Fundinn sátu:
Erna Björnsdóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Trausti Aðalsteinsson, Olga Gísladóttir, Freydís Jóna Feysteinsdótti,
Fundargerð ritaði: Freydís Jóna Freysteinsdóttir , Félagsmálafulltrúi
Dagskrá:
•1. 200710072 - Tilboð um ferðaþjónustu fatlaðra
Freydís og Sigríður kynntu málið. Hvammur hefur rekið ferðaþjónustu fyrir fatlaða og hefur fjölskylduþjónustan greitt fyrir
þá þjónustu. Hvammur sér sér ekki fært að sinna þessari þjónustu lengur og hefur þessum málum verið sinnt af
Rúnari Óskarssyni undanfarið.
Niðurstaða fundar: Að gera samkomulag við Rúnar um ferðaþjónustu fatlaðra til áramóta sem byggir á fjölda ferða sem verið
er að aka. Einnig að bjóða starfsemina út frá og með næstu áramótum. Freydísi, Sigríði og Guðbjarti falið að
vinna málið.
•2. 200710077 - Lengd viðvera í skólagæslu og blöndun
Sigríður deildarstjóri um málefni fatlaðra kynnti erindi sem hún og Þórhildur lögðu fram um lengda viðveru fatlaðra barna í
Borgarhólsskóla, þ.e. þegar eru starfsdagar og frí í skólanum út af öðrum ástæðum.
Niðurstaða fundar: Sigríður kynni sér hvernig þessu hefur verið hagað hjá öðrum sveitarfélögum. Samþykkt að
gæsla/liðveisla utan hefðbundinna skóladaga verði ekki tekin upp á þessu almanaksári.
•3. 200710076 - Skóladagvistun
Sigríður deildarstjóri um málefni fatlaðra kynnti erindi sem hún og Þórhildur lögðu fram. Óskað eftir því að
sveitarfélagið móti sér stefnu varðandi heilsdagsskóla. Þörf er á gæslu fyrir bæði ófötluð og fötluð
börn.
Niðurstaða. Málinu vísað til Menningar-og fræðslunefndar.
•4. 200710073 - Setrið eins árs afmæli
Nefndin fór og tók þátt í afmælishátíð Setursins stutta stund, en geðræktarmiðstöðin Setrið varð eins
árs þennan dag.
•5. 200710078 - Húsnæðismál fatlaðra
Freydís kynnti málið. Kynnt voru núverandi húsnæðismál fatlaðra og mögulegar úrbætur.
•6. 200710074 - Geðfatlaðir húsnæðismál
Freydís kynnti málið. Kynnt voru núverandi húsnæðismál geðfatlaðra og mögulega úrbætur.
•7. 200710020 - Tilboð um leigu á húsnæði
Freydís kynnti málið. Tilboð barst um leiguhúsnæði til sveitarfélagsins.
Niðurstaða fundar: Félagsmálanefnd hefur að svo stöddu ekki áhuga á að taka húsnæðið á leigu.
•8. 200710075 - Iðjuþjálfun - skortur á iðjuþjálfun hjá Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga
Freydís kynnti málið. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hefur óskað eftir að kaupa þjónustu iðjuþjálfa af sveitarfélaginu
tímabundið.
Niðurstaða fundar: Erindið samþykkt.
•9. 200709265 - Fjárhagsáætlunargerð haustið 2007
Freydís lagði til að henni yrði falið að vinna fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2008 í heilu lagi og hún yrði
lögð fyrir félagsmálanefnd í byrjun nóvember.
NIðurstaða fundar: Erindið samþykkt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40



