10. fundur bæjarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 20. desember 2011 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Stefánsson, Jón Grímsson, Hólmfríður Soffía Helgadóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Helgi Björnsson, Olga
Gísladóttir, Þráinn Guðni Gunnarsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Bergur Elías Ágústsson,
Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá:
1. 201111082 - LSH, tillögur tryggingafræðings til afgreiðslu
Fyrir bæjarstjórn liggur til afgreiðslu innsent
erindi frá stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar frá 21. nóvember s.l. þar sem fyrir lá bréf
tryggingarstærðfræðings sjóðsins, Bjarna Guðmundssonar, þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum
lífeyri verði 67% í stað 71% eins það var síðast liðið ár.
Stjórn lífeyrissjóðsins samþykkir tillögu tryggingarstærðfræðingsins og vísar málinu til afgreiðslu
bæjarstjórnar í samræmi við ákvæði greina 22.1. og 22.2 í samþykktum sjóðsins sem eru svohljóðandi:
"22.1
Bæjarsjóður og þær stofnanir ( fyrirtæki ), sem tryggt hafa starfsmenn í sjóðnum skulu endurgreiða sjóðnum mánaðarlega
tiltekinn hundraðshluta af útgjöldum hans til lífeyrisgreiðslna skipt eftir því hjá hvaða launagreiðanda viðkomandi rétti hafa
verið áunnin."
"22.2
Bæjarsjóður og viðkomandi stofnanir skulu endurgreiða sjóðnum mánaðarlega tiltekinn hundraðshluta af útgjöldum hans til
lífeyrisgreiðslna. Bæjarstjórn ákveður hundraðshluta þennan til eigi skemmri tíma en til eins árs í senn, að fenginni
umsögn tryggingarstærðfræðings og sjóðsstjórna. Við þá ákvörðun skal miðað við að endurgreiðsla
ásamt innborguðum iðgjöldum miðað við þá ávöxtun sem gert er ráð fyrir við tryggingarfræðilegar athugun
sjóðsins gæti staðið undir öllum lífeyrirsgreiðslum og rekstrarkostnaði. Við útreikning skal gert ráð fyrir að
ávöxtun hefði náðst allan rekstrartíma og útreiknað endurgreiðsluhlutfall verið í gildi og til framtíðar reiknað með
gildandi tryggingarfræðilegum forsendum um lífs- og örorkulíkur."
Aflað var upplýsinga úr ársreikningum sjóðsins frá 1967 - 2010 um greiðslur iðgjalda, lífeyris og kostnaðar og nauðsynlegt
endurgreiðsluhlutfall reiknað miðað við stöðu sjóðsins í lok árs 2010. Er niðurstaðan að samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum reiknist endurgreiðsluhlutfall samvkæmt þessu ákvæði 67%.
Til máls tók: Bergur
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu stjórnar Lífeyrissjóðs Húsavíkurkaupsstaðar samhljóða.
2. 201109065 - Jafnréttisstefna Norðurþings
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var til afgreiðslu
á 27. fundi félags- og barnavendarnefndar þann 8. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
"Félags- og barnavendarnefnd Norðurþings samþykkir Jafnréttisstefnu Norðurþings og óskar eftir því að bæjarstjórn geri
hið sama".
Til máls tóku: Olga, Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Gunnlaugur og Jón Grímsson.
Fyrirliggjandi Jafnréttisstefna Norðurþings samþykkt samhljóða.
3. 201101071 - Fundargerðir Orkuveitu Húsavíkur ehf 2011
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var fyrir
á 32. fundi bæjarráðs þann 8. desember s.l. Fyrir bæjarráði lágu þrjár tillögur frá stjórn Orkuveitu
Húsavíkur.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggja eftirfarandi tillögur frá stjórn Orkuveitu Húsavíkur ehf. sem lagðar eru fram til samþykktar.
1. Tillaga að starfsreglum stjórnar OH ohf.
2. Tillaga að stofnefnahagsreikningi OH ohf. 1. janúar 2012.
3. Tillaga að samþykktum OH ohf.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að:
1. Starfsreglur stjórnar OH ohf. verði samþykktar.
2. Stofnefnahagur fyrir OH ohf. verði samþykktur.
3. Samþykktir OH ohf. verði samþykktar.
Fjárhagsáætlun ársins 2012 OH ohf. lögð fram.
Til máls tók um 1. lið: Bergur.
Fyrirliggjandi tillaga um starfsreglur stjórnar OH ohf. samþykktar samhljóða.
Til máls tóku um 2. lið: Bergur, Jón Helgi, Þráinn og Hilmar Dúi.
Fyrirliggjandi stofnefnahagur fyrir OH ohf. samþykktur samhljóða.
Til máls tóku um 3. lið: Hilmar Dúi, Bergur og Gunnlaugur.
