framkvæmda- og þjónustunefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 11. nóvember 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Aðalsteinn J. Halldórsson, Rúnar Þórarinsson, Kristinn Rúnar Tryggvason, Þráinn Guðni Gunnarsson, Guðmundur Magnússon, Tryggvi Jóhannsson, Trausti Aðalsteinsson, Sveinn Birgir Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi
Dagskrá:
|
200910077 - Veghald þjóðvega í þéttbýli í Norðurþingi 2009 |
||
|
|
Vegagerðin óskar eftir að samningar um veghald þjóðvega vegna 2009 verði samþykktir óbreyttir frá árinu 2008.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir erindið. |
|
|
|
|
|
|
2. |
200911030 - Umhverfisverðlaun Norðurþings 2009 |
|
|
|
Á síðasta ári var tekin upp sú nýbreyttni að framkvæmda- og þjónustunefnd veitti umhverfisverðlaun.
Nefndin samþykkir að veita verðlaunin aftur á þessu ári og óskar eftir tillögum frá almenningi. Málefnið tekið fyrir á næsta fundi. |
|
|
|
|
|
|
3. |
200911029 - Tillaga að húsaleigusamningi eignarsjóðs |
|
|
|
Fyrir fundinum lá tillaga að húsaleigusamningi vegna umsýslu með fasteignum sveitarfélagsins. Með samningnum er reynt að gera raunkostnað við rekstur húsnæðisins sýnilegan og skýra línur milli eignasjóðs og stofnana.
Nefndin fagnar framtakinu og samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög. Nefndin felur húsnæðisfulltrúa að fylgja málinu eftir við forstöðumenn stofnana.
|
|
|
|
|
|
|
4. |
200911028 - Framkvæmda- og þjónustunefnd- Fjárhagsáætlun 2010 |
|
|
|
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi lagði fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010, málaflokka 07 -Brunamál og almannavarnir, 08 -Hreinlætismál, 10 -Umferðar- og samgöngumál og 11 -Umhverfismál.
Framkvæmda- og þjónustunefnd leggur til við sveitarstjórn að fjárhagsáætlunin verði samþykkt eins og hún liggur fyrir. |
|
|
|
|
|
|
5. |
200911038 - Umhverfisstofnun- Vegna refaveiða á uppgjörstímabilinu 1.sept 2009 til 31.ágúst 2010 |
|
|
|
Bréf frá Umhverfisstofnun þar sem vakin er athygli sveitarfélaga á að í frumvarpi til fjárlaga 2010 er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum til endurgreiðslu vegna refaveiða á uppgjörstímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.
Framkvæmda- og þjónustunefnd Norðurþings mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á endurgreiðslum til sveitarfélaga vegna refaeyðingar sem fram kemur í frumvarpi til fjárlaga fyrir 2010. Jafnframt skorar nefndin á ríkisvaldið að veita sanngjarna greiðslu til refaeyðingar sem sveitarfélögum er skylt að veita.
|
|
|
|
|
|
|
6. |
200909031 - Hraðahindranir v/Ásgarðsveg |
|
|
|
Þráinn leggur fram eftirfarandi tillögu: Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að nýuppsett hraðahindrun á Ásgarðsvegi verði fjarlægð strax þar sem undirritaður telur ekki nauðsyn á hraðahindrun þar sem hámarkshraði í götunni er takmarkaður við 30 km.
Tillagan felld. Þráinn greiddi atkvæði með tillögunni. Aðalsteinn, Trausti og Rúnar Tr. greiddu atkvæði á móti og Rúnar Þórarinsson greiddi ekki atkvæði.
Aðalsteinn óskar bókað: sú stjórnsýsla sem viðhöfð var við viðsnúning á fyrri ákvörðun FogÞ í sveitarstjórn var á allan hátt forkastanleg. Í ljósi þess að sveitarstjórn virðist ekki hafa áhuga á skoðunum undirritaðs um þessi mál sér hann ekki ástæðu til þess að óska eftir breytingum á ákvörðun sveitarstjórnar. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30



