
miðvikudaginn 12. maí 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Aðalsteinn J. Halldórsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Guðmundur Magnússon, Arnar Sigurðsson, Tryggvi Jóhannsson, Trausti Aðalsteinsson, Sveinn Birgir Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi
|
201005038 - Garðvík ehf. v/ bílastæðamála á Húsavík |
||
|
|
Bréf frá Hilmari Dúa Björgvinssyni, fyrir hönd Garðvíkur ehf., þar sem fram kemur tilllaga um bílastæði á óbyggðri lóð við Garðarsbraut á milli Vallholtsvegar og N1. Fram kemur að bréfritari telur mikla þörf á fleiri bílastæðum á nærsvæði hafnarinnar og býðst hann til að vinna verkið ef áhugi er fyrir slíkri framkvæmd. Framkvæmda- og þjónustunefnd getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu. |
|
|
|
|
|
|
2. |
201003092 - Skíðamannvirki Norðurþings. |
|
|
|
Á fundi æskulýðsnefndar 29. apríl vísaði hún hugmyndum um framkvæmdir í og við Skálamel til framkvæmda- og þjónustunefndar til skoðunar. Framkvæmda- og þjónustunefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að kynna sjónarmið nefndarinnar fyrir æskulýðsfulltrúa. |
|
|
|
|
|
|
3. |
201005021 - Elsa G. Borgarsdóttir f.h. Húsavíkurstofu.Bréf til skipulagsnefndar varðandi bílastæðamál. |
|
|
|
Bréf frá stjórn Húsavíkurstofu þar sem reifaðar eru hugmyndir um nýtingu bílastæða í á Húsavík og
ýmsar merkingar þeim tengdar. Framkvæmda- og þjónustunefnd þakkar erindið og góðar ábendingar og mun taka þær til skoðunar. |
|
|
|
|
|
|
4. |
201005019 - Hestamannafélagið Grani, umsókn um beitarland |
|
|
|
Hestamannafélagið Grani sækir um beitiland í Saltvík sem afmarkast af hitaveitustokk í austri, vegi að malarnámi og urðunarsvæði í suðri, Skeglubjörgum í vestri og norðurmörkum Saltvíkurtúna í norðri. Með þessu vill félagið undirbúa flutning hestaíþróttasvæðis suður fyrir þéttbýlið í land Saltvíkur. Framkvæmda- og þjónustunefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á að nú þegar er hluti landsins í útleigu. Nefndin felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa frekari framgang málsins. |
|
|
|
|
|
|
5. |
201003042 - Samþykkt um skilti í Norðurþingi |
|
|
|
Skipulags- og bygginganefnd óskar umsagnar framkvæmda- og þjónustunefndar um tillögu um samþykkt um skilti í Norðurþingi. Framkvæmda- og þjónustunefnd gerir ekki athugasemdir við samþykktina. |
|
|
|
|
|
|
6. |
201004064 - Afgreiðsla umsóknar til Landabótasjóðs 2010 |
|
|
|
Bréf frá Landgræðslunni þar sem þakkað er fyrir umsókn Norðurþings um styrk úr Landbótasjóði og tilkynnt að sveiarfélagið hafi verið veittur styrkur að upphæð kr. 800.000,- Framkvæmda- og þjónustunefnd þakkar Landgræðslunni styrkinn. |
|
|
|
|
|
|
7. |
201005046 - Gatnaviðhald |
|
|
|
Rætt um viðhald gatna með bundnu slitlagi. Ljóst er að ekki verður hjá komist að yfirleggja tvær götur þar sem viðhaldskostnaður hefur verið mikill undanfarin ár.
Síðastliðin þrjú ár hefur viðhaldskostnaður þessara gatna verið jafn hár og ný yfirlögn kostar. Kostnaðarauki vegna
þessa gæti orðið 10 -12 milljónir. Framkvæmda- og þjónustunefnd fer þess á leit við byggðarráð að það veiti
viðbótarfjármagn til þess að ráðast í yfirlögn gatnanna. |
|



