
11. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 16. janúar 2012 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður
Aðalgeirsson, Stefán L Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Huld Aðalbjarnardóttir, Fræðslu- og menningarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201201033 - Þekkingarnet Þingeyinga - Fundargerð 63. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
2. 201102030 - Mærudagar 2011
Mættur var Einar Gíslason forstöðumaður Húsavíkurstofu.
Einar lagði fram skýrslu Mærudaga fyrir árið 2011. Fræðslu- og menningarnefnd mun úthluta 1.500.000,- kr. styrk til Mærudaga 2012 ef áhugi er
fyrir því hjá íbúum og rekstraraðilum í þjónustu á Húsavík að halda slíka hátíð.
Einar vék af fundi kl. 16:05
3. 201111025 - Fjárhagsáætlun á fræðslu- og menningarsviði 2012
Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir
fyrirliggjandi tillögur um skiptingu fjárhagsramma á deildir á sviðum 03, 04 og 05 fyrir fjárhagsárið 2012.
4. 201201035 - Mötuneyti Borgarhólsskóla 2012
Fræðslu- og menningarnefnd telur mikilvægt fyrir skólahald í
Borgarhólsskóla að bjóða upp á skólamáltíðir í skólanum. Því leggur nefndin til við
bæjarráð að kanna hagvæmni þess að byggja eldhús við Borgarhólsskóla í stað þess að kaupa þjónustuna af
þriðja aðila. Miða þarf aðstöðuna við áætlaðan fjölda nemenda og starfsfólk Borgarhólsskóla.
5. 201201034 - Umsókn um niðurgreiðslu skólagjalda barna sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags.
Stefán Leifur
Rögnvaldsson og Olga Gísladóttir viku af fundi.
Meirihluti fræðslu- og menningarnefndar sér sér ekki fært að verða við erindinu.
6. 201111047 - Snorraverkefnið-Umsókn um styrk
Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir að leggja verkefninu lið með kr. 100.000,-
framlagi. Verkefnið er samstarfsverkefni Norræna félagsins og Þjóðræknisfélags Íslendinga og hefur að markmiði að auka tengsl
Íslendinga við samfélag fólks af íslenskum ættum í Kanada og Bandaríkjunum.
7. 201109036 - Skólavogin - kynning um Skólavogina
Lagt fram til kynningar.
8. 201112042 - Ályktun frá Félagi tónlistarskólakennara
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30



