30. fundur
framkvæmda- og þjónustunefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 25. ágúst 2010og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Tryggvi Jóhannsson, Sveinn Birgir Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi
Dagskrá:
1. 201008028 - Yfirlögn á götum á Kópaskeri, Raufarhöfn og í Lundi
|
Staðið hefur til í nokkur ár að yfirleggja götur á Raufarhöfn þar sem slitlag er orðið illa farið. Því var leitað eftir tilboðum í yfirlögn frá KNH verktökum, sem sjá um framkvæmdir á Hófaskarðsleið, og þannig reynt að nýta tækifærið sem skapast vegna nálægðar verktakans og bæta auk þess við tveimur götum á Kópaskeri og svo heimreiðinni að skólanum í Lundi. Svar hefur nú borist frá verktökunum og er það miðað við að leggja á eftirtaldar götur. Á Raufarhöfn: Höfðabraut austur fyrir kirkju, Vogsholt, Tjarnarholt, Skólabraut og Hafnarbraut (tvöfalt). Á Kópaskeri: Akurgerði og Boðagerði. Í Lundi: Heimreið að skóla.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að taka tilboði KNH verktaka. Framkvæmda- og þjónustunefnd óskar eftir aukafjárveitingu frá Byggðaráði vegna framkvæmdanna.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að taka tilboðinu. |
||
|
|
||
|
2. 201007047 - Fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopafjarðarhrepps |
||
|
Fyrir fundinum lá tillaga að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps. Innan Norðurþings yrðu sex fjallskiladeildir þ.e. Reykjahverfisdeild, Húsavíkurdeild, Kelduhverfisdeild,Öxarfjarðardeild, Núpasveitardeild og Sléttudeild. Sveitarstjórn skal skipa, í samráði við landeigendur, einn fjallskilastjóra í hverri fjallskiladeild.
Framkvæmda- og þjónustunefnd leggur til við sveitarstjórn að hún staðfesti fyrirliggjandi fjallskilasamþykkt og skipi eftirtalda fjallskilastjóra: Þráin Ómar Sigtryggsson Litlu-Reykjum í Reykjahverfisdeild, Aðalstein Árna Baldursson Baughóli 31b í Húsavíkurdeild, Einar Ófeig Björnsson Lóni í Kelduhverfisdeild, Stefán Pétursson Klifshaga í Öxarfjarðardeild, Sigurð Árnason Presthólum í Núpasveitardeild og Jón Þór Guðmundsson Leirhöfn í Sléttudeild.
|
||
|
|
||
|
3. 201007044 - Björn Víkingur Björnsson, erindi varðandi grenjavinnslu í gamla Presthólahreppi |
||
|
Björn Víkingur er með samning um grenjavinnslu í gamla Presthólahreppi sem rennur út á þessu ári. Hann óskar eftir að gerður verði við sig nýr samningur um eyðingu refa t.d. til tíu ára og uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að fresta ákvörðun til næsta fundar og fela framkvæmda- og þjónustufulltrúa að afla frekari upplýsinga. |
||
|
|
||
|
4. 201006030 - Tillaga frá fulltrúa Þinglistans um kaup á hraðamælitækjum með blikkljósum við aðkeyrsluna að Húsavík að sunnan og norðan |
||
|
Í samræmi við samþykkt á síðasta fundi hafði framkvæmda- og þjónustufulltrúi samband við Vegagerðina og óskaði eftir tillögum frá henni um lækkun umferðarhraða inn í þéttbýlin á Raufarhöfn og Húsavík. Vegagerðin er byrjuð að skoða málið og stefnt er að fundi um það alveg á næstunni.
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. 201007029 - Undirskriftarlisti frá íbúum á Raufarhöfn þar sem óskað er eftir úrbótum á hraðahindrunum |
||
|
Undirskriftalisti frá íbúum á Raufarhöfn þar sem þess er krafist að endurnýjaðar verði hraðahindranir við innakstursleiðir í þorpið.
Framkvæmda- og þjónustunefnd tekur undir undir áhyggjur íbúanna og vísar til þeirrar vinnu sem nú fer fram með Vegagerðinni og fjallað er um í næsta dagskrárlið hér á undan. |
||
|
|
||
|
6. 201008044 - Hilmar Þór Guðmundsson-Erindi frá íbúum Stakkholts 1 og Stakkholts 3, vegna frágangs. |
||
|
Óskað er eftir endurbótum af hálfu sveitarfélagsins til að hindra óþrifnað og fok úr gömlu malarnámunni við Stakkgholt og enda Langholts að sunnan. Einnig er óskað eftir að gengið verði frá gangstéttum við Stakkholt þannig að íbúar geti gengið frá lóðum sínum. Í þriðja lagi er óskað eftir að brekkan upp úr götunni verði lögð bundnu slitlagi að aðkeyrslunni við Stekkjarholt ef nota á Stakkholtið til gegnumaksturs. Ef það verður ekki gert væri best að loka þessari gegnumkeyrslu sem þýddi þá umferðaraukningu á Stekkjarholti.
Framkvæmda- og þjónustunefnd felur framkvæmda-og þjónustufulltrúa að leita leiða, í samráði við skipulags- og byggingafulltrúa og bæjarverkstjóra, til að hindra fok og óþrif á svæðinu sem er fyrirhugað byggingasvæði og því ekki hægt að ganga frá á varanlegan hátt. Þeim einnig falið að gera kostnaðaráætlun. Hvað varðar gangstéttar er vísað í gerð fjárhagsáætlunar 2011. Varðandi uppkeyrsluna felur nefndin framkvæmda- og þjónustufulltrúa að ræða við íbúa götunnar um mögulega lokun hennar í endann í samræmi við deiliskipulag. |
||
|
|
||
|
7. 201008046 - Hóll við Ásgarðsveg |
||
|
Norðurþing hefur nú eignast húsið Hól á Húsavík. Húsið er illa farið og hefur staðið autt mörg undanfarin ár. Taka þarf ákvörðun um framtíð hússins.
Framkvæmda- og þjónustunefnd felur umsjónarmanni fasteigna að fá öll tilskilin leyfi vegna förgunar hússins. |
||
|
|
||
|
8. 200907035 - Tillaga um tímabundna lækkun gatnagerðargjalda |
||
|
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkti 9. september 2009 eftirfarandi tillögu: Nefndin samþykkir að veittur verði tímabundinn 100% afsláttur frá gildandi gjaldskrá um gatnagerðargjöld vegna viðbygginga eldri húsa á lóðum sem úthlutað var fyrir 1. febrúar 2006 í þeirri von að lækkun auki líkur á framkvæmdum við húsbyggingar án tilkostnaðar fyrir sveitarfélagið. Afslátturinn gildir frá 1. október 2009 til 30. september 2010.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir, í ljósi aðstæðna, að framlengja ofangreinda samþykkt um eitt ár þ.e. til 30. september 2011. |
||
|
|
||
|
9. 201008051 - Tillaga fulltrúa V- og Þ-lista um að auglýsa iðnaðarlóðina á Bakka lausa til umsóknar |
||
|
Eftirfarandi tillaga og greinargerð barst frá fulltrúum V og Þ-lista: "Í ljósi aukins áhuga á iðnaðarlóðinni á Bakka þá vilja fulltrúar V og Þ-lista í skipulags-og byggingarnefnd Norðurþings leggja það til við nefndina og þar af leiðandi sveitarstjórn Norðurþings að umrædd lóð verði þegar í stað auglýst laus til umsóknar. Umrædd lóð er á gildandi aðalskipulagi skilgreind sem iðnaðarsvæði/lóð og er ætlað undir mögulega orkufreka stóriðju skv. greinargerð aðalskipulagsins." Áki Hauksson, Þ-lista Stefán Rögnvaldsson, V-lista Þráinn lagði fram eftirfarandi tillögu: Framkvæmda- og þjónustunefnd fagnar áhuga fulltrúa Vinstri grænna og Þ-lista á stóriðjumálum en leggur samt sem áður til að lóðin verði ekki auglýst vegna óvissu um orkuöflun. Tillaga Þráins borin upp og samþykkt með atkvæðum Þráins, Hjálmars Boga og Sigurgeirs. Áki greiddi atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúi minnihlutans vill bóka:
Vegna áhuga á iðnaðarlóðinni á Bakka sem skilgreind er sem iðnaðarsvæði/lóð og er ætlað undir mögulega orkufreka stóriðju samkv. greinargerð aðalskipulagsins. Er brýnt að fara auglýsa lóðina til umsóknar.
Fulltrúi minnihlutans vill benda á Í viljayfirlýsingu sem ráðamenn í Norðurþingi skrifuðu undir stendur:
"Verkefnisstjórnin skal ljúka fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðilum fyrir 1. apríl 2010 og nýta svo tímann til 1. október 2010 til nánari viðræðna og samningagerðar við þá sem til greina koma."
Einnig stendur "Staða málsins verður metin sérstaklega í framhaldi af fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðilum sem á að vera lokið fyrir 1. apríl 2010, og aftur þann 1. október 2010, þegar allri undirbúningsvinnu vegna frekari samninga á að vera lokið. Viljayfirlýsingin gildir til 1. mars 2011, þegar samningur við stóran orkukaupanda / orkukaupendur um uppbyggingu á svæðinu á að liggja fyrir."
Samkvæmt ofangreindu hafa ráðamenn í Norðurþingi sem staðfestu þessa viljayfirlýsingu og ofangreindan texta slegið þá sem settir voru í A flokk verkefnastjórnarinnar út af borðinu með þessari undirskrift sinni á þessari viljayfirlýsingu. Viljayfirlýsingin tók gildi 22 Október 2009 fyrir tæpu ári síðan og á að renna út 1 Mars 2011. Ekki er fræðilegur möguleiki á þessum tíma að svara eftirtöldum spurningum sem Alcoa þarf að fá svör við til að geta tekið ákvörðun um byggingu álvers Alcoa á Bakka.
1. Hversu mikil orka er til? 2. Hvenær verður hægt að afhenda orkuna? 3. Hvaða verð fæst fyrir orkuna?
Fulltrúi minnihlutans vill fá að vitna orðrétt í það sem haft var eftir Tómasi Má Sigurðssyni forstjóra Alcoa á Íslandi í fréttum. „Ég held að öllum sé ljóst að ef það á að taka ákvörðun 1. október er verið að slá okkur út af borðinu," segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi.
Fulltrúi minnihlutans getur ekki annað en tekið undir orð Tómasar. Ráðamenn í Norðurþingi skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að ljúka samningsgerð við orkukaupendur fyrir 1 Október 2010 og slógu þar með Alcoa út af borðinu. Því er brýnt að huga að öðrum kostum og notum fyrir iðnaðarlóðina á Bakka og nauðsýnlegt að auglýsa hana til umsóknar þegar í stað.
Áki Hauksson fulltrúi Þ-listans. |
||
|
|
||
|
10. 201008052 - Búnaðarsamband S-Þing/ Kerfill |
||
|
Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga samþykkti á síðasta aðalfundi sínum að leita samstarfs við sveitarfélög á Búnaðarsambandssvæðinu í því skyni að fá gerða úttekt á útbreiðslu skógarkerfils á svæðinu og þörf fyrir aðgerðir til að hindra útbreiðslu hans eða til að freista þess að útrýma honum. Búnaðarsambandið óskar eftir að Norðurþing taki þátt í gerð áðurnefndrar úttektar og eftir atvikum umsókn um stuðning til framkvæmda í kjölfar úttektarinnar.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir erindið. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00



