Hafnanefnd

Hafnanefnd 15. fundur hafnanefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 18. júní 2008 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn

Hafnanefnd

15. fundur hafnanefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 18. júní 2008 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Jón Grímsson, Jón Helgi Björnsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Bergur Elías Ágústsson,

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson , Sveitarstjóri

Dagskrá:

•1.    200711059 - Skoðunarferð um Húsavíkurhöfn

Hafnanefnd fór skoðunarferð um hafnarsvæðið á Húsavík og felur hafnastjóra að hefja hreinsunarátak við höfnina í samstarfi við hafnarvörð.

•2.    200711058 - Breytingar á plani við Suðurgarð

Hafnanefnd samþykkir að láta fjarlægja grjót og graseyju við Suðurgarð. Jafnframt felur hafnanefnd hafnastjóra að láta malbika umræddan reit í samráði við þjónustu og framkvæmdanefnd.

•3.    200806044 - Bryggjukantur á Kópaskeri

Hafnanefnd felur hafnastjóra að panta timbur til endurnýjunar á bryggjukantinum á Kópaskeri og semja við verktaka um framgang verksins.

•4.    200806045 - Bauja á Raufarhöfn

Lagt fram til kynningar.

•5.    200806045 - Loka frágangur við smábátabryggju á Raufarhöfn

Hafnanefnd samþykkir að lokið verði við endurnýjun á smábátabryggjunni á Raufarhöfn og felur hafnastjóra framgang málsins.

•6.    200806046 - Stórskipahöfn á Húsavík

Hafnastjóri fór yfir stöðu mála.

•7.    200806047 - Fjárhagsleg staða hafna Norðurþings

Farið var yfir skýrslu Hagfræðistofnunar um fjárhagslega stöðu hafna á Íslandi.

•8.    200806018 - Afturköllun á skipun verndarfulltrúa hafnarinnar á Raufarhöfn

Lagt fram til kynningar.

•9.    200711059 - Hafnanefnd, önnur mál

Hafnastjóra falið að sjá til þess að komið verði upp bílastæðaskiltum á hafnarstétt.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   17:15

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya