Fræðslu- og menningarnefnd

Fræðslu- og menningarnefnd 10. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 13. desember 2011 og

Fræðslu- og menningarnefnd

10. fundur fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 13. desember 2011 og hófst hann kl. 15:00


Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Stefán L Rögnvaldsson, Sigurður Aðalgeirsson,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Fræðslu- og menningarfulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201111021 - Tónlistarskóli Húsavíkur - Fjárhagsáætlun 2012
 Mætt voru Árni Sigurbjarnarson skólastjóri, Adrianne Davis fulltrúi kennara og Arna Þórarinsdóttir fulltrúi Heiltóns.
 
Árni fór yfir tillögur að hagræðingu hjá Tónlistarskóla Húsavíkur.
 
Fulltrúar Tónlistarskóla Húsavíkur viku af fundi kl. 15:25
   
2.  201111025 - Fjárhagsáætlun á fræðslu- og menningarsviði 2012
 Á síðasta fundi fræðslu- og menningarnefndar var lagt til  við bæjarráð að fjárhagsrammi ársins 2012 taki breytingum til hækkunar sem nemur 40 mkr.  Fyrir liggur samþykki bæjarráðs að hækkun sem nemur 35 mkr.
 
Fræðslu- og menningarnefnd mun fara yfir og leggja fram tillögur að hagræðingum til að ná settu markmiði eins og fjárhagsrammi málaflokksins verður fyrir árið 2012.
 
Fræðslu- og menningarnefnd leggur til að bæjarráð samþykki tillögu nefndarinnar um 14%  hækkun á gjaldskrá Tónlistarskóla Húsavíkur fyrir árið 2012 og fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Bókasafns Húsavíkur fyrir árið 2012.
   
3.  201112032 - Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Úttektir á leik- og grunnskólum
 Lagt fram til kynningar.
   
4.  201112033 - Grænuvellir - námsferð starfsmanna til Svíþjóðar í apríl. Ósk um tilfærslu á starfsdögum.
 Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir umbeðna tilfærslu á starfsdegi vegna námsferðar starfsfólks Grænuvalla til Svíþjóðar.
   
5.  201112034 - Hafralækjarskóli - Fjárhagsáætlun 2012 og fundargerð rekstrarstjórnar.
 Lagt fram til kynningar.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya