhliða kynningu tillögu að deiliskipulagsbreytingu".
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Jón Grímsson, Þráinn, Jón Helgi, Gunnlaugur, Sigríður, Trausti og Bergur.
Fyrirliggjandi tillaga meirihluta skipulags- og byggingarnefndar felld með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímsson, Trausta, Þráins og
Hjálmars Boga. Soffía greiddi atkvæði með tillögunni. Sigríður sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Tillaga Dóru Fjólu og Hannesar samþykkt með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Sigríðar, Trausta,
Þráins og Hjálmars Boga. Soffía greiddi atkvæði á móti tillögunni.
Hjálmar Bogi gerði grein fyrir atkvæði sínu.
3. 201201001 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2013 - 2015
Fyrir bæjarstjórn liggur til afgreiðslu erindi sem tekið
var fyrir á 35. fundi bæjarráðs þann 19. janúar s.l. Erindið er 3ja ára fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir
árin 2013 til 2015 og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Bergur, Hjálmar Bogi og Jón Helgi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa 3ja ára fjárhagsáætlun 2013 - 2015 til bæjarráðs til meðferðar
fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn.
4. 201201001F - Bæjarráð Norðurþings - 34
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 34. fundar bæjarráðs til
staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 1: Hjálmar Bogi, Bergur, Jón Helgi og Gunnlaugur
Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
5. 201201003F - Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 14
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 14. fundar framkvæmda- og
hafnarnefndar til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
6. 201201004F - Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 11
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 11. fundar fræðslu- og
menningarnefndar til staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 4: Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Jón Grímsson, Trausti, Sigríður, Þráinn og Gunnlaugur.
Til máls tóku undir lið 2: Hjálmar Bogi.
Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
7. 201201005F - Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 10
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 10. fundar
tómstunda- og æskulýðsnefndar til afgreiðslu.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
8. 201201002F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 86
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 86. fundar skipulags- og
byggingarnefndar til staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 1: Jón Grímsson, Hjálmar Bogi, Trausti, Jón Helgi og Þráinn.
Jón Grímsson leggur fram eftirfarandi tillögu f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:
"Undirrituð leggja til við bæjarstjórn að skilgreind verði í deiliskipulagstillögunni heimild bæjarstjórnar til að veita
bráðabirgðaleyfi fyrir uppsetningu miðasöluaðstöðu upp fyrir götulínu að Hafnarstétt 11.
Heimiluð verði bygging allt að 45 m2 að grunnfleti og hámarkshæð þess sú sama og þegar er komin á þakflöt
bráðabirgðahús á þaki Hafnarstéttar 7".
Jón Grímsson - sign
Gunnlaugur Stefánsson - sign
Jón Helgi Björnsson - sign
Olga Gísladóttir - sign
Þráinn Gunnarsson - sign
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með atkvæðum, Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Trausta, Þráins og Hjálmars Boga.
Sigríður og Soffía sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
9. 201201007F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 87
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 87. fundar skipulags- og
byggingarnefndar til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
10. 201201006F - Bæjarráð Norðurþings - 35
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 35. fundar bæjarráðs til
staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 15: Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Jón Grímsson og Bergur.
Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
11. 201009063 - Gunnlaugur Stefánsson óskar eftir umræðu um uppbyggingu gervigrasvallar á Húsavík.
Fyrir
bæjarstjórn liggur erindi frá Gunnlaugi Stefánssyni þar sem óskað er eftir umræðu um uppbyggingu gervigrasvallar á
Húsavík.
Til máls tóku: Gunnlaugur, Hjálmar Bogi, Þráinn, Jón Helgi, Trausti, Bergur, og Jón Grímsson.
Gunnlaugur leggur eftirfarandi tillögu fram:
Bæjarstjórn Norðurþings felur bæjarráði að vinna fjármögnunaráætlun vegna framkvæmdanna við gervigrasvöll á
Húsavík samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun og útboðsgögnum sem unnið var af Mannviti ehf. fyrir sveitarfélagið
Norðurþing.
Að fjármögnun tryggðri heimilar bæjarstjórn að verkefnið verði boðið út til framkvæmda.
Tillagan samþykkt samhljóða.
12. 201201062 - Skipun starfshóps um frágang lóðar Síldarvinnslu ríkisins á Raufarhöfn.
Fyrirliggjandi erindi -
skipun starfshóps um frágang lóðar Síldarvinnslu ríksins á Raufarhöfn er tekið inn með afbrigðum. Erindið er tilkomið
að beiðni bæjarstjóra, Bergs Elíasar Ágústssonar.
Lögð fram tillaga um skipan í nefndina er eftirfarandi:
Birna Björnsdóttir
Einar Sigurðsson
Erlingur Thoroddsen
Agnieszka Szczodrowska
Jóhannes Árnason
Óskar Óskarsson
Sigríður Valdimarsdóttir
Tillaga samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:40



