Hafnanefnd 16.12.08

Hafnanefnd 16.12.08   17. fundur hafnanefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 16. desember 2008 og hófst hann kl.

Hafnanefnd 16.12.08

 

17. fundur

hafnanefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

þriðjudaginn 16. desember 2008 og hófst hann kl. 12:00

 

 

Fundinn sátu:

Jón Helgi Björnsson, Egill Aðalgeir Bjarnason, Þráinn Guðni Gunnarsson, Sveinbjörn Lund, Bergur Elías Ágústsson, Hilmar Dúi Björgvinsson,

 

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri

 

 

Dagskrá:

 

1.

200812063 - Hafnarnenfd, Fjárhagsáætlun 2009

 

Hafnarnefnd samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð og vísar henni til fyrri umræðu í sveitarstjórn Norðurþings.

Þess skal getið að fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 113 milljóna króna halla og lýsir þeirri staðreynd að ekki verður hægt að rétta af stöðu hafna í Norðurþing án aðkomu stjórnvalda.

 

 

 

2.

200806046 - Stórskipahöfn á Húsavík

 

Hafnarstjóri greindi frá líkansprófunum hjá Siglingastofnun sem senn fer að ljúka. Forsvarmenn Siglingastofnunnar hafa boðist til að koma til Húsavíkur í janúar til að kynna helstu niðurstöður. Hafnarstjóra var falið að boða til fundarins þegar endanleg dagsetning liggur fyrir.

 

 

 

3.

200806045 - Hafnarframkvæmdir á Raufarhöfn

 

Hafnarstjóri kynnti stöðu mála.

 

 

 

4.

200812064 - Hafnaráætlun 2009

 

Hafnarstjóri greindi frá breytingu á hafnaráætlun í ljósi efnahagsþrenginga. Niðurstaðna er sú að endurbótum á stálþili Suðurgarðs á Húsavík verður frestað um eitt ár að beiðni stjórnvalda. Hafnarnefnd samþykkir þessa breytingu.

 

 

 

5.

200810111 - Tjón á hafnarmannvirkjum

 

Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála og greindi frá því að niðurstaða mun liggja fyrir í janúar 2009.

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya