
12. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 14. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður
Aðalgeirsson, Stefán L Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Huld Aðalbjarnardóttir, Fræðslu- og menningarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201202027 - Þekkingarnet Þingeyinga - 64. fundargerð
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. 201202026 - Leikskólar í Norðurþingi - staða leikskólaplássa.
Fræðslu- og menningarnefnd telur mikilvægt
að dagforeldrar verði áfram starfandi í Norðurþingi til að mæta þörfum á dagvistunarplássum.
Fræðslu- og menningarfulltrúa er falið að vinna málið áfram í samráði við stjórnendur, starfsfólk og
foreldraráð Grænuvalla auk starfandi dagforeldra á Húsavík.
3. 201202015 - Ályktun um skólamötuneyti frá skólaliðum Borgarhólsskóla
Fræðslu- og menningarnefnd
þakkar skólaliðum Borgarhólsskóla áhugann á velferð nemenda í skólanum. Ályktunin er gott og hvetjandi innlegg í
þá vinnu sem þegar er hafin til uppbyggingar á mötuneyti í Borgarhólsskóla.
4. 201201049 - Frá Velferðarráðuneyti varðandi styrki til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD
greiningu
Erindið lagt fram til kynningar.
5. 201201045 - Erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti 2012
Erindið lagt fram til kynningar.
6. 200709069 - Skólastefna Norðurþings
Fræðslu- og menningarnefnd vísar drögum að skólastefnu Norðurþings
til umsagnar starfsfólks og foreldraráða grunn- og leikskólanna. Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að dreifa drögunum og finna
fundartíma með hópunum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00



