
Hafnanefnd Norðurþings
27. fundur hafnanefndar Norðurþings haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 8. desember 2010 og hófst hann kl.
18:30
Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Kristinn Rúnar Tryggvason, Bergur Elías Ágústsson,
Fundargerð ritaði: Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri
Dagskrá:
1. 201012012 - Erindi frá Áka Haukssyni varðandi mælasnúrur í höfninni
Rætt var um fyrirkomulag á rafmagnssölu hafna Norðurþings til eins fasa notenda. Samþykkt að fara nánar yfir málið með
hafnarvörðum.
2. 201011060 - Logos lögmannsþjónusta f.h. Norðursiglingar óskar eftir frekari skýringum vegna hækkunar
farþegagjalda
Hafnanefnd Norðurþings hefur þegar svarað sama erindi á fullnægjandi hátt og sér ekki ástæðu til frekari rökstuðnins á
hóflegu farþegagjaldi til Húsavíkurhafnar.
3. 201011048 - 333. fundur stjórnar Hafnasambands íslands
Lagt fram til kynningar.
4. 201011046 - Tillögur að árgjöldum 2011-2012 frá Hafnasambandinu ásamt rekstrarreikningi
Lagt fram til kynningar.
5. 201011044 - Ályktun frá 37. þingi Hafnasambandsins varðandi hlutverk og tækifæri hafna
Lagt fram til kynningar.
6. 201007027 - Ásgeir Þórðarson f.h. leigjenda verbúða á neðri hæð að Hafnarstétt 17, ósk um kaup á
verbúðunum
Hafnanefnd Norðurþings hefur ákveðið að Hafnarstétt 17, á Húsavík sé ekki til sölu. Gert er ráð fyrir óbreyttri
starfsemi.
7. 201009119 - Haukur Eiðsson, umsókn um pláss í verbúð
Hafnanefnd þakkar fyrir erindið, en getur ekki orðið við því að svo stöddu. Losni verbúð mun hún verða auglýst til leigu og
áhugasömum gefin kostur á að sækja um.
8. 201009118 - Erindi frá Áka Haukssyni í þremur liðum, 1.)Farþegagjöld hafna 2.)Öryggi við flotbryggjur 3.)Eignir
hafnarsjóðs
Rætt um möguleika á því að setja upp hlið á flotbryggjur. Málið tekið upp að nýju þegar núverandi
framkvæmdum við Hafnastétt lýkur.
9. 201012016 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs
Hafnanefnd felur hafnarstjóra að ganga frá fjárhagsáætlun fyrir hafnasjóð Norðurþings fyrir árið 2011.
10. 201011022 - Hafnareglugerð og gjaldskrá
Hafnanefnd samþykkir framlagðar breytingar á hafnareglugerð og felur hafnastjóra að auglýsa hana.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00