Fyrirliggjandi tillaga að samþykktum OH ohf. samþykktar með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Sigríðar,
Þráins, Hjálmars Boga og Soffíu. Hilmar Dúi greiðir atkvæði gegn tillögunni.
4. 201010093 - Mál varðandi Síldarvinnslulóðina á Raufarhöfn
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til
afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 32. fundi bæjarráðs þann 8. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur tillaga að samkomulagi um niðurrif fasteigna, hreinsun, frágangs og förgun úrgangs á
Síldarverksmiðjulóð á Raufarhöfn.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi samkomulag".
Til máls tóku: Jón Helgi, Sigríður, Hjálmar Bogi og Jón Grímsson.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
5. 201111085 - Frá Þingeyjarsveit varðandi Svæðisskipulagsnefnd háhitasvæða í Þingeyjarsýslum
Fyrir
bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 85. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 14. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
"Óskað er eftir viðræðum við Norðurþing um mögulega breytingu á legu háspennulína frá Þeistareykjum til Bakka frá
því ætlað er í svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum, aðalskipulagi Norðurþings og aðalskipulagi
Þingeyjarsveitar. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings leggur til að mögulegar breytingar svæðisskipulagsins verði ræddar í nýrri
samvinnunefnd um svæðisskipulagið.
Hilmar Dúi leggur til að fulltrúar Norðurþings í svæðisskipulagsnefndinni verði Arnþrúður Dagsdóttir og Gaukur
Hjartarson.
Tillaga Hilmars var felld með atkvæðum Jóns, Soffíu, Hannesar og Dóru Fjólu.
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til við bæjarstjórn að Jón Grímsson og Gaukur Hjartarson verði fulltrúar Norðurþings í
samvinnunefnd um svæðisskipulagið. Hilmar Dúi greiðir atkvæði gegn þessari tilnefningu."
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Jón Grímsson, Gunnlaugur,
Hilmar Dúi leggur fram tillögu sína að nýju eins og hún var sett fram á 85. fundi skipulags- og bygginganefndar. Tillagan felld með
atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Sigríðar, Þráins, Hjálmars Boga og Soffíu.
Fyrirliggjandi tillaga meirihluta skipulags- og byggingarnefndar, þar sem lagt er til að Jón Grímsson og Gaukur Hjartarson verði fulltrúar Norðurþings
í Svæðisskipulagsnefnd háhitasvæða er samþykkt með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar,
Sigríðar, Þráins, Hjálmars Boga og Soffíu. Hilmar Dúi greiddi atkvæði gegn tillögunni.
6. 201112040 - Vegagerðin, ósk um landnúmer lóðar að Tóvegg, Kelduhverfi
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til
afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 85. fundi skiplags- og byggingarnefndar þann 14. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
"Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun lóðar út úr landi Tóveggjar vegna lagningar Dettifossvegar.
Skipulags- og byggingarnefnd telur stofnun lóðarinnar til samræmis við stefnu í aðalskipulagi um veglegu og leggur því til við
bæjarstjórn að erindið verði samþykkt."
Tillagan samþykkt samhljóða án umræðu.
7. 201112044 - Jón G. Stefánsson óskar eftir samþykki fyrir stofnun leigulóðar undir og umhverfis íbúðarhúsið að
Höfðabrekku
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 85. fundi skiplags- og byggingarnefndar þann 14.
desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla nefndarinnar:
"Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 9.000 m² lóðar undir íbúðarhúsið að Höfðabrekku í Kelduhverfi.
Meðfylgjandi umsókn er teikning af hnitsettri afmörkun lóðarinnar unnin af Guðmundi H Gunnarssyni hjá Búgarði á Akureyri.
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á stofnun lóðarinnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki lóðarstofnun
að fengnu samþykki annara landeigenda að óskiptu landi Keldunesbæja."
Til máls tók: Jón Grímsson.
Tillagan samþykkt samhljóða.
8. 201109023 - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var
fyrir á 33. fundi bæjarráðs þann 15. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur fjárhagsáætlun ársins 2012 ásamt útgönguspá ársins 2011.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn, við síðari umræðu, að fyrirliggjandi fjárhagstillaga ársins 2012 verði
samþykkt."
Til máls tóku: Bergur, Hjálmar Bogi, Þráinn, Jón Helgi og Gunnlaugur.
Bókun bæjarstjórnar Norðurþings er:
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2012 er gert ráð fyrir að A - hluti, fyrir utan sjóði í A hluta, skili tekjuafgangi sem er um 91 m.kr. en niðurstaða samstæðu sveitarfélagsins skilar halla að upphæð 178 m.kr. Þetta er niðurstaða nefnda og ráða sveitarfélagsins sem hafa eftir fremsta megni reynt að hagræða í rekstri sveitarfélagsins án þess að til verulegrar þjónustuskerðingar komi. Þess ber að geta að árið 2012 er fjórða árið í röð sem umtalsverð óvissa er um þróun tekna sveitarfélagsins. Þessi staða gerir það að verkum að gæta verður ítrasta aðhalds í rekstri.
Allir sem til þekkja eru meðvitaðir um að það sem skiptir máli fyrir framtíðar rekstur sveitarfélagsins og burði þess til að þjónusta íbúa þess er öflugt atvinnulíf með tilheyrandi hagvexti.
Það er trú bæjarstjórnar að samstaða um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum skili árangri á næstu misserum.
Gunnlaugur Stefánsson – sign
Jón Helgi Björnsson – sign
Olga Gísladóttir – sign
Jón Grímsson – sign
Sigríður Valdimarsdóttir – sign
Hilmar Dúi Björgvinsson – sign
Þráinn Gunnarsson – sign
Hjálmar Bogi Hafliðason – sign
Soffía Helgadóttir - sign
Fyrirliggjandi fjárhagsáætlun ársins 2012 er samþykkt með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar,
Sigríðar, Þráins, Hjálmars Boga og Soffíu. Hilmar Dúi sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
9. 201112052 - Reglur um afslátt á fasteignaskatti
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var fyrir á
33. fundi bæjarráðs þann 15. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur tillaga að reglum um afslátt á fasteignaskatti en samkvæmt lögum ber sveitarfélaginu að viðhafa sérstakar
relgur um afsláttarkjör til handa íbúðareigendum með lágar tekjur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu um afslátt á fasteignaskatti."
Fyrirliggjandi tillaga felur í sér stiglækkandi afslátt á fasteignaskatti þar sem tekjuviðmið fyrir einstakling er á bilinu 2,5 mkr. til 4 mkr.
og fyrir hjón og sambúðarfólk á bilinu 4,9 mkr. til 6 mkr. Afsláttur er frá 100% niður í 25% og miðast við fyrirliggjandi
tekjuviðmið.
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Bergur, Jón Helgi, Sigríður, Jón Grímsson, Hilmar Dúi, Soffia og Olga.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Sigríðar, Þráins, Hjálmars Boga og
Soffíu. Hilmar Dúi sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
10. 201106026 - Fjárhagsáætlun tómstunda- og æskulýðsnefnd 2012
Fyrir bæjarráði liggur erindi, til
afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 33. fundi bæjarráðs þann 15. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur erindi sem tekið var fyrir á 9. fundi tómstunda- og æskulýðsnefnd sem fram fór þriðjudaginn s.l.
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur eftirfarandi til við Bæjarráð Norðurþings.
1. Tekin verði upp gjaldtaka fyrir 17 ára og yngri í sundlaugar Norðurþings. Aðgangseyrir 250 krónur stakur miði á veturna og 300 krónur
á sumrin (júní – ágúst).
2. Útbúin verði frístundakort fyrir ungmenni sveitarfélagsins, 17 ára og yngri sem veitir aðgang að sundlaugum og skíðasvæði
sveitarfélagsins. Almennt verð á árskorti yrði 4000 krónur, árskort fyrir annað barn 3000 krónur, árskort fyrir þriðja barn 2000
krónur og ekki yrði greitt fyrir fjórða barn.
3. Breyting og hækkun á gjaldskrá fyrir sundlaugar Norðurþings. Tekið yrði upp sumar- og vetrargjald. Lagt er til að vetrargjald verði 500 krónur
á stökum fullorðins miðum og sumargjald (júní – ágúst) 650 krónur á stökum fullorðins miðum. 10 miða
afsláttarkort verði krónur 4000.
4. Lagt er til að helgaropnun Sundlaugarinnar á Húsavík verði frá kl. 10 til kl. 15 yfir vetrartímann.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til að tillögurnar taki gildi 1. janúar 2012.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn."
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Hilmar Dúi, Jón Helgi, Olga, Gunnlaugur,
Hjálmar Bogi lagði fram breytingartillögu við 2. lið sem felur í sér lækkun á gjaldi fyrir fyrsta barn úr 4.000.- krónum í
3.000.- krónur, lækkun fyrir annað barn úr 3.000.- krónum í 2.000.- krónur. Ekkert gjald er greitt fyrir þriðja barn eða fleiri.
Fyrirliggjandi tillögur ásamt breytingartillögu samþykktar samhljóða.
11. 201111025 - Fjárhagsáætlun á fræðslu- og menningarsviði 2012
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til
afgreiðslu, sem tekið var fyrir á 33. fundi bæjarráðs þann 15. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur erindi frá 10. fundi fræðslu- og menningarnefndar sem fram fór á þriðjudaginn s.l.
Afgreiðsla nefndarinnar er eftirfarandi:
Á síðasta fundi fræðslu- og menningarnefndar var lagt til við bæjarráð að fjárhagsrammi ársins 2012 taki breytingum til
hækkunar sem nemur 40 mkr. Fyrir liggur samþykki bæjarráðs að hækkun sem nemur 35 mkr.
Fræðslu- og menningarnefnd mun fara yfir og leggja fram tillögur að hagræðingum til að ná settu markmiði eins og fjárhagsrammi
málaflokksins verður fyrir árið 2012.
Fræðslu- og menningarnefnd leggur til að bæjarráð samþykki tillögu nefndarinnar um 14% hækkun á gjaldskrá Tónlistarskóla
Húsavíkur fyrir árið 2012 og fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Bókasafns Húsavíkur fyrir árið 2012.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn."
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Sigríður, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi, Soffía, Jón Helgi, Bergur, Gunnlaugur og Olga.
Hilmar Dúi leggur fram breytingartillögu sem felur í sér 10% hækkun í stað 14% hækkun á gjaldskrá Tónlistarskóla
Húsavíkur.
Breytingartillagan felld með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Þráins og Soffíu.
Hilmar Dúi, Sigríður og Hjálmar Bogi greiddu tillögunni atkvæði.
Fyrirliggjandi tillaga fræðslu- og menningarnefndar samþykktar með atkvæðum, Gunnlaugs, Jóns Helga, Olgu, Jóns Grímssonar, Þráins
og Soffíu. Hilmar Dúi, Sigríður og Hjálmar Bogi greiddu atkvæði gegn tillögunni.
12. 201112050 - Breytingar á Starfsmenntasjóði STH
Fyrir bæjarstjórn liggur erindi, til afgreiðslu, sem tekið var fyrir
á 33. fundi bæjarráðs þann 15. desember s.l.
Eftirfarandi er afgreiðsla bæjarráðs:
"Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Starfsmenntasjóði STH þar sem fram kemur breyting á reglum sjóðsins. Fyrirliggjandi reglugerð hefur
hlotið samþykki sjóðsins en er háð samþykki bæjarstjórnar til að öðlast gildi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglugerðin verði samþykkt."
Fyrirliggjandi reglugerð samþykkt samhljóða án umræðu.
13. 201111011F - Bæjarráð Norðurþings - 31
Fyrir bæjarstjórn liggur fundargerð 31. fundar bæjarráðs til
staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
14. 201111010F - Félags- og barnaverndarnefnd Norðurþings - 27
Fyrir bæjarstjórn liggur 27. fundargerð félags- og
barnaverndarnefndar til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
15. 201112001F - Bæjarráð Norðurþings - 32
Fyrir bæjarstjórn liggur 32. fundargerð bæjarráðs til
staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 1: Bergur, Hjálmar Bogi, Jón Helgi, Gunnlaugur og Þráinn.
Til máls tóku undir lið 6: Soffía.
Til máls tóku undir lið 9: Hilmar Dúi, Jón Grímsson og Bergur.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
16. 201112004F - Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 9
Fyrir bæjarstjórn liggur 9. fundargerð
tómstunda- og æskulýðsnefndar til staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 5: Hjálmar Bogi og Jón Helgi.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
17. 201112005F - Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 10
Fyrir bæjarstjórn liggur 10. fundargerð fræðslu- og
menningarnefndar til staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
18. 201112003F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 85
Fyrir bæjarstjórn liggur 85. fundargerð skipulags- og byggingarnefndar til
staðfestingar.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
19. 201112002F - Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 13
Fyrir bæjarstjórn liggur 13. fundargerð framkvæmda- og
skipulagsnefndar til staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 16: Hjálmar Bogi, Gunnlaugur, Þráinn, Bergur, Hilmar Dúi og Soffía.
Hjálmar Bogi lagði fram eftirfarandi bókun við 16. lið fundargerðarinnar:
"Undirritaður er óánægður með afgreiðslu meirihluta framkvæmda- og hafnarnefndar í þessu máli. Ný byggingareglugerð
tekur gildi um áramótin sem hefur áhrif á málið. Undirritaður hvetur nefndina til að finna farsæla lausn í málinu enda
mikilvægt að liðka til þegar einstaklingar sýna frumkvæði.
Undirritaður hvetur viðkomandi aðila til að sækja um að nýju á árinu 2012".
Hjálmar Bogi Hafliðason - sign
Til máls tóku undir lið 13: Hilmar Dúi, Gunnlaugur, Hjálmar Bogi, Soffía og Bergur.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
20. 201112006F - Bæjarráð Norðurþings - 33
Fyrir bæjarstjórn liggur 33. fundur bæjarráðs til
staðfestingar.
Til máls tóku undir lið 11: Hjálmar Bogi.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:25



