82. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 5. október 2011 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Hannes Höskuldsson, Anna Ragnarsdóttir, Gaukur Hjartarson, Katý Bjarnadóttir,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201110009 - Deiliskipulag Gudjohnsensreits
Arnhildur Pálmadóttir og Röðull Reyr Kárason kynntu hugmyndir
sínar að skipulagi Guðjohnsensreits á sameiginlegum fundi skipulags- og byggingarnefndar og framkvæmda- og hafnanefndar. Einnig kynntu Selmdís
Þráinsdóttir og Aðalbjörn Jóhannsson áhugaverðar hugmyndir sínar um nýtingu sama reits sem unnar voru sem verkefni í námi
við FSH.
2. 201105013 - Endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis
Per Langsöe Christenssen fór yfir fyrirliggjandi drög að
deiliskipulagi miðhafnarsvæðis á sameiginlegum fundi skipulags- og byggingarnefndar og framkvæmda- og hafnanefndar. Inn á fundinn voru kynnt eftirfarandi
erindi og ábendingar:
1. Ósk Gentle Giants ehf um byggingarleyfi að Hafnarstétt 5 með tilheyrandi teikningum og skýringarmyndum, dags. 18. september 2011.
2. Tillaga Gentle Giants ehf um nýja staðsetningu þriggja húsa sem nú standa á lóðinni að Hafnarstétt 5.
3. Ósk Sigríðar Sigþórsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa að Hafnarstétt 19 um aukinn byggingarétt að Hafnarstétt 19,
dags. 23. september 2011.
4. Innlegg Norðursiglingar ehf í deiliskipulagsumræðu miðhafnarsvæðis, dags. 5. október 2011.
Umræður á fundinum gáfu tilefni til nokkurra breytinga á deiliskipulagstillögunni sem Per var falið að vinna fyrir næsta fund Skipulags- og
byggingarnefndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00



