Framkvæmda- og hafnanefnd

Framkvæmda- og hafnanefnd 11. fundur framkvæmda- og hafnanefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 12. október 2011 og

Framkvæmda- og hafnanefnd

11. fundur framkvæmda- og hafnanefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 12. október 2011 og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Jón Grímsson, Áki Hauksson, Kristinn Rúnar Tryggvason, Arnar Sigurðsson, Tryggvi Jóhannsson, Stefán Sigurður Stefánsson,

Fundargerð ritaði:  Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi

 

Dagskrá:

1.  200907050 - Garðyrkjustjóri-Kynning verkefna
 Farið yfir drög að  reglum um notkun Skrúðgarðsins sem garðyrkjustjóra var falið að gera á síðasta fundi nefndarinnar 7. sept. sl.
Garðyrkjustjóri óskar einnig eftir að fá að hefja endurbætur á Kvíabekk.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir framlagðar umgengnisreglur fyrir Skrúðgarðinn einnig framkvæmdir við endurnýjun fótstykkis á Kvíabekk.
   
2.  201109039 - Íbúar að Baughól 2 - 10, erindi varðandi trjágróður í skógarlundi við raðhúsið
 Borist hefur bréf frá eigendum og íbúum Baughóls 2-10, á Húsavík, þar sem óskað er eftir viðræðum um lausn á hæð og þéttleika trjáa í skógarlundi nv. við húsið.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að kynna sér málið frekar og óska eftir tillögu frá Garðyrkjustjóra á næsta fundi um hvernig fara eigi með svæðið.
   
3.  201109101 - Fjáreigendafélag Húsavíkur, ósk um fund
 Fjáreigendafélagið óskar, með bréfi til framkvæmda- og hafnanefndar, eftir fundi til þess að fara yfir málefni frístundabænda á Húsavík.
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi hélt í gær fund ásamt garðyrkjustjóra með fulltrúum frá Fjáreigendafélaginu og Landgræðslunni og gerði hann nefndinni grein fyrir því sem fram fór á fundinum.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að vinna málið áfram.
   
4.  201109100 - Benedikt Jónasson, uppsögn á starfi varaslökkviliðsstjóra
 Benedikt Jónasson segir með bréfi upp stöðu sinni sem varaslökkviliðsstjóri á Húsavík frá og með 1. október 2011. Uppsögnin tekur gildi í samræmi við ráðningarsamning.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd þakkar Benedikt vel unnin störf.
   
5.  201109094 - Frá Umhverfisráðuneyti varðandi útgáfu landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2012-2023
 Ráðuneytið gerir ráð fyrir að verkefnið verði sett í opið umsagnarferli í október þar sem stjórnvöldum og hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd felur Sorpsamlagi Þingeyinga að gæta hagsmuna Norðurþings hvað málið varðar.
   
6.  201109024 - Fundagerðir Cruise Iceland
 Lögð fram til kynningar.
   
7.  201109097 - Fjárhagsáætlun framkvæmda- og hafnanefndar 2012
 Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2012.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að vinna drög að að fjárhagsáætlun þeirra málaflokka sem heyra undir nefndina.
   
8.  201110009 - Deiliskipulag Gudjohnsensreits
 Á sameiginlegum fundi framkvæmda- og hafnanefndar og skipulags- og byggingarnefndar þann 5. okt. sl. kynntu  Arnhildur Pálmadóttir arkitekt og Röðull Reyr Kárason skipulagshugmyndir sem þau höfðu unnið af Gudjohnsensreit og nágrenni.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd  fór yfir hugmyndirnar og leggur til við skipulags- og byggingarnefnd að hún láti vinna deiliskipulag af fyrrgreindu svæði á grundvelli þessarra skipulagshugmynda.
   
9.  201105013 - Endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis
 Á sameiginlegum fundi framkvæmda- og hafnanefndar og skipulags- og byggingarnefndar þann 5. okt. sl. kynntu  Per Langsöe Christensen arkitekt deiliskipulagstillögu af miðhafnarsvæðinu á Húsavík. Skipulags- og bygginganefnd fór yfir málið á fundi sínum fyrr í dag.
 
Þar sem ekki liggur fyrir endanleg útfærsla á tillögunni tekur framkvæmda- og hafnanefnd undir með skipulags- og bygginganefnd að láta vinna tillöguna áfram.
   
10.  201109009 - Innkaupareglur vegna framkvæmda og þjónustukaupa í Norðurþingi
 Framkvæmda- og þjónustufulltrúi gerði nefndinni grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi innkaupareglur fyrir smærri verk. Einnig var farið yfir "Lög um opinber innkaup" nr. 84 30. mars 2007.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd frestar afgreiðslu málsins.
   
11.  201110052 - Leigusamningur við Norður-Siglingu um dráttarbrautina á Húsavík
 Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að fela hafnarstjóra að láta fara fram endurskoðun á leigusamningi Norðursiglingar um slippinn eins og kveðið er á um í 4. gr. samningsins með það að markmiði að höfnin fái eðlilegar tekjur af rekstri slippsins.
 
Þráinn óskar bókað: Þar sem framkvæmd leigusamningsins hefur verið í nokkuð eðlilegum farvegi tel ég ekki ástæðu endurskoðunar samningsins að svo stöddu.
   
12.  201109004 - Þjóðvegurinn gegnum Húsavík og Raufarhöfn
 Farið var yfir hugmyndir Vegagerðarinnar um lækkun umferðarhraða inn í þéttbýli á Raufarhöfn og Húsavík.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við Vegagerðina.
   
13.  201110055 - Þorgrímur Jóelsson og Atli Björgvinsson sækja um land undir litboltavöll
 Þorgrímur og Atli óska eftir landssvæði til að setja upp litboltavöll. Þeir hafa í huga skurðasvæði í Reitnum næst neðan við Ásgarðstún á Húsavík. Svæðið er rétt rúmur ha að stærð.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að leigja Þorgrími og Atla landið og felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að útbúa leigusamning þar um.
   
14.  201108021 - Anna L. Sigurðardóttir, varðandi staðsetningu húsbíla á Húsavík
 Samþykkt var á fundi framkvæmda- og hafnanefndar 7. sept. sl. að óska eftir umsögn Húsavíkurstofu um þetta erindi. Sú umsögn hefur nú borist og var hún lögð fram á fundinum.
 
Framkvæmda- og hafnanefnd  samþykkir að afla frekari upplýsinga um málið.
 
   
15.  201110053 - Tillaga um tilfærslu á starfi Hafnarstjóra
 Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir að frá og 12. okt. verði Tryggvi Jóhannsson hafnarstjóri í stað Bergs Elíasar Ágústssonar.

Tryggvi Jóhannsson vék af fundi við afgreiðslu á þessum lið
   

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:40




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya