Fræðslu- og menningarnefnd

Fræðslu- og menningarnefnd 2. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 7. febrúar 2011 og hófst

Fræðslu- og menningarnefnd

2. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 7. febrúar 2011 og hófst hann kl. 14:30


Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Huld Aðalbjarnardóttir,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Fræðslu- og menningarfulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201102029 - Menningarfulltrúi Eyþings - Erindi á fundi fræðslu- og menningarnefndar.
 Mætt var Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings.
 
Ragnheiður Jóna kynnti starf menningarráðs Eyþings.
 
Menningarfulltrúi vék af fundi kl. 15:40
   
2.  201012040 - Reglur um inntöku barna á leikskóla í Norðurþingi - erindi frá Kristjönu Lilju Einarsdóttur
 Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að sjá um að fyrirliggjandi drög að reglum um inntöku barna á leikskóla í Norðurþingi verði kynnt fyrir foreldra- eða skólaráðum leikskólanna.
   
3.  200709069 - Skólastefna Norðurþings
 Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að kalla stýrihóp saman og hefja undirbúning að gerð skólastefnu Norðurþings.
   
4.  201102030 - Mærudagar 2011
 Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að semja við Húsavíkurstofu í takt við fyrirliggjandi drög að samningi um framkvæmd og umsjón Mærudaga 2011.
   
5.  201101054 - Ósk um umsögn frá Innanríkisráðuneyti varðandi stjórnsýslukæru Höskuldar Skúla Hallgrímssonar og Brynhildar Gísladóttur
 Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að senda beðna umsögn til Innanríkisráðuneytisins í samstarfi við lögfræðing Sambands Íslenskra Sveitarfélaga.
   
6.  201101023 - Tónlistarskóli Húsavíkur og Öxarfjarðarskóli. Ósk um fjárveitingu til kaupa á marimba hljóðfærum til kennslu í Öxarfjarðarskóla.
 Erindinu frestað á meðan leitað er frekari fjármögnunarleiða.
   
7.  201101065 - Mennta- og menningarmálaráðuneyti sendir yfirlit æskulýðsrannsóknanna Ungt fólk 2011 til 2016
 Lagt fram til kynningar.
   
8.  201102031 - 2. fundur 8. febrúar 2011. Mál til kynningar.
 Lagt fram til kynningar.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya