Framkvæmda- og hafnanefnd

Framkvæmda- og hafnanefnd 2. fundur framkvæmda- og hafnanefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 15. febrúar 2011 og hófst

Framkvæmda- og hafnanefnd

2. fundur framkvæmda- og hafnanefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 15. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Bergur Elías Ágústsson, Tryggvi Jóhannsson, Guðmundur Magnússon, Stefán Sigurður Stefánsson,

Fundargerð ritaði:  Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201102026 - Fundargerð Cruise Iceland frá 3. febrúar 2011
 Lögð fram til kynningar.
   
2.  201012071 - Sail-Húsavík 2011, ósk um samstarf við sveitarfélagið
 Vilborg Arna Gissurardóttir verkefnisstjóri Sail Húsavík kom á fundinn og kynnti verkefnið og þá þætti sem sérstaklega er óskað eftir samvinnu við sveitarfélagið um.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd þakkar Vilborgu fyrir kynninguna en frestar afgreiðslu þar til nánari upplýsingar liggja fyrir um umfang verkefnisins.
   
3.  201102033 - 335. fundur Hafnasambands íslands ásamt ársreikningi 2010
 Lagt fram til kynningar.
   
4.  201004041 - Aðstaða fyrir smábáta í Húsavíkurhöfn
 Farið yfir tjónaskýrslu vegna skemmda á grjótvörn við Suðurgarð á Húsavík eftir óveður. 
 
Framkvæmda- og hafnanefnd felur hafnarstjóra að fylgja málinu eftir í samráði Siglingastofnun Íslands.
   
5.  201101021 - Fiskistofa, ósk um umsögn vegna vetingar rekstrarleyfis til kræklingaræktunar til handa Sæskeljar
 Fiskistofa óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Sæskeljar um rekstrarleyfi til kræklingaræktunar í Skjálfanda.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd veitir jákvæða umsögn um erindið og óskar Sæskeljum velfarnaðar í kræklingarækt í Skjálfanda.
   
6.  201102062 - Hjálmar Bogi, ýmis erindi
 Hjálmar Bogi leggur fram þrjár tillögur sem varða hafnar- og aflagjöld.
Tillaga 1
Úttekt á aflagjöldum fyrir árið 2010.
Gerð verði úttekt á aflagjöldum með það í huga hvort útgerð landi fiski á markað eða beint í eigin vinnslu.

Tillaga 2
Yfirlit yfir aflagjöld
Lagt er til að fiskseljendum bjóðist yfirlit yfir greidd aflagjöld til hafnarsjóðs Norðurþings.

Tillaga 3
Tekjur af strandveiðikvóta
Gerð verði úttekt á tekjum hafnarsjóðs af strandveiðum árið 2010.

Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir tillögurnar.
   
7.  201102063 - Gatnaframkvæmdir
 Hjálmar leggur fram tillögu um að athugað verði að skipta gatnaframkvæmdum við Fossvelli og Reykjaheiðarveg á Húsavík niður í áfanga og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2012.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir tillöguna með atkvæðum Þráins, Jóns, Sigurgeirs og Hjálmars.
 
Áki greiddi ekki atkvæði en leggur fram eftirfarandi bókun:
Í ljósi þess að meirihluti bæjarstjórnar Norðurþings gefur í skyn í staðarblaðinu Skarpi að nægt fé sé til viðhalds og framkvæmda, telur fulltrúi Þinglistans að það sé skýlaus krafa íbúa við Reykjarheiðarveg og Fossvelli að farið verði án tafar í endurbyggingu á þessum gömlu götum.
   
8.  201102045 - Samþykkt um hunda og kattahald í Norðurþingi
 Farið yfir gildandi samþykkt og gjaldskrá um hunda- og kattahald í Norðurþingi.
   
9.  201102048 - Ný samþykkt um gatnagerðar og þjónustugjöld í Norðurþingi
 Fyrir fundinum lá tillaga að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald holræsa, byggingaleyfisgjald, gjöld vegna skipulagsvinnu og afgreiðslu- og þjónustugjöld í Norðurþingi. Breytingar frá eldri samþykkt eru vegna nýs lagaumhverfis og samþykktin aðlöguð því. Eins eru gjaldskrár aðlagaðar nýjum vísitölugrunni.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir tillöguna.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya