
Framkvæmda- og þjónustunefnd
33. fundur framkvæmda- og þjónustunefndar Norðurþings haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 8. desember
2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Kristinn Rúnar Tryggvason, Tryggvi Jóhannsson, Sveinn Birgir Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi
Dagskrá:
1. 201012018 - Fjárhagsáætlun framkvæmda- og þjónustunefndar
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi lagði fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2011, málaflokka 07 -Brunamál og
almannavarnir, 08 -Hreinlætismál, 10 -Umferðar- og samgöngumál og 11 -Umhverfismál.
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi leggur líka til að gjaldskrár sem ekki eru þegar vísitölutengdar hækki, milli ára, í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Framkvæmda- og þjónustunefnd staðfestir ramma númer 08, 10 og 11. Nefndin fer fram á það við byggðarráð að rammi 07 verði
tekinn til endurskoðunar til hækkunar um krónur 12 milljónir.
2. 201011090 - Umhverfisráðuneyti, ósk um upplýsingar varðandi hreinsun stranda og ástand þeirra
Ráðuneytið leitar til allra sveitarfélag sem liggja að ströndinni og óskar eftir mati þeirra á því hvort rusl á ströndum
sé útbreitt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur
neikvæð áhrif á nýtingu strandarinnar.
Framkvæmda- og þjónustunefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að svara erindinu.
3. 201011028 - Erindi frá Rúnari Óskarssyni, varðandi tengingu Smiðjuteigs við þjóðveg í
Reykjahverfi
Fjallasýn Rúnars Óskarssonar óskar eftir að varanlegt slitlag, ásamt ljósastaurum, verði sett á þann hluta heimreiðar
fyrirtækisins við Smiðjuteig, sem fyrirtækið hefur ekki þegar steypt sjálft.
Framkvæmda- og þjónustunefnd vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2011. Nefndin leggur til að gerð verði
kostnaðaráætlun fyrir verkið.
4. 201012017 - Götulýsing, möguleg hagræðing
Rætt um mögulegar aðferðir til að lækka kostnað við götulýsingu á Húsavík án þess að
það hafi truflandi áhrif á ferðir íbúa eða öryggi.
Framkvæmda- og þjónustunefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að vinna málið áfram ásamt starfsmönnum Orkuveitu
Húsavíkur.
5. 201012019 - Húsnæðisnefnd Norðurþings/Eignasjóður - rekstur
Farið yfir reikninga Húsnæðisnefndar Norðurþings.
Framkvæmda- og þjónustunefnd frestar erindinu fram til næsta fundar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15



