24. fundur hafnanefndar Norðurþings haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,miðvikudaginn 25. ágúst 2010 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Þráinn Guðni Gunnarsson, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigurgeir Höskuldsson, Áki Hauksson, Egill Aðalgeir Bjarnason, Bergur Elías Ágústsson,
Fundargerð ritaði: Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri
Dagskrá:
|
201007041 - 330. fundargerð stjórnar Hafnasambands íslands |
||
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
2. 201001040 - Norðursigling, ósk um skýringu á hækkun farþegagjalds og niðurfellingu vsk. |
||
|
Afstaða Hafnanefndar til erinda Norðursiglingar hefur komið fram í fyrra svarbréfi og stendur órbreytt. |
||
|
|
||
|
3. 201006076 - Jóna Matthíasdóttir f.h. Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf. sækir um leyfi fyrir skilti á Bökugarði |
||
|
Hafnanefnd samþykkir fyrirliggjandi erindi. |
||
|
|
||
|
4. 201006034 - Bréf félags húseigenda í Flatey á Skjalfandi til Siglingastofnunar varðandi viðhald hafnarmannvirkja í eynni |
||
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. 201004084 - Könnun Hafnasambandsins á efnahagslegum áhrifum af komu skemmtiferðaskipa til landsins |
||
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
6. 201004061 - Siglingastofnun, fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014 |
||
|
Hafnanefnd Norðurþing leggur ríka áherslu á að eftirfarandi framkvæmdir komist á samgönguáætlun. 1. Stórskipahöfn við Húsavík 2. Endurbætur á Suðurgarði Húsavíkurhafnar. 3. Viðhaldsdypkun í höfnum Norðurþings. 4. Breytingar og lagfæringar á trébryggju í norðurhöfn. Hafnanefnd felur Hafnastjóra að leggja inn umsókn til Siglingastofnunar fyrir framangreindar framkvæmdir. |
||
|
|
||
|
7. 201008034 - Boðun á hafnarsambandsþing |
||
|
Fram kemur að Hafnarsambandsþingið verður haldið í Stykkishólmi, daganna 23 og 24 september nk. Hafnanefnd Norðuþurþings tilnefnir Berg Elías Ágústsson og Sigurgeir Höskuldsson sem fulltrúa á Hafnarsambandsþingið. |
||
|
|
||
|
8. 201008053 - G.P.G.fiskverkun ehf-Erindi varðandi aðstöðu G.P.G á hafnarsvæði |
||
|
Hafnanefnd felur hafnastjóra að ræða við bréfritara til að afla nánari upplýsingar. Erindið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar. |
||
|
|
||
|
9. 201008054 - Hafnanefnd- Starfsmannamál |
||
|
Trúnaðarmál. |
||
|
|
||
|
10. 200909058 - Norðursigling ehf-Bryggjuaðstaða í Húsavíkurhöfn |
||
|
Hafnanefnd þakkar fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram. Þeir liðir sem þarfnast fjárútláta verða teknir til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Áki Hauksson óskar bókað: Framtíðar skipulag við Húsavíkurhöfn verði gert í fullu samráði við Siglingastofnun með það að leiðarljósi að allir þeir sem nýta hafnarmannvirkin þ.e.a.s flotbryggjur sem og aðra viðlegukanta geri það á sem skynsamlegasta máta með hagsmuni allra að leiðarljósi. Fulltrúi minnihluta er ekki kunnugt um að þessi tillaga/teikning hafi verið lögð fram til kynningar og samþykktar á hafnanefndarfundi áður en hún var kynnt hagsmunaaðilum sem nýta höfnina. Einnig er fulltrúa minnihluta ekki kunnugt um að þessi fyrirheit sem gefin voru, hafi verið samþykkt áður á hafnanefndarfundi.
3. gr. Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á
fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.
|
||
|
|
||



