17. fundur
framkvæmda- og hafnanefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
18. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Jón Grímsson, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Kristinn Rúnar Tryggvason, Tryggvi Jóhannsson, Sveinn Birgir
Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi.
Dagskrá:
1. 201107034 - Kópaskershöfn
Mikil sandsöfnun er orðin í Kópaskershöfn sem farin er að takmarka
viðlegupláss í höfninni verulega. Ekki eru neitt fé til dýpkunar á áætlun Siglingastofnunar þetta ár.
Leitað var eftir tölum frá Vökvaþjónustu Kópaskers til bráðabirgðadýpkunar og lá það fyrir fundinum.
Einnig lá fyrir fundinum beiðni frá hafnarstjóra um að fá að taka á leigu gám frá Vökvaþjónustu Kópaskers fyrir
vigtarmann við höfnina fram á haust.
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að semja við Vökvaþjónustuna um dýpkun á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Nefndin gerir athugasemd við
hugmyndir fyrirtækisins um losunarstað og felur hafnarstjóra að koma þeim skilaboðum á framfæri.
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir líka að taka gáminn á leigu.
2. 201204028 - Áki Hauksson f.h. eigenda eigna við Garðarsbraut 18, 18a og 20- Ósk um samstarf framkvæmda við
Gudjohnsensreit
Eigendur ofangreindra fasteigna óska eftir því við Norðurþing, sem á stærstan hluta lóða á
Gudhjonsensreit, komi að því með eigendum fyrrgreindra eigna að skipt verði um jarðveg á svæðinu og reiturinn malbikaður í sumar.
Unnið verði á grundvelli hugmynda sem Arnhildur Pálmadóttir og Röðull Reyr Kárason kynntu fyrir bæjaryfirvöldum í október 2012 og
sjá má á vefsíðu Norðurþings.
Framkvæmda- og hafnanefnd þakkar bréfriturum fyrir erindið og áhuga þeirra á að fegra lóðir sínar og umhverfi. Nefndin skorar á
skipulags- og byggingarnefnd að láta deiliskipuleggja svæðið svo framkvæmdir geti hafist innan ekki of langs tíma.
Áki vék af fundi undir þessum lið.
3. 201204029 - Vignir Sigurólason f.h fleiri aðila, sækir um lóðir undir tvö hesthús í nýju hesthúsahvefi í
Saltvík.
Vignir sækir um lóðir fyrir tvö hesthús í nýju hesthúsahverfi í Saltvík. Annarsvegar fyrir
sína hönd og Stefáns Haraldssonar, hinsvegar fyrir hönd Einars Víðis Einarssonar og Þorgríms Jóels Þorgrímssonar. Sótt er um
lóðir merktar B1 og B2 á deiliskipulagi fyrir svæðið. Fyrirhugað er að byggja tvö eins hús 9*25m eða 225m2 hvort.
Framkvæmda- og hafnanefnd leggur til við bæjarstjórn að umsækjendum verði veittar þessar lóðir en vekur athygli á að
kostnaðarverð lóðanna liggur ekki fyrir.
4. 201204030 - Elvar Daði Guðjónsson-Tillaga að samningi um snjómokstur á Grímsstöðum á fjöllum
Elvar
Daði, sem býr á Grímstungu, óskar eftir að gera samning við Norðurþing um snjómokstur á veginum heim að bænum vegna
skólaaksturs. Á næsta haust verður skólaskylt barn búandi þar og mun sækja skóla í Reykjahlíð.
Elvar Daði útfærir hugmyndir sínar nánar í tölvupóstinum sem inniheldur erindið.
Sviðsstjórar framkvæmda- og hafnasviðs og menningar- fræðslusviðs ásamt Vegagerðinni eru með málið til umfjöllunar.
Nefndin frestar ákvörðun þangað til niðurstaða er fengin úr þeirri vinnu.
5. 200907050 - Garðyrkjustjóri-Kynning verkefna
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi fór yfir og kynnti hugmyndir
garðyrkjustjóra um verkefni og fyrirkomulag málaflokksins.
Framkvæmda- og hafnanefnd þakkar garðyrkjustjóra fyrir en frestar umræðum um hugmyndirnar þangað til á næsta fundi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.